Leita í fréttum mbl.is

Nú er ég svo hissa!

Ha, og vissi fólk þetta ekki.  Ég hefði getað sagt ykkur þetta fyrir allmörgum árum síðan.

Ég hef bara einu sinni á ævinni farið í megrun og tekið einhvern kúr heilagan minnir að hann hafa heitið Zero-3 virkaði vel á meðan maður var á honum en svo komu kílóin hreinlega fljúgandi til baka með smá vöxtum.

Það er nú einn maður sem ég þekki sem var mjög ginkeyptur fyrir öllum megrunarkúrum, hann keypti hvern kúrinn á fætur öðrum ég man hann var á umræddum Zero-3 kúr, sítrónukúr, sveskjukúr, Herbalife eiginlega held ég að hann hafi prófað allt nema atkinskúrinn (sem betur fer).  En lítill hefur árangurinn verið með öllum þessum kúrum, en hann heldur áfram leitinni af hinum eina sanna fullkomna kúr.

Ég ákvað hinsvegar eftir Zero-3 kúrinn minn að kúrar væru almennt ekki fundnir upp fyrir mig og ákvað ég þá að þegar ég væri tilbúinn þá myndi ég taka á því verkefni að lostna við öll aukakílóin sem ég var með.  Sem og ég gerði þetta er skemmtilegt en umfram allt einfalt!!!

Það sem þú þarft að hafa í huga er jákvætt hugafar, fara í líkamsrækt og borða góðan og hollan mat þá mun árangurinn ekki láta á sér standa, ég lofa því!


mbl.is Megrunarkúrar þjóna litlum tilgangi fyrir meirihluta fólks að sögn vísindamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andlitslyfting

Þá hefur síðan fengið töluverða andlitlyftingu hún hefur nefnilega fengið nýja kórónu á toppinn.  Bloggvinur minn Halldór Sigurðsson var svo vingjarnlegur að leyfa mér að nota eina af myndum sínum sem hann tók.  Þessi mynd sínir blokkarkransinn í Breiðholtinu og dýrlega fjallasýn á bakvið.

Þeir sem vilja skoða fjölmargar fallegar myndir sem Halldór hefur tekið smellið hér og þá komist þið yfir á bloggið hans.


Nafnið liggur ekki fyrir ??

Merkilegt að nafnið skuli ekki liggja fyrir sérstaklega þegar það á að tilkynna það um næstu helgi!

Skyldi hafa gleymst að tilkynna forstjóranum hvaða nafn markaðsdeildin ætlar að nota á stöðvarnar?  Svona líkt og það gleymdist að tilkynna gamla forstjóranum að samráð væri ólöglegt?

En nú lækkar örugglega bensínreikningurinn á heimilinu okkar þar sem þeir ætla væntanlega að hella sér út í samkeppni með tilheyrandi lækkun á eldsneyti. 


mbl.is Esso-merkið kostar fimmtíu milljónir á ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þó fyrr hefði verið

Ég segi nú ekki meira en það "þó fyrr hefði verið".

Maður hefðu nú haldið að það hefði verið byrjað að selja áfengi um borð í skemmtiferjunni Herjólfi fyrir áratug síðan eða svo.  Það er ekkert sjálfssagðara en að ferðalangar geti slakað aðeins á uppá þilfari með rauðvínsglas í hendi og virt fyrir sér fegurðina þegar þeir sigla um sundin blá.

 


mbl.is Sótt um áfengisleyfi um borð í Herjólfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottur fiskréttur eftir páskana

Sjávarrétta Chow Mein með steiktum núðlum

Uppskrift fyrir tvo til þrjá:

100 gr. smokkfiskur

3-4 stk. skelfiskur

50-85 gr. rækjur

250 gr. Amoy Egg Noodles

2 msk. Amoy Light Soy Sauce

1 tsk. Amoy Sesame Oil

100 gr. strengjabaunir

1-2 vorlaukar, fínt skornir

1/2 eggjahvíta, létt þeytt

2 msk. hrísgrjónavín

1 tsk. salt

1 tsk. sykur

2 tsk. maísenamjöl hrært út með 1 msk. vatni

5-6 msk. olía

Hreinsið smokkfiskinn, skerið í hann krosslaga mynstur að innanverðu og skerið síðan í bita á stærð við frímerki. Setjið í pott með sjóðandi vatni. Fjarlægið bitana úr vatninu þegar þeir verða hvítir og hafa rúllast upp, skolið undir köldu vatni og látið vökvann renna af. Skerið hvern skelfisk í 3-4 bita. Afþýðið rækjurnar og skerið í 2-3 bita hverja ef þær eru stórar.

Hrærið saman eggjahvítu og maísenamjölsblöndu og setjið fiskinn út í. Sjóðið núðlurnar í ca. 3-4 mín. og setjið í sigti. Látið renna á þær kalt vatn, og hrærið 1 msk. af olíu saman við. Hitið um 2-3 msk. af olíu á forhitaðri pönnu, bætið út í baununum og sjávarréttunum og steikið í 2 mín. Setjið salt, sykur, sojasósu, vín og helminginn af vorlauknum, hrærið áfram í u.þ.b. mínútu. Fjarlægið hræruna af pönnunni og geymið. Hitið afganginn af olíunni, bætið við núðlunum og helmingnum af hrærunni. Steikið í 2-3 mín. og sejtið á stóran disk.

Hellið afganginum af hrærunni ofan á núðlurnar og skreytið með vorlauk og sesam olíu. Berið fram með Amoy Chili sósu.

Sígildur réttur frá Canton héraðinu í suðurhluta Kína. Þar sem Canton var fyrsta höfnin í Kína sem opnaðist fyrir erlendum viðskiptum, gætir þar mikils fjölbreytileika í matargerð.


Hver er munurinn?

Hver er munurinn á Kókaíni og meintu Kókaíni?  Er búið að eltast lengi við þetta meinta Kókaín?  Það læðist að mér sá grunur að blaðamaðurinn fái greitt fyrir hvert orð sem hann skrifar því orðið "meint" er klárlega ofaukið í texgtanum Smile  Eða það finnst mér allavega.

 


mbl.is Tekin með rúmt kíló af meintu kókaíni í Leifsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarmenn komnir á skrið og traktorinn orðinn heitur

Framsókn byrjuð, það fer varla framhjá nokkrum manni, konu eða barni að kosningar eru í námd.  Framsóknarflokkurinn með sína pr. meistara eru hreinlega komnir í 3 gír og traktorinn kominn á skrið.

Það er ekki hægt að þverfóta fyrir annaðhvort auglýsingum fyrir þeim td hér á blogginu nú ef maður skreppur í kringluna þá voru þeir þar fyrir páska að gefa páskaegg sömuleiðis í Smáralind og í Mjódd.  Þeir eru bara allstaðar, hélt satt best að segja að það væru ekki svona margir framsóknarmenn til lengur, ég taldi örugglega í kringum 10-15 Wink  Þeir hafa kannski gripið til þeirra ráða að flytja inn erlent vinnuafl til þess að gefa og dreifa bæklingum, hver veit.

 En ef þetta er bara byrjunin, við hverju á maður að búast viku til 10 dögum fyrir kosningar, já nú er stórt spurt?


Ég er bara alveg STÚMM

Eins og Bibba á Brávallagötunni sagði eitt sinn "Ég er bara alveg STÚMM".

Þetta er orðið daglegur fréttafluttningur um ofsakastur um götur stór Reykjavíkursvæðisins.  Ég held að það sé komið í ljós að STOPP átak Umferðastofu virkaði ekki, í það minnsta var virkni þess ekki til lengri tíma.

Hvað er til ráða?  Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör!  En það er alveg orðið deginum ljósara að það verður eitthvað að gera og það strax.  Ég veit ég hef skrifað það áður og ég skrifa það aftur - Það verður að gera eitthvað og það strax!  Maður verður nú samt alltaf jafn hissa þegar maður les um fullorðið fólk haga sér svona í umferðinni, spurning hvort þroski þessa ágæta mans sé á við aldur.

Lögreglan verður að vera enn sýnilegri en hún er í dag, mæla á vel sjáanlegum stöðum svo forvarnagildi radamælinga virki.  Það hlýtur að vera markmið lögreglunnar að beita frekar forvörnum en að reyna nappa sem flesta.


Hann óx ekki frá þjóðinni, heldur þjóðin frá honum

Hvaða voðalegur drami er þetta, má blessaður pilturinn ekki taka út það lífsskeið sem margir 22 strákar já og stelpur taka út á þessum árum.  Þar sem mottó-ið er líklega "lífið er stutt eins gott að njóta þess á meðan það varir". 

Ég tel að hann megi ganga heldur langt ef hann á að vera heilli þjóð til skammar, hugsanlega ætti breska þjóðin að skammast sín fyrir að vera elta piltinn á röndum.


mbl.is Harry prins er landi og þjóð „til skammar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur er að kveldi kominn og allir farnir sælir og glaðir

Þá er ákaflega vel heppnuðu fjölskyldyboði lokið.  Allir farnir heim til síns heima sælir, glaðir og það sem mestu máli skiptir saddir.

Boðið var uppá hátíðakalkún með Ala Katrínar fyllingu

Hátíðarkalkúnn

Það komust allir úr fjölskyldunni nema Heiðar Már bróðir og Katrín kona hans, þau völdu frekar að vera með aðalnum á Seltjarnanesi (nei smá grín) þau voru hjá foreldrum Katrínar sem eru svo óheppinn að búa á nesinu LoLLoLLoL

Páskaborðið  Páskaborðið

En ekki þótti reyndar öllum á heimilinu laukurinn í salatinu góður

oojj ég vil ekki lauk

En ég get glatt landsmenn með því að ég fékk ekki páskaegg en systkynin færðu mér bland í poka, enda talið að það ætti betur við mig en súkkulaðihlunkur með smá nammifyllingu Blush LoL


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband