Leita í fréttum mbl.is

Kryddsíld og áramótaskaupið - Tveir umdeildir þættir á sama degi

Það væru ekki merkileg tíðindi að Stöð2 og Rúv væru að sýna "ódýra" og lélega innlenda dagskrágerð nema fyrir það eitt að báðir þættirnir voru sýndir á sama degi.

Fyrst ber að nefna Kryddsíld Stöðvar 2

Það vantaði hæfan stjórnanda til þess að stýra þessum þætti, að horfa upp á Sigmund Ernir eyðileggja algjörlega spjall stjórnmálaleiðtoga landsins var hreinlega grátlegt.  Með egin ego-i hefur hann rutt úr vegi öðrum stjórnanda þáttarins.  Hingað til hafa þeir verið tveir stjórnendurnir, sem komið hafa að málunum oft frá mismunandi sjónarhornum.  Reyndar vakti það einnig athygli mína hvað þjónarnir höfðu í fullu fangi með að skenkja í glas þáttarstjórnandans, og merkilegt að Steingrímur skildi ekki gera athugasemd við það.

Annað atvik í Kryddsíldinni sem vakti athygli og kom manni hreinlega til þess að hlægja var yfirlýsing yfir mótmælanda landsins Steingríms J. Sigfússonar, það skildi öllum vera það ljóst að hann var ekki í boði Alcan og væri ekki að tjá skoðanir þeirra heldar var hann boðberi enginn skoðana.   Reyndar kom fram að hann hafði átt í erfiðleikum með að taka ákvörðun um hvort hann ætti yfir höfuð að mæta í þáttinn eða ekki vegna þess að Alcan væri að styrkja þáttinn og lagði hann hreinlega til að kannað væri hvort það væri eðlilegt fyrirtæki gæti keypt/styrkt þætti með þessum hætti.  Reyndar man ég ekki eftir því að Steingrímur hafi verið á móti því að ORA styrkti þáttinn í mörg ár..... það er kannski ekki sama hvaða fyrirtæki það er?

Áramótaskaup ársins 2007

Þetta var hreint út sagt lélegasta skaup sem ég hef á ævi minni séð.  Hér á heimilinu var hlegið afskaplega lítið ef bara nokkuð.  En við getum hinsvegar glaðst yfir því Kaupþingsauglýsingin var mjög fyndinn svo var Remax auglýsingin mjög flott og skemmtileg frumsýning það.

Ég reyndar skil ekki hvað það er svona viðkvæmt hjá fólki að það komi smá hlé í áramótaskaupið - Rúv fékk þó eitthvað til baka af þessum tugum milljónum sem það brenndi við gerð áramótaskaupsins.  Þeim peningum hefði svo sannarlega verið betur varið í önnur verkefni ! svo ekki sé nú meira sagt.  Spurning hvort landinn hefði ekki hlegið meira ef það hefðu verið sýndar klippur af mistök í fréttatímum, spaugstofunni og loks áramótaávarp útvarpsstjóra!

(Sagt er að skaupið í ár hafi kostað 84 milljónir - ef það er rétt ætti útvarpsstjóri hreinlega að segja af sér og skammast sín)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Get alls ekki verið sammála um skaupið -
Eitt af betri skaupum síðari ára.
Að vísu gengur það upp,ef fólk hefur fylgst með fréttum á árinu

Halldór Sigurðsson, 1.1.2008 kl. 14:00

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Gleðilegt nýtt ár.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 1.1.2008 kl. 14:38

3 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Gleðileg jól og gleðilegt ár Óttarr minn

Ég er sein að koma með jólakveðju, hef ekki verið á blogginu í nokkra daga.

En ég tók ekki eftir þessu með Kryddsíldina, fannst þátturinn ekki svo agalegur en skaupið var hrein hörmung að mér fannst, alveg fáránlegt að byggja það á einhverjum framhaldsþætti sem mörgum er alveg skítsama um

En gleðilegt ár enn og aftur og takk fyrir það gamla

Kveðja,

Inga Lára  

Inga Lára Helgadóttir, 1.1.2008 kl. 15:28

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Já Óttarr gleðilegt ár  2008 og þakka allt i liðinum árum,sammála þessu með skaupið arfalélegt/en mer fannst Kriddsildin bara góð og Sigmundur náði þessu bara vel út urr Formönnum flokkana/Kveðja Halli Gamli

Haraldur Haraldsson, 1.1.2008 kl. 16:24

5 Smámynd: Óttarr Makuch

Ég er nú svo lánssamur Halldór minn að hafa horf á að ég flest alla fréttatíma ársins bæði á RUV og Stöð2 og hlustað á fjöldan allan af útvarpsfréttum og samt fannst mér flugslys ekkert fyndið .

Óttarr Makuch, 1.1.2008 kl. 20:22

6 identicon

Þú horfir þá greinilega ekki á mikið annað en þessa umræddu fréttatíma því flugslysið var prýðisvísun í þátt einn sem sýndur hefur verið á stöð 2 í nokkur ár, nefnilega Lost.

kolbrún (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 20:36

7 Smámynd: Óttarr Makuch

Kæra Kolbrún,

Ég sá all nokkra þætti af Lost en þrátt fyrir það gerir það flugslys ekki broslegt í áramótaskaupi sjónvarpsins, því miður.

En kannski ákveður Páll þe ef hann verður enn sjónvarpsstjóri að sólunda 90-100 milljónum af okkar peningum á næsta ári og hafa það fyndið.  Hver veit nema það verði tvö auglýsingahlé í skaupinu 2008.

Óttarr Makuch, 1.1.2008 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband