Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Verðlaunin verða til sýnis í Kringlunni 1 - 10 febrúar n.k.

Miðað við þá útrás sem mörg íslensk fyrirtæki s.s. Baugur, Exista, Kaupþing ofl ofl ofl hafa verið í undanfarin ár þ.m.t í danaveldi þá kæmi það ekki á óvart að þau hafi keypt danska landsliðið.   Allavega eiga þau stór fyrirtæki í Danmörku svo ég geri ráð fyrir að plattinn komi þá bara hingað heim, við eigum hann hvort sem er Wink

Kæru fjölskylda, vinir og nágrannar til hamingju með siguri  nn.


mbl.is Danir Evrópumeistarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

og þá er málinu reddað, sökudólgurinn fundinn !

Er ekki bara spurning um að gefa landsliðinu stóran bangsa sem þeir geta svo skipst á því að halda á, en svo er spurning hvort ekki ætti að kaupa einn stóran bangsa fyrir líðið í heild og svo lítinn bangsa fyrir hvern og einn leikmann og með því gætu liðið átt sitt lukkudýr sem og hver leikmaður líka sitt eigið lukkudýr.  Svei mér þá ef ég er ekki bara reiðubúinn að borga fyrir þetta sjálfur.Ef þetta


mbl.is Landsliðið vantar lukkutröll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fámennur hópur með læti

Þetta var fámennur hópur sem vildi stuðla að því að þeir sem komu til þess að fylgjast með fundinum gætu það ekki.  Enda eins og einn "mótmælandinn" sagði, við viljum komast á spjöld sögunnar og ætluðu alls ekki að fara út nema lögreglan myndi bera þau út..... Þá er spurning hvers vegna fólk var yfir höfuð að mótmæla.

Að öðru leiti vísa ég í skrif mín undir yfirskriftinni "atvinnumótmælendur á útsölu" hér fyrir neðan.


mbl.is Hávær mótmæli í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atvinnumótmælendur á útsölu

Sá ánægjulegi atburður átti sér stað í dag að nýr meirihluti tók við völdum hér í Reykjavík.  Meirihluti sem mun láta verkin tala og hefur nú þegar gert með því að lækka fasteignaskatt sem allir borgarbúar njóta góðs af, einnig hefur meirihlutinn gert með sér sterkan málefnasamning borgarbúum til hagsbóta.  Meirihluti Frjálslyndra og Sjálfstæðisflokks mun verða dæmdur af verkum sínum alveg eins og allir aðrir meirihlutar sem stýrt hafa borginni í gegnum tíðina.  Þess vegna getur það verið hvimleitt að heyra hve harða sleggjudóma margir fjölmiðlamenn eru tilbúnir að halda á lofti bæði í garð nýja meirihlutans sem og einstakra aðila sem eru innan hans. 

Því miður ákvað fámennur hópur að setja svartan blett yfir annars góðan dag fyrir okkur reykvíkinga.  En hugsanlega má finna skýringu á því að atvinnumótmælendur hafa verið á útsölu og það líklega með 80% afslætti.  Eins og einn viðmælandinn á Bylgjunni sagði í dag "þeir geta ekki verið uppá Kárahnjúkum því það er svo kalt þar á þessum árstíma".  Það sem var svo sorglegt við mótmælin í ráðhúsinu um hádegisbilið er hve ómálefnaleg þau voru og ekki þótti mér merkileg framkoma þeirra oddvita sem reyndu eftir fremsta megni að æsa hópinn.   Reyndar skaut það upp í huga mér hvenær löngufrímútur yrðu búnar í fjölbrautaskólunum í greindinni.  Það má með sanni segja að þetta hafi verið hávær 100 manna hópur sem gerði það að verkum að þeir sem áhuga höfðu á að fylgjast með framgangi fundarins gátu það ekki. 

Vissulega hafa allir rétt á því að mótmæla og oft á tíðum geta mótmæli hreinlega verið skemmtileg en þessi hegðun var hreint til skammar fyrir þennan hóp og þrátt fyrir að ég sé feginn að hann var ekki á pöllunum fyrir þremur mánuðum síðan eða svo þá get ég ekki annað en velt því fyrir mér hvers vegna þau voru ekki þar?


mbl.is Ólafur hyggst láta verkin tala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég tek heilshugar undir yfirlýsingu Varðar

Síðustu sólahringar hafa verið merkilegir svo ekki sé nú meira sagt.  Hverjum hafði órað fyrir því að nýr meirihluti myndi líta dagsins ljós í höfuðborginni eftir aðeins 102 daga setu fráfarandi meirihluta,ég held að engum hafi órað fyrir því að hann myndi falla eins fljótt og raun bar vitni.  En ég segi hinsvegar að hann hafi starfað 102 dögum of lengi. 

Fjögra flokka sundrung sem átti erfitt með að koma sér saman um einföldustu mál og borgarstjóri sem dansaði í kringum hópinn án þess að geta tekið afstöðu, vissulega erfitt starf það.

Hvað hefur 102 daga meirihluti áorkað hér í höfuðborginni á valdatíma sínum.

Hann hefur aukið útgjöld borgarinnar svo um munar.

Hann tók af mislægu gatnamótin á Miklubraut/Kringlumýrarbraut af, þrátt fyrir mikilvægi þeirra á einum fjölförnustu gatnamótum landsins.

Hann hækkaði fasteignaskatta, sem kemur verst niður á stórum fjölskyldum, öldruðum og öryrkjum.

Hann fékk leyfi frá Yoko til þess að hafa kveikt á friðarsúlunni á milli jóla og nýjárs.

Ef 102 daga fráfarandi meirihlutinn hefði ekki getað stuðst við vel unna fjárhags- og framkvæmdaráætlun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks þá hefði hann haft harla lítið fram að færa, verst þótti mér þó þau frávik sem tekinn voru frá þessum áætlunum með tilheyrandi brölti og fjárútlátum fyrir borgarbúa.

En ég tel að nýr meirihluti Frjálslyndra og Sjálfstæðisflokks hér í höfuðborginni komi til með að vinna vel að málefnum borgarinnar sem og allra borgarbúa.  Með því að taka skýra afstöðu til málanna og leggja til ábyrgar fjárhags- og framkvæmdaráætlanir.

Ég tek því heilshugar undir yfirlýsingu Varðar - fulltrúaráðs sjálfstæðismanna í Reykjavík.


mbl.is Vörður fagnar nýjum meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki að verða ágætt

Fischer nefndin vann ágætt starfs þegar þau unnu hörðum höndum að því að Fischer fengi íslenskan ríkisborgararétt og fluttu hann til landsins með aðstoð kaupmanns.  En er þetta ekki orðið ágætt, hvernig í ósköpunum ætlar Fischer nefndin að réttlæta það að hann verði jarðsettur á Þingvöllum?  Eru menn ekki farnir að ætlast til of mikils, mér er bara spurn? 
mbl.is Ekki rætt um að fleiri verði jarðsettir á Þingvöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er bara morgunfúlt fólk í strætó?

Ég gat ekki annað en brosað út í annað ef ekki bara bæði þegar ég las orð hennar Liv Berþórsdóttur framkv.st. Nova

"segist aðspurð ekki telja að morgunfúlir farþegar muni taka uppátæki fyrirtækisins illa"

Miðað við þessa setningu þá er einungis morgunfúlt fólk sem tekur strætó, það er kannski þess vegna sem ég tek ekki strætó - vegna þess að ég er ekki morgunfúll eða hvað segir Liv við því? Wink

 

 


mbl.is Lifandi auglýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðveldi kostar sitt

En er þetta ekki einum of mikill fórnarkostnaður?  Þetta er auðvitað komið út fyrir öll velsæmismörk.  Það þarf að koma breyting á stjórnarskrá strax á þessu þingi svo unt sé gera kröfu um fleiri meðmælendur fyrir framboð þ.e hækka þá úr 1500 upp í 4-5.000, það ætti að vera smá hindrun fyrir því að aðrir en þeir sem ætla í alvöru framboð bjóði sig fram.  Þegar ég segi alvöru framboð meina ég auðvitað þetta lýðskrum sem í gangi er þegar maður sem boðið hefur sig fram í tvígang ætlar að fara fram í þriðja skiptið til þess eins að vekja athygli á sjálfum sér og fullnægja eigin egó. 

Svo spyr maður sjálfan sig hvað í ósköpunum sé í gangi þ.e að koma fram með þessa kæru á hendur Þórunni.  Það sér þetta hver heilvita maður að þetta framboð er bara grín.


mbl.is Ástþór kærir Þórunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég segi nú bara ja hérna hér.

Það er kannski hægt að réttlæta einn eða tvo daga þó svo það sé mjög erfitt en hvernig í ósköpunum er hægt að réttlæta að maðurinn hafi verið gleymdur í fimmtíu ár.

Vonandi fær maðurinn ásættanlegar bætur svo ekki sé nú meira sagt.


mbl.is Gleymdist í fangelsi í 50 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samanburður

Það gæti verið áhugavert að sjá samanburð á ökuhraðanum í gegnum göngin.  Með því gæti maður séð hvort hraðinn sé að aukast þarna í gegn eða hvort það sé að hægjast á honum.  Mín tilfinning er sú að hraðinn hafi minnkað í gegnum göngin frá því lögreglan fór í átak gegn hraðakstri.
mbl.is 89 óku of hratt í Hvalfjarðargöngunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband