11.1.2008 | 17:45
Góð tillaga sjálfstæðismanna einróma samþykkt
Það var ánægjulegt að sjá hve vel hverfisráð Breiðholts tók í tillögu sjálfstæðismanna um lausn á þeim umferðarhnút sem verið hefur á þessu svæði þegar mikill ös er. Tillaga sjálfstæðismanna er hvort tveggja í senn umhverfisvæn því græn svæði stækka og rýmkar fyrir almenningssamgöngum sem og einkabílnum.
Hér má sjá tillögu sjálfstæðismanna í eins og hún var borinn upp og var einróma samþykkt.
Tillaga lögð fram á fundi hverfaráðs Breiðholts fimmtudaginn 10. janúar 2007
Sjálfstæðismenn í hverfisráði Breiðholts leggja til að gatnamótum Bústaðarvegar og Reykjanesbrautar verði breytt með þeim hætti að gerð verði aukaakrein meðfram Bústaðavegi í norður sem liggur í göng undir Reykjanesbrautina. Þá verði jafnframt gert hringtorg fyrir ofan Sprengisand og grænt svæði við íbúðabyggð austast í Fossvogi stækkað. Áhersla verði lögð á umhverfisvæna lausn sem tekur mið af því að í næsta nágrenni eru Elliðaárnar. Þá verði séð til þess að nýi vegurinn liggi eins nálægt núverandi vegi og kostur er þannig að ekki fari of mikið landsvæði í þessa miklu samgöngubót fyrir borgarbúa. Tillögunni verði vísað til umhverfisráðs og framkvæmdaráðs borgarinnar.
Greinargerð: Tillagan felur í sér meira umferðaröryggi, minni slysatíðni, flæðandi og greiðari umferð í báðar áttir. Þá gerir tillagan ráð fyrir, eins og sjá má á mynd sem fylgir tillögunni, að umferðarljós verða óþörf á þessum stað og að ekki verður lengur hægt að taka vinstri beygju frá Bústaðavegi yfir á Reykjanesbraut. Við gerð þessarar tillögu voru umhverfissjónarmið höfð að leiðarljósi og tillagan útfærð með þeim hætti að ekki yrði of mikið rask við Elliðaárdalinn og að þessi samgöngubót væri ekki fyrirferðamikil í umhverfinu. Þá var einnig hugað að því að stækka grænt svæði sunnan við Bústaðaveg sem yrði til aukinna þæginda fyrir nærliggjandi íbúabyggð austast í Fossvogi. Með tillögunni teljum við að hægt sé að draga töluvert úr mengun því eins og ástandið er nú við þessi gatnamót standa bílar í lausagangi þarna í löngum röðum á álagstímum en það hefur verið margrannsakað að bílar í lausagangi menga mjög mikið og auka þar með svifrykið í borginni.
![]() |
Vilja aukaakrein meðfram Reykjanesbraut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.1.2008 | 22:36
Til bjargar Orkuveitunni
Auðvitað er ég ekkert frábrugðin öðrum tækjasjúklingum þegar ég segi einfaldlega "já - takk" en eitthvað hlýtur tækið að eyða af rafmagni.
Ég er nú reyndar enn að bíða eftir að túbusjónvarpið gefi upp öndina til þess að hafa afsökun til þess að "fjárfesta" í ný tæki sem er örlítið þynnra, skarpar og fallegra.
![]() |
Stærsti skjár í heimi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2008 | 12:11
Áramótaheitið frágengið
Það var góður dagur í gær þegar ég kláraði áramótaheitið fyrir árið 2008. Það var ekki til neins að bíða og afsakanabankinn var uppurinn og því var mér ekki til setuna boðið og best að drífa sig af stað. Mörgum finnst eflaust ekki mikið til áramótaheitsins koma en fyrir mig var þetta bara hið mesta afrek.
Áramótaheitið 2008 var að ganga upp á fjall okkar reykvíkinga þ.e Esjuna.
Í gær fór átak af stað í vinnunni með það mikla markmið að ganga á Hvannadalshnjúk í lok apríl. Æfingar eða undirbúningur hófst í gær laugardag með því að hittast við Esjurætur kl 09.00 og ganga upp að "Steininum" sem er ofarlega í fjallshlíðum Esjunnar.
Reyndar verð ég að játa það að ég hafði ekki hugmynd um hvar þessi umræddi "Steinn" væri á fjallinu og þegar ég var kominn upp í miðja fjallshlíð þá sá ég ekkert nema steina og þar var meðal annars "Formannssteinninn" og þeir sem ég hitti sem annaðhvort tóku framúr mér eða þeir sem voru að koma niður var svarið alltaf hið sama "hann er bara rétt hérna fyrir ofan" og eftir þær upplýsingar get ég ekki sagt annað en að setningin "rétt hérna fyrir ofan" er ansi teygjanlegt, svo ekki sé nú meira sagt. En mikið var nú samt skemmtilegt að komast á áfangastað eins og sést á myndinni hér að ofan, þá er þar fríður hópur fólks sem hittist hjá "Steinunum" og vorum við svo heppinn að vinur okkar og starfsfélagi var með myndavélasíma til þess að festa afrekið á filmu (eða öllu heldur minniskubb :-)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.1.2008 | 00:03
Skemmtilegur annál hjá vefÞjóðviljanum þetta árið.
Það er skemmtileg upprifjun á árinu nú á vefÞjóðviljanum, nokkrar tilnefningar þar fá mann til þess að brosa út í annað. Hægt er að skoða annálinn með því að smella hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2008 | 22:44
66 orðuveitingar frá forseta - tilefnislausar?
Ég tók til gamans saman lista yfir þá einstaklinga sem ég get ekki betur séð en hafi fengið orðuveitingar frá forsetanum á árunum 2000 til 2007. Mér telst til að þetta séu í kringum 66 einstaklingar sem hlotið hafa þann vafa sama heiður að fá orðu fyrir það eitt að hafa mætt til vinnu, unnið störf sín og þegið laun fyrir.
Sérstaka athygli vekja fjórar veitingar til fv. formanna orðunefndar og forsetaritara, merkilegt það.
Hugsanlega væri rétt að orðunefnd þyrfti að skila rokstuðningi á tillögum sínum sem birtur yrði almenningi t.d á heimasíðu forsetaembættisins (www.forseti.is)
2007
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis,
Guðrún Kvaran orðabókarritstjóri,
Margrét Friðriksdóttir skólameistari,
Sverrir Hermannsson safnamaður,
Gunnlaugur Claessen, forseti Hæstaréttar,
Einar Sigurðsson, fv. landsbókavörður,
Helga Steffensen, brúðuleikstjóri,
Hermann Sigtryggsson, fv. æskulýðs- og íþróttafulltrúi,
Kristín Ingólfsdóttir, háskólarektor,
Bolli Þór Bollason ráðuneytisstjóri,
Margrét Eybjörg Margeirsdóttir félagsráðgjafi
Þórir Stephensen fyrrv. dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey.
2006
Margrét Indriðadóttir, fv. fréttastjóri.
Anh-Dao Tran, kennslufræðingur og verkefnisstjóri,
Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur,
Jóhannes Bergsveinsson, fv. yfirlæknir,
Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður, Reykjavík,
Örnólfur Thorsson, forsetaritari,
Sr. Bernharður Guðmundsson, rektor,
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra,
Vigdís Magnúsdóttir, fv. forstjóri Landspítalans.
2005
Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, prestur,
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri
Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar,
Valgerður Sverrisdóttir, ráðherra,
Örlygur Kristfinnsson, safnstjóri,
Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra,
Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns,
Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli.
2004
Ellert Eiríksson fv. bæjarstjóri,
Margrét Gísladóttir forvörður,
Ragnheiður Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri
Tryggvi Gíslason fv. skólameistari.
2003
Berglind Ásgeirsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri OECD,
Grímur Gíslason fréttaritari,
Guðmundur H. Garðarsson fv. alþingismaður,
Sigrún Klara Hannesdóttir landsbókavörður,
Gunnar Snorri Gunnarsson ráðuneytisstjóri, Reykjavík,
Halldór Haraldsson skólastjóri,
Haraldur Stefánsson slökkviliðsstjóri
Hulda Valtýsdóttir fv. formaður orðunefndar.
2002
Garðar Gíslason hæstaréttardómari,
Stella Guðmundsdóttir fyrrverandi skólastjóri,
Ásgeir Pétursson fv. formaður orðunefndar,
Gunnsteinn Gíslason oddviti í Árneshreppi á Ströndum.
Ólafur Jónsson fv. bæjarfulltrúi,
Valgeir Þorvaldsson forstöðumaður Vesturfarasetursins,
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari, Reykjavík.
2001
Sigurður Hallmarsson fv. skólastjóri
Björn Jónsson fv. prestur,
Egill Bjarnason ráðunautur,
Ingibjörg Pálmadóttir fv. ráðherra,
Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri,
Svavar Gestsson sendiherra og fv. ráðherra, Reykjavík,
Þorsteinn Gunnarsson rektor,
Stefán Lárus Stefánsson, forsetaritari.
2000
Ólafur Haukur Árnason ráðunautur,
Þorkell Bjarnason ráðunautur,
Bolli Gústavsson, vígslubiskup Hólum í Hjaltadal,
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra,
Halldór Blöndal, forseti Alþingis
Herra Jóhannes Mathijs Gijsen, biskup kaþólskra,
Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup,
Sigurður Sigurðsson, vígslubiskup, Skálholti,
Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri, Seltjarnarnesi
Sólveig Pétursdóttir, kirkjumálaráðherra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
1.1.2008 | 20:11
3 fá orðu fyrir það eitt að mæta til vinnu !
Orðuveitingar forsetans verða æ meira hlátursefni eftir því sem fleiri fá orðuna. Með gegndarlausu austri orðunnar verður hún marklaus með árunum. Því skal gæta hófs og aðeins veita þeim orðu sem unnið hafa til hennar.
Það vekur sérstaka athygli að í þessum hóp er fólk sem nær einungis fær orðu fyrir það eitt að mæta til vinnu, sinna störfum sínum og þiggja laun fyrir. Eða allavega get ég ekki séð neina aðra ástæðu fyrir því að
Bolli Þór Bollason ráðuneytisstjóri, Margrét Eybjörg Margeirsdóttir félagsráðgjafi og
Þórir Stephensen fyrrv. dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey fengu orðu í dag.
Aðrir sem veittir voru orðu voru
Bjarni Ásgeir Friðriksson íþróttamaður og ólympíuverðlaunahafi, Björgvin Magnússon fyrrv. skólastjóri, Erlingur Gíslason leikari fyrir framlag til íslenskrar leiklistar og menningar, Inga Lára Baldvinsdóttir sagnfræðingur, Ingibjörg Þorbergs tónskáld fyrir framlag til íslenskrar tónlistar, Ólafur Elíasson myndlistarmaður, Sigríður Pétursdóttir bóndi, Sigrún Eldjárn rithöfundur.
Þau eru að sjálfssögðu öll vel að orðunni kominn. En hvar eru allir þeir sem unnu einhverskonar hetjudáð á árinu? Voru enginn slík verk unninn og hvar eru til dæmis orður til þeirra sem stóðu sig með prýði á ólympíuleikum fatlaðra, svo eitthvað sé nú nefnd.
Það er hreinlega orðinn spurning hvort maður þurfi ekki að fara senda inn á skrifstofu orðunefndar umsóknir í hvert skipti sem einhver gerir eitthvað gott þ.e annað en að mæta til vinnu! Reyndar finnst mér orðið löngu tímabært ég hljóti orðu fyrir störf mín
![]() |
Ellefu sæmdir heiðursmerkjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.1.2008 | 12:08
Kryddsíld og áramótaskaupið - Tveir umdeildir þættir á sama degi
Það væru ekki merkileg tíðindi að Stöð2 og Rúv væru að sýna "ódýra" og lélega innlenda dagskrágerð nema fyrir það eitt að báðir þættirnir voru sýndir á sama degi.
Fyrst ber að nefna Kryddsíld Stöðvar 2
Það vantaði hæfan stjórnanda til þess að stýra þessum þætti, að horfa upp á Sigmund Ernir eyðileggja algjörlega spjall stjórnmálaleiðtoga landsins var hreinlega grátlegt. Með egin ego-i hefur hann rutt úr vegi öðrum stjórnanda þáttarins. Hingað til hafa þeir verið tveir stjórnendurnir, sem komið hafa að málunum oft frá mismunandi sjónarhornum. Reyndar vakti það einnig athygli mína hvað þjónarnir höfðu í fullu fangi með að skenkja í glas þáttarstjórnandans, og merkilegt að Steingrímur skildi ekki gera athugasemd við það.
Annað atvik í Kryddsíldinni sem vakti athygli og kom manni hreinlega til þess að hlægja var yfirlýsing yfir mótmælanda landsins Steingríms J. Sigfússonar, það skildi öllum vera það ljóst að hann var ekki í boði Alcan og væri ekki að tjá skoðanir þeirra heldar var hann boðberi enginn skoðana. Reyndar kom fram að hann hafði átt í erfiðleikum með að taka ákvörðun um hvort hann ætti yfir höfuð að mæta í þáttinn eða ekki vegna þess að Alcan væri að styrkja þáttinn og lagði hann hreinlega til að kannað væri hvort það væri eðlilegt fyrirtæki gæti keypt/styrkt þætti með þessum hætti. Reyndar man ég ekki eftir því að Steingrímur hafi verið á móti því að ORA styrkti þáttinn í mörg ár..... það er kannski ekki sama hvaða fyrirtæki það er?
Þetta var hreint út sagt lélegasta skaup sem ég hef á ævi minni séð. Hér á heimilinu var hlegið afskaplega lítið ef bara nokkuð. En við getum hinsvegar glaðst yfir því Kaupþingsauglýsingin var mjög fyndinn svo var Remax auglýsingin mjög flott og skemmtileg frumsýning það.
Ég reyndar skil ekki hvað það er svona viðkvæmt hjá fólki að það komi smá hlé í áramótaskaupið - Rúv fékk þó eitthvað til baka af þessum tugum milljónum sem það brenndi við gerð áramótaskaupsins. Þeim peningum hefði svo sannarlega verið betur varið í önnur verkefni ! svo ekki sé nú meira sagt. Spurning hvort landinn hefði ekki hlegið meira ef það hefðu verið sýndar klippur af mistök í fréttatímum, spaugstofunni og loks áramótaávarp útvarpsstjóra!
(Sagt er að skaupið í ár hafi kostað 84 milljónir - ef það er rétt ætti útvarpsstjóri hreinlega að segja af sér og skammast sín)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
31.12.2007 | 14:08
Enginn áhætta
Enginn áhætta - aukinn ábyrgð.
Það verður seint sagt um Árna Ómar og félaga hans að þeir séu ekki allir að vilja gerðir svo hægt sé að kveikja upp í áramótabrennum höfuðborgarbúa. En í þessum málum má alls ekki taka neina áhættu því ábyrgðin er mikill sem hvílir á slökkviliði, lögreglu, veðurathugunarfólki og að ógleymdum brennustjórunum. Því ef eitthvað færi úrskeiðis þá er þetta fólk sem höfuðborgarbúar myndu fyrst benda á og segja "af hverju leyfðuð þið að kveikja - þetta er ykkur að kenna".
Ég tel að þessi ákvörðun hafi síður en svo verið tekinn í fljótfærni heldur hefur hún án efa verið tekinn að vel yfirlögðu ráði.
Eins og eitthvert tryggingarfélag sagði eitt sinn "þú tryggir ekki eftir á" eða eins og Bibba á Brávallargötunni sagði eitt sinn..... " það er of seint að byrgja barinn þegar barnið er dottið í það"
Ég læt það ógert að segja hvort orðatiltækið er betra þó það síðarnefnda komi manni frekar til þess að brosa, ég virði þá niðurstöðu sem Árni Ómar og samstarfsfólk hans hafa ákveðið og fanga því að ekki sé tekinn nein áhætta í þessum málefnum.
![]() |
Engar brennur í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2007 | 01:05
VARÚÐ - VARÚÐ, Hætta á ferð (úlfur úlfur)
Það mætti halda að þeim hefði verið gefin stórgjöf s.s. hest, utanlandsferð eða jeppa miðað við fréttaflutningin af þessari gjöf og ég tala nú ekki um bloggfærslunnar, þar sem skrifað er allt frá því að þetta sé saklaus smágjöf uppí mútur af grófustu gerð.
Ég einfaldlega sé ekkert athugavert við það að Landsbankinn gefi ráðherrum lítilsháttar gjöf í tilefni jólanna. Þætti það í reynd skrítið ef þeir gerðu það ekki. Þar sem þetta fólk á án efa í miklum samskiptum allt árið um kring. Ég fékk t.d. veglega gjöf frá Kaupþing í fyrra, hinn margfræga hatt sem var svo brauðkarfa eftir allt saman, en þar sem það hefur harðnað mikið á dalnum á þeim bænum fékk ég forláta dagatal sent til mín núna sem fór auðvitað beinustu leið í ruslakörfuna með öðrum auglýsingasneplum.
En aftur af gjöfum til ráðherra. Það ætti eflaust að setja einhverjar reglur sem færu yfir gjafir til forseta, ráðherra, þingmanna og annarra opinberra starfsmanna hjá ríki, borg eða bæ. Það mætti hugsa sér til að mynda að gjafir sem metnar væru yfir 20.000 krónum eða svo yrðu gerðar opinberar á heimasíðum þeirra stofnanna sem starfsmaðurinn vinnur hjá eða að sett upp yrði heimasíðan www.opinberargjafir.is þar sem birtur yrðu listi allra þeirra starfsmanna ríkis, borgar eða bæja sem fengju gjafir. Þar kæmu fram upplýsingar um gjöfina, andvirði og þann sem gefur.
En á meðan rætt er um þessa 2.500 króna gjöf bankans til ráðherra þá væri ekki úr vegi að spyrja hvað fólki finnst um það þegar forseti þjóðarinnar hefur flogið oftar en einu sinni í boði fyrirtækja útí bæ? Þær ferðir kosta án efa meira en eitt stykki Rioja vín Muga árg. 2003!
Ég hef reyndar áður skrifað hér að stjórnarráðið ætti auðvitað að eiga einkaþotu fyrir forsetan og ráðamenn, líkt og önnur lönd hafa til taks fyrir sitt fólk.
![]() |
Ráðherrar fengu vín frá Landsbankanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2007 | 19:21
Undantekning eða regla?
Það er spurning hvort þessar sögur séu undantekning eða að verða að reglum? Það liggur við að maður lesi fréttir á hverjum degi um fólk sem lætur sig hverfa og birtist svo að nýju annað hvort minnislaust eða bara févana.
Ég man að fyrir nokkru síðan kom maður aftur til landsins sem talinn var af. Sá ætlaði að segja sögu sína eftir að hann væri búinn að jafna sig á endurlífguninni, en ekkert hefur spurst til hans síðan. Vissulega kemur manni sú saga lítið sem ekkert við, en það gæti verið áhugavert að heyra hana.
![]() |
Maður handtekinn tveim árum eftir sjálfsmorð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 19.8.2011 Þetta er var ekki okkur að kenna!
- 7.8.2011 Munu flugmálayfirvöld ekki gera ástandsskoðun á vélum Iceland...
- 5.8.2011 Sagan endurtekur sig... þetta eru ekki við heldur þeir!
- 5.8.2011 Er Iceland Express þjónustufyrirtæki?
- 11.3.2010 Kristján Þór - Styrkir sig með hverjum deginum og þorir að se...
Eldri færslur
- Ágúst 2011
- Mars 2010
- September 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Fjölmiðlar
Tenglar á þá fjölmiðla sem ég les, þekki eða bara veit af!
- MissB
- SSB - Sjónvarpsstöð Sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti Stútfullur fróðleiksbrunnur
- Blaðið Það er bara þarna
- Deiglan Alveg ómissandi lesning
- Eyjafréttir Ekki spyrja mig afhverju !
- Þórshafnarfréttir Set þetta inn bara fyrir Rúnar
- Austurglugginn Allt gott kemur að austan
- Vísir Keyptar fréttir....? Gæti verið, hver veit
- Morgunblaðið...Málgagn þjóðarinnar Það eina sem þarf !
Skemmtilegir tenglar
Hér mun ég setja áhugaverða tengla sem gætu komið sér vel svona til þess að slóra eða stytta daginn.
- Handverkskona ársins 2007 -Miss B Besta handverkskona landsins og svei mér þá ef víða væri leitað.
- Hafsteinn - bloggar Heimsborgari á íslenskan mælikvarða, ferðast um landið jafn oft og reykvíkingar fara niður Laugarveginn
- Viltu vera í sambandi Ekkert vodafone...aðeins það besta Síminn
- Eru ekki allir tryggðir Þar sem tryggingar snúast um fólk!
- Reykjavík Nauðsynlegt til að vita hvað er að gerast í borginni
- Sjálfstæðisflokkurinn Máttastólpi íslenskt samfélagsins
- Jólahúsið Það styttist hratt í jólin.
Bloggvinir
-
Birna M
-
Dögg Pálsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Egill Rúnar Sigurðsson
-
Einar Lee
-
Eiður Ragnarsson
-
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
-
Vilberg Tryggvason
-
Púkinn
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
gudni.is
-
Gunnar Björnsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Haraldsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Heiðar Már Guðlaugsson
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Jórunn Sigurbergsdóttir
-
Kári Sölmundarson
-
Grafarholtssókn
-
Kristbjörg Sigurðardóttir
-
Lady Elín
-
Guðjón Baldursson
-
Alfreð Símonarson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
viddi
-
Ólafur fannberg
-
Pálína Erna Ásgeirsdóttir
-
Páll Vilhjálmsson
-
Óþekki embættismaðurinn
-
Reynir Jóhannesson
-
Rýnir
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sjálfstæðissinnar
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Halldór Sigurðsson
-
Þorsteinn Gunnarsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefanía Sigurðardóttir
-
Sveinn Hjörtur
-
Sveinn Tryggvason
-
Þóra Sigurðardóttir
-
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
-
TómasHa
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Vefritid
-
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
-
Vilborg G. Hansen
-
Birgir R.
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnar Gunnarsson
-
Kristján Guðmundsson
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Theodór Bender
165 dagar til jóla
Af mbl.is
Erlent
- Keyrir öryggisbúnaðurinn um þverbak?
- 800 drepnir í leit að hjálpargögnum
- Skila um 2.000 ára gömlum gripum til Egyptalands
- Ljósmyndarar sniðganga Oasis
- Á þriðja tug lagðir inn vegna gruns um ofneyslu
- Slökkt á eldsneytisflæðinu rétt eftir flugtak
- Umfang brotanna eigi sér einfaldlega ekki fordæmi
- Kúrdar leggja niður vopn
- Tollar upp á 35% koma Kanada í opna skjöldu
- Kæru læknisins vísað frá
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.7.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 175907
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Áramótaskaup ársins 2007