Færsluflokkur: Lífstíll
7.12.2008 | 22:44
Til hamingju Grafhyltingar
Það var sannur gleðidagur í Grafarholtinu í dag, þegar við tókum í notkun og vígðum nýja kirkju. Ég hefði reyndar kosið að kalla kirkjuna okkar Grafarholtskirkju en Guðríðarkirkja varð fyrir valinu meðal sóknarnefndar og við það verðum við að búa.
Kirkjan stendur á fallegum stað hér í Grafarholtinu umlukin Kristinbraut, Kirkjustétt, Prestastíg og Biskupsgötu og því óhætt að segja að hún sé með góða nágranna. Kirkjan er ákaflega falleg í alla staði þó svo hæst beri að nefnda einstaka altaristöflu eða öllu heldur altarisgarð sem gerir kirkjuna afar sérstaka. Kirkjan er frekar "minimalísk" hún er björt og afar fögur með fallegum ljósum innviði.
Í kirkjunni verður unnið gott starf hvort sem litið er til trúar eða félagsauðar í hverfinu, því án efa verður kirkjan okkar miðpunktur hverfisins sem allir geta átt sitt athvarf í.
Kæru Grafhyltingar til hamingju með stórglæsilega kirkju og gott safnaðarstarf.
Biskup vígði Guðríðarkirkju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þrátt fyrir að undanfarin ár hafi þátttakendur sem keppt hafa fyrir Íslands hönd á Ólympíumóti fatlaðra sýnt það og sannað að þeir eru í fremstu röð íþróttaiðkenda, að þeir eru uppspretta drauma og markmiða hjá öðrum bæði fötluðum sem ófötluðum, þá er þeim ekki sýnt sú virðing sem þeir eiga svo sannarlega skilið.
Það eru fimm íslenskir íþróttamenn sem taka þátt að þessu sinni og þau eru
Sonja Sigurðardóttir keppir í 50 metra baksundi,
Jón Oddur Halldórsson í 100 metra hlaupi,
Baldur Ævar Baldursson keppir í langstökki,
Eyþór Þrastarson keppir í 400 metra skriðsundi og einnig 100 metra baksundi
og Þorsteinn Magnús Sölvason keppir í lyftingum.
Það hryggir mig verulega að vita til þess að forsetinn, ráðherra íþróttamála sem og fjölmiðlar landsins skuli hafa ákveðið að hunsa leikana eins og ljóst hefur orðið. Einungis félagsmálaráðherra var viðstaddur setningar athöfn leikanna í dag og ber að þakka henni fyrir það. En að forsetinn og ráðherra íþróttamála skuli lýta á Ólympíuleika fatlaðra sem annars flokks miðað við hina hefðbundnu Ólympíuleika er hryggilegt og þessi ákvörðun dæmir þau fyrst og fremst sjálf. Það er ekki langt síðan að ráðamenn þjóðarinnar sögðu að mikilvægt væri að sýna stuðning sinn í verki með því að mæta á Ólympíuleika þrátt fyrir að þeir væru haldnir í Peking.
Þegar hinir hefbundu Ólympíuleikar voru settir var bein útsending frá athöfninni en í dag sá Ríkissjónvarpið sér ekki fært að sýna beint frá setningu leikanna og sáralítið hefur almennt verið sagt frá setningarathöfninni í fjölmiðlum í dag. Þegar dagskrá Ríkissjónvarpsins er skoðuð næstu daga er ljóst að stofnunin mun ekki sýna beint frá viðburðum leikanna heldur hunsa þá algjörlega og í besta falli sýna myndbrot af leikunum í fréttatíma sjónvarpsins.
Hvers vegna er það að forsetinn, ráðherra íþróttamála sem og fjölmiðlar landsins taka þá ákvörðun að vera ekki til staðar til þess að styðja þetta öfluga íþróttafólk sem tekur þátt í leikunum fyrir Íslands hönd?
Það hlýtur að vera eðlileg beiðni okkar eða öllu heldur krafa að ráðamenn sem og fjölmiðlafólk beri sömu virðingu fyrir fötluðum sem ófötluðum en fari ekki í manngreini álit og það hreinlega krafa okkar að þeim þátttakendum sem nú taka þátt fyrir Íslands hönd sé sýnt sú virðing sem þeir eiga skilið.
Ólympíumót fatlaðra hafið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 23:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Vissulega er gott fyrir margt vaktavinnufólk að geta verslað utan heðbundins opnunartíma verslana. En fyrir mitt leyti get ég hugsað mér margt annað en að versla strokleður og kennaratyggjó um hánótt.
Venjur landans hafa svo sannarlega breyst síðustu ár. Ég man þegar ég var lítill þá var alltaf farið í Hagkaup í Skeifunni og gerð helgar innkaup, þakka fyrir að það hafi ekki verið notaðar tvær körfur, slík voru magn innkaupin. Í dag getur maður verslað matvöru allan sólahringin og því enginn þörf lengur fyrir helgar "magn" innkaupum.
Nú getur maður sem sagt keypt bílabón, nautakjöt og strokleður allan sólahringin en maður getur ekki keypt magnyl eða pensilín eftir miðnætti þar sem ekkert apótek er opið allan sólahringin. Þó hefði maður talið að einhverjir þyrftu að kaupa sér lyf að næturlagi sökum veikinda.
Kannski verður það orðið þannig eftir nokkur ár að maður getur komið við í litlum þjónustukjarna sem opinn verður allan sólahringin þar sem öll þjónusta verður, matvara, fatnaður, lyf, skyndibiti, bensín og líkamsrækt. Þá verður hægt að segja fyrir alvöru að í samfélaginu verður bæði A og B fólk, þ.e þeir sem vakna snemma og sofna snemma (A) og þeir sem kjósa að vakna seint og sofna enn seinna (B).
Skóladót allan sólarhringinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2008 | 22:52
Flottur dagur
Ég fagna þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að gera einn dag á ári að degi barnsins. Það er reyndar einkennilegt að það sé ekki löngu búið að setja þennan dag á því við höfum eins og við öll vitum höfum við mæðra- og feðradag og nú loks dag barnsins.
Fyrir mitt leyti þá fannst mér í raun gert furðu lítið úr þessum degi og ég hefði gjarnan viljað sjá hann betur "markaðssettan" t.d sagði mbl.is ekki frá þessum degi fyrr en kl. 17.07 í dag en hefðu í raun sem fjölmiðill átt að segja frá þessum degi strax í morgunn og með því kvatt foreldra til þess að gera eitthvað með börnum sínum. Við fórum t.d í sund sem var í boði ÍTR og eftir að vera búin að svamla dágóða stund var að sjálfssögðu komið við í bakaríinu, enda tilheyrir að fá sér sér "íslenskan" snúð og kókómjólk eftir góðan sundsprett. Þegar við vorum búin með kræsingarnar var ákveðið að taka bíltúr sem endaði að sjálfssögðu sem ísbíltúr þar sem sú stutta í bílnum fullyrti að hún hefði ekki fengið í "alveg svakalega lengi" sem í raun var bara fyrir helgi en tíminn er lengri að líða hjá þessum litlu en okkur hinum, allavega stundum.
Ákveðið var að frúin og eldri dóttirin færi að sjá FRAM leggja Þróttara í fótboltaleik dagsins á meðan ég og sú stutta ákváðum að vera heima og grilla. Þegar við vorum búin að grilla og borða gómsæta hamborgara, sem í þetta skiptið voru án ostarins - þar sem sú stutta án allan ostinn á meðan hún var að bíða eftir hamborgaranum þá spiluðum við eitt spil og svo var kominn háttatími því erfiður leikskóladagur er á morgun hjá henni.
Sem sagt stórskemmtilegur dagur barnsins hér á þessu heimili og vonandi á sem flestum heimilum.
Merki og hljómur dags barnsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.5.2008 | 09:55
Sumir vilja vera heima
Ekki ætla ég að draga dul á að kvenréttindafélag Íslands hefur unnið gott starf í gegnum tíðina, en ég hefði gjarnan viljað sjá sterkari rök frá þeim varðandi heimgreiðslurnar. Það eru mög rök með því að sveitafélög komi á móts við foreldra eða forráðamenn barna með þessu móti. Heimgreiðslur eiga ekki að koma í stað leikskólavistar barns heldur er þetta lausn þegar barn hefur ekki fengið úthlutuðu leikskólaplássi.
Ég segi hinsvegar að heimgreiðslur séu síður en svo úreld hugmynd og reyndar skil ekki þá fullyrðingu kvennréttindafélagsins. Þessi leið getur komið sér vel fyrir marga og reyndar veit ég um fólk sem þessi leið hentar einfaldlega betur. Ég myndi vilja sjá heimgreiðslur til dæmis til þeirra foreldra og forráðamanna sem ákveða að nýta sér einungis t.d hálfs dags vistun á leikskóla þau gætu fengið heimgreiðslur að hluta. En vitanlega á það að vera val foreldra og forráðamanna hvort þau ákveða að hafa börnin sín heimavið að hluta eða öllu leyti yfir daginn þó vissulega sé ekki deild um hve gott það er fyrir börn félagslega að vera á leikskóla en það er síður en svo eina leiðin.
Heimgreiðslur úrelt hugmynd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.5.2008 | 21:29
Síminn..... uuuu já
sýnir fyrirtækið hvað í því býr. Þrátt fyrir að ég sé örlítið litaður þá tel ég að Síminn hafi frumsýnt eina bestu auglýsingu sem gerð hefur verið fyrir íslenskt fyrirtæki. Fagmennskan höfð í fyrirrúmi hvort sem litið er til handrits, umhverfis eða töku. Þessi auglýsing fær 11 stjörnur af 10 mögulegum. Reyndar hélt ég að það væri ekki hægt að sá út Jesú auglýsinguna fyrir jólin og satt best að segja vissi ég ekki hvað ég átti að halda þegar blessaða kattar auglýsingin var birt en nú hefur fyrirtækið komið fram og sýnt það enn og aftur hve öflugt það er.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2008 | 23:21
Neytendavaktin í 24 stundum á morgun fimmtudag
Ég varð svo ljón heppinn að koma við á bensínstöðinni þegar ég var að hjóla heim og vitir menn 24 stundir morgundagsins þ.e fimmtudagsins var komið á stöðina. Verst að það er ekki lottó úrdráttur á morgun, maður hefði þá í það minnsta geta keypt eina röð eða svo.
En það vakti athygli mína dálkur frá neytendavaktinni sem er samvinnuverkefni 24 Stunda og Neytendasamtakana. Einu sinni á dag er farið vörur eða þjónustu og hvað þetta er ódýrast og hvar dýrast.
Á morgun fimmtudag er farið yfir það hvað minnsta stærð af ís með dýfu kostar og komið hefur í ljós að það er 58% verðmunur á þessari vöru á milli söluaðila.
Eden Hveragerði var ódýrast en þar kostaði ísinn 190 kr, Erluís var næst ódýrust með ísinn á 200kr en ísbúðin í Smáralind er dýrust því þar kostar ísinn 300 krónur.
En ég velti því fyrir mér hvað er minnsta stærðin lítil eða stór og hve áræðanleg er þessi könnun? Ekki það að þetta sér mér eitthvert hjartans mál en ég gæti vel hugsað mér að taka þátt í þessari könnun þ.e vera framkvæmdaraðilinn að því gefnu að ég fengi að borða ísinn.
En án þess að ég sé með sannanir fyrir því þá er Erluís besta ísbúð bæjarins og alltaf jafn gaman að kíkja þar við og fá sér ís
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2008 | 00:00
Hjólaði 17km í dag.
Það eru skemmtilegir tímar svo mikið er víst. Nú stendur yfir átakið "Hjólað í vinnuna" og að sjálfssögðu tekur maður fullan þátt í því. Ég er hluti af 8 manna teymi hérna hjá Símanum sem ætlar klárlega að rúlla þessu upp. Teymið samanstendur af algjörum áhugamanna íþróttafólki uppí það að vera með fólk sem kemst næst því að verða einhverskonar líkamsræktarsjúklingar. Fólk sem hjólar í vinnuna og heim aftur en telur sig alls ekki fá nóg af hreyfingu út úr því og mætir í ræktina í hádeginu til þess að taka aðeins á, ótrúlegt en satt!
Ég læt hinsvegar duga að hjóla í vinnuna og heim aftur, það eru í kringum 17 Km leið svo ég er bara sáttur eða öllu heldur er ég eiginlega bara rosalega ánægður með þetta, hélt að ég myndi ekki endast einn dag í þessu en núna eru komnir tveir dagar og vitir menn ég ætla klárlega að vera með á morgunn, ekki spurning.
En til gamans þá hafa starfsmenn Símans og Skipta nú hjólað rétt rúma 1000 km á tveimur dögum og það hlýtur að teljast nokkuð gott.....
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 00:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2008 | 11:40
Síminn - á toppnum
Glæsilegur árangur starfsmanna Skipta og dótturfyrirtækja. Það er án efa gaman að hafa nú komist á topp landsins. Ég var svo heppinn að hitta hópinn áður en hann lagði af stað um miðnætti frá Hótel Skaftarfelli og að sjálfssögðu voru teknar nokkrar myndir, þær má sjá í myndaalbúminu.
En líklega eru starfsmenn hvað ánægðastir með að þessu verkefni sé nú lokið og að þeir geti frá og með næsta laugardegi sofið aðeins lengur þar sem þeir þurfa ekki að mæta á Esjuna um kl 09.00 til þess að taka þátt í æfingarferð fyrir Hnjúkinn.
Það hefur verið gaman að taka þátt í þessu verkefni þrátt fyrir að hafa ekki komist á Hnjúkinn að þessu sinni. En ég mun án efa fara síðar enda útsýnið frá toppnum ómetanlegt.
Nú má með sanni segja að Síminn sé á toppnum, enda ekkert annað fjarskiptafyrirtæki sem getur boðið uppá samband frá hæsta tindi landsins.
Til hamingju Skipta, Síma, Mílu og Sensa starfsmenn með glæsilegan árangur.
Bein útsending frá Hnjúknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2008 | 11:54
Síminn - Á Hvannadalshnjúk
Farið var frá aðalsskrifstofum Skipta og Símans og förinni heitið í Hótel Skaftafell, þar sem ferðalangarnir munu hafa það notalegt og hvíla sig fyrir ferðina miklu uppá sjálfan hnjúkinn, sem væntanlega verður farinn aðfaranótt sunnudags.
Hópurinn samanstendur af rúmlega sextíu manns og leiðangursstjórinn er enginn annar en Haraldur Örn pólfari með meiru. Áætlað er að ferðin upp á tindinn taki um fjórtán til sextán klukkustundir fram og til baka og því meira en líklegt að ferðalangarnir verði orðnir þreyttir í lok dags.
Ég ætla renna aðeins austur og hitta hópinn og kanna stemninguna sem og taka nokkrar myndir, sem ég væntanlega set hér inn síðar í kvöld eða fyrramálið.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- 19.8.2011 Þetta er var ekki okkur að kenna!
- 7.8.2011 Munu flugmálayfirvöld ekki gera ástandsskoðun á vélum Iceland...
- 5.8.2011 Sagan endurtekur sig... þetta eru ekki við heldur þeir!
- 5.8.2011 Er Iceland Express þjónustufyrirtæki?
- 11.3.2010 Kristján Þór - Styrkir sig með hverjum deginum og þorir að se...
Eldri færslur
- Ágúst 2011
- Mars 2010
- September 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Fjölmiðlar
Tenglar á þá fjölmiðla sem ég les, þekki eða bara veit af!
- MissB
- SSB - Sjónvarpsstöð Sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti Stútfullur fróðleiksbrunnur
- Blaðið Það er bara þarna
- Deiglan Alveg ómissandi lesning
- Eyjafréttir Ekki spyrja mig afhverju !
- Þórshafnarfréttir Set þetta inn bara fyrir Rúnar
- Austurglugginn Allt gott kemur að austan
- Vísir Keyptar fréttir....? Gæti verið, hver veit
- Morgunblaðið...Málgagn þjóðarinnar Það eina sem þarf !
Skemmtilegir tenglar
Hér mun ég setja áhugaverða tengla sem gætu komið sér vel svona til þess að slóra eða stytta daginn.
- Handverkskona ársins 2007 -Miss B Besta handverkskona landsins og svei mér þá ef víða væri leitað.
- Hafsteinn - bloggar Heimsborgari á íslenskan mælikvarða, ferðast um landið jafn oft og reykvíkingar fara niður Laugarveginn
- Viltu vera í sambandi Ekkert vodafone...aðeins það besta Síminn
- Eru ekki allir tryggðir Þar sem tryggingar snúast um fólk!
- Reykjavík Nauðsynlegt til að vita hvað er að gerast í borginni
- Sjálfstæðisflokkurinn Máttastólpi íslenskt samfélagsins
- Jólahúsið Það styttist hratt í jólin.
Bloggvinir
- Birna M
- Dögg Pálsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Lee
- Eiður Ragnarsson
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Vilberg Tryggvason
- Púkinn
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Grazyna María Okuniewska
- gudni.is
- Gunnar Björnsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Haraldsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiðar Már Guðlaugsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Inga Lára Helgadóttir
- Jórunn Sigurbergsdóttir
- Kári Sölmundarson
- Grafarholtssókn
- Kristbjörg Sigurðardóttir
- Lady Elín
- Guðjón Baldursson
- Alfreð Símonarson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- viddi
- Ólafur fannberg
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Vilhjálmsson
- Óþekki embættismaðurinn
- Reynir Jóhannesson
- Rýnir
- Sæþór Helgi Jensson
- Sjálfstæðissinnar
- Sigríður Jósefsdóttir
- Halldór Sigurðsson
- Þorsteinn Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefanía Sigurðardóttir
- Sveinn Hjörtur
- Sveinn Tryggvason
- Þóra Sigurðardóttir
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- TómasHa
- Þorsteinn Siglaugsson
- Vefritid
- Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Birgir R.
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Carl Jóhann Granz
- Gunnar Gunnarsson
- Kristján Guðmundsson
- Marta Guðjónsdóttir
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Theodór Bender