Leita í fréttum mbl.is

Ja hérna hér

Sem betur fer fór vel.  En stóra spurning dagsins "hvað var í pokanum" þarna er fréttamaðurinn klárlega að missa fótfestuna þegar hann "gleymir" að spyrja um eitt af aðalatriðum atviksins Wink

En svo erum við að segja það að hlutirnir geti bara gerst í Bandaríkjunu...... hum


mbl.is Konu kippt upp úr gjótu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott

Tölvumynd af Norðurturni.

Þessi bygging verður samkvæmt myndinni stórglæsilegt, verður mikill sómi bæði fyrir Kópavogsbúa svo ekki sé nú meira sagt.  En hvað ætla þeir að gera við allt þetta skrifstofurými, nú þegar er bygging hafinn við einn turn sem af einhverri tilviljun er beint á móti þessum.  En án efa verður hægt að finna kaupendur eða leigendur af þessu öllusaman.  En hvað sem því líður væri ég alveg til í að eiga efstu hæðina í öðrum hvorum turninum og búa þar.... flott útsýni þar!

 


mbl.is Fyrsta skóflustungan tekin að Norðurturni við Smáralind
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

N1 - Þvær hendur sínar uppúr rauðu!

Dæmi hver sem vill, þetta eru kannski allt ólögleg merki mjög lík og keimlík??

n1
n4
skylogo
samfylkklofn

Öll eru þau byggð á rauðum grunni með hvítu letri - Spurning hvort þessi þrjú fyrirtæki lögsæki ekki rauða hættumerkið - en ekki veit ég við hvað menn eru ósáttir hjá N4 - Vissulega er þetta svipaður litur en samt ekki eins, varla geta menn skráð bakgrunns litinn sem skrásett vörumerki, eða hvað?  Mér finnst ekki einu sinni leturgerðin lík, en það eru misjafnar skoðanir manna - dæmi hver sem áhuga hefur.

Spurningin hvort N1 þurfi núna að skipta aftur um merki fari kannski í K7 með fjólubláum lit, hver veit....?


mbl.is N4 kannar réttarstöðu sína vegna nafns og firmamerkis N1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eru bestir !!!???

Þarf að spyrja að því...... nei að sjálfssögðu ekki - Svarið er einfalt

KR - KR - KR

Við skulum hrópa þrefalt húrra fyrir forsætisráðherra, land, þjóð og KR

*HÚRRA*

*HÚRRA*

*HÚRRA*

 


mbl.is KR-ingar Íslandsmeistarar karla í körfubolta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjir tímar - á traustum grunni

Þá er góðum landsfundi lokið og maður gengur beinn í baki stoltari en nokkru sinni áður að vera sjálfstæðismaður. Það er mikill styrkur hverjum þeim sem fundið hefur sínum hugsjónum og stefnum ferðafélaga.

Það að sitja landsfund ásamt flokksystkynum sínum sem telja langt á annað þúsund manns er ólýsanlegt. Finna þann mikla kraft, hug og vilja sem býr með hverjum og einum.

Það er óhætt að segja að einkunnarorð landsfundar "nýjir tímar - á traustum grunni" eigi vel við og fullt erindi við okkur sjálfstæðismenn sem og landsmenn alla.

Margar ályktanir voru samþykktar landi og þjóð til heilla, nú er bara eitt eftir og er það að tryggja Sjálfstæðisflokknum öruggt og gott brautargengi í næstu kosningum svo allar þær fjölmörgu og góðu samþykktir nái fram að ganga.

Áfram X-D

P.S. Vinsamlegast takið þátt í skoðanakönnuninni hér til hliðar.

 


Sama og þegið

Hér má sjá eitt af úrunum í „Titanic-DNA“ línunni.

ææ ég held ég segi bara pass í þetta skiptið.  Ef þetta úr kostar 11,5 millur þá er spurning hvað ég ætti að selja mitt úr á, það er allavega flottara Smile


mbl.is Titanic eðalúr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjasta og heitasta æðið í vesturlöndum í dag

Það er alltaf eitthvað nýtt, ferskt æði sem grípur um sig á vesturlöndum.  Sumir hlutir stoppa lengur við en aðrir og geri ég ráð fyrir því að þetta æði vari ekki svo lengi, eða hvað?

Spuring hvenær þetta kemur til Íslands, það er eiginlega einkennilegt að þetta skuli ekki vera komið.  Sá þetta í Þýskalandi fyrr á árinu - spurning að kaupa sér eitt stykki svona í stað fótanuddtækisins sem foreldrar mínir keyptu án efa af mikilli þörf en ekki skinsemi Wink


Svona VERÐ ég að eignast

Ég segi nú ekkert annað en Sverrir hvað?  Hann hefur fengið að prófa skurðgröfu sem ég reyndar játa að mig dauðlangaði að prófa líka........ en í næsta garðpartý ætla ég að mæta á einum svona og hver verður þá að tala um einhverja skurðgröfu..... bíddu skurðgrafa - hvað er það!! ??


Stjörnuspá dagsins

Alltaf gaman að kíkja á stjörnuspánna af og til,

HRÚTUR: Liðið treysir á þig að koma verkefninu í höfn, og þú treystir líka á þig. Þú getur heimtað af sjálfum þér að hrista þetta fram úr erminni, en lausnarorðið er húmor. Taktu þessu létt og þá gengur það upp.


Nýr bloggvinur

Jæja þá er ein stoltasta mamman á landinu komin með bloggsíðu. 

Ég er svo heppinn að þekkja hana frá því að við vorum skólasystkini fyrir rúmum áratug síðan, ef þið spyrjað hana þá reikna ég með að hún segi fyrir ca 3-5 árum síðan Smile

Elísabet Lára

Ég er að sjálfssögðu að tala um ofurmömmuna Elísabetu Láru Tryggvadóttur.  Endilega kíkið inn á bloggið hennar með því að smella hér.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband