Leita í fréttum mbl.is

Vinnumaður í Þerney

Þerney er án efa ein merkilegasta perla okkar reykvíkinga.  Þegar ég var fjórtán ára gamall naut ég þeirra forréttinda að fá að vera vinnumaður í Þerney hjá æðabóndanum Guðvarði.  Snæða grillaðan lunda nú eða fá hamborgara úr dós frá Ora.

Á þeim tíma sem ég bjó í eyjunni eignaðist ég marga góða vini enda algengt hjá bátafólki að koma við í eyjunni, þá var að sjálfssögðu venja að koma við í eina "einbýlishúsi" eyjunnar og óska eftir landvistaleyfi sem alltaf var jafn gaman að veita. 

En hvað fækkun á Sílamávum þá hlýtur það að vera fagnaðarefni að verið sé að kanna leiðir til þess að draga úr fjölgun mávanna sem er flestum til ama.


mbl.is Önnur hver beita svæfði sílamáv
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

12,73% félaga - er það ekki að segja okkur eitthvað?

Ég er einn félagsmanna VR - veit reyndar ekki af hverju ég er að halda í við þetta félag en hugsanlega af því maður er svona íhaldssamur, hver veit.

En að 12,73% félagsmanna skyldu hafa tekið þátt í kosningunni er auðvitað alveg afleidd niðurstaða og alls ekki til þess að hrósa húrra yfir.  En hugsanlega er til skýring á þessu þar sem vefurinn lá niðri um tíma í dag og ekki möguleiki á að kjósa á meðan.  Allavega þegar ég ætlaði að setja X-ið við NEI þá var það ekki hægt þar sem sagt var að vefurinn væri óaðgengilegur um stund.  Það er auðvitað auðveldasta leiðin til þess að fá samningin samþykktan þ.e að gefa svona fáum tækifæri á að taka þátt.  En auðvitað ætla ég ekki stjórn VR að beita slíkum bolabrögðum.

Fyrir mitt leiti þá gera þessir samningar aðeins eitt fyrir mig og það er að ýta undir að ég segi mig úr VR endanlega þar sem þeir gera lítið sem ekkert fyrir mig og þá væntanlega myndi ég færa skyldusparnaðinn í leiðinni enda ávöxtun annarsstaðar síður en svo lakari.

Ég get þó upplýst það hér að ég mætti eitt sinn á morgunverðafund með formanni VR og það sem formaður VR boðaði þar kom reyndar ekki í ljós við þessa kjarasamninga.  Þar ræddi hann um m.a að fækka þyrfti sumarleyfisdögum þar sem slíkt væri að gerast í þeim löndum sem við værum að bera okkur saman við.  En annars var þessi fundir fyrst og fremst upprifjun á sögu VR frá stofnun til dagsins í dag s.s. eitthvað sem maður hefði getað lesið á veraldarvefnum eða í fræðibókum en ekki þurft að fá formann félagsins til þess að segja manni frá.  Enda fyrir vikið komust ekki allar spurningar að sem fundarmenn hefðu gjarnan viljað spyrja um.

 


mbl.is Verslunarmenn samþykktu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hérna hér

Mikið lifandi skelfing er þetta fólk öflugt að geta hlaupið 100km - nú er spurning hvort hlauparinn í vinahópnum taki ekki þátt í þessu hlaupi - Þór hvað segirðu ????

Það næsta sem ég kæmist því að taka þátt væri að standa við eina vatns stöðina eða verið einhverskonar vegvísir því það er alveg klárt að ég gæti ekki hlaupið þessa vegalengd.


mbl.is 100 km hlaup í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

567 0300

Er símanúmerið hjá Ökuskólanum í Mjódd - spurning um að panta námskeið fyrir þennan ökumann strax svo hann því hann er klárlega ekki alveg með það á hreinu hvernig best er að haga akstri bifreiðar.
mbl.is Bíll í Reykjavíkurtjörn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísilagt Apavatn

IMG_0032

Það getur verið notalegt að horfa út um gluggann þegar það er snjókomma og blind bylur.  Sérstaklega ef maður hefur góða bók og heitt súkkulaði til þess að ylja sér.  En hér við Apavatn er 4 stiga frost og smá gola en enginn snjókomma.  Til staðfestingar á því þá fór ég út í kuldann og tók eina mynd yfir ísilagt vatnið.


mbl.is Vont veður í Vestmannaeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Músapels

white_lratPels er í raun það eina sem mér dettur í hug þegar menn auglýsa eftir 3.200 músum, ekki að ég viti neitt um það hve margar mýs þarf til að búa til pels.  Varla ætla þeir að þjálfa þær til þess að leita af fíkniefnum?


mbl.is 3.200 hvítar mýs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Táslur, mokstur og kertaljós

Hér við Apavatn er búið að vera frábært veður í dag, sól, fimm stiga frost og blanka logn.  Hér erum við ásamt tengdaforeldrum mínum í sumarbústað Rafiðnaðarsambandið sem er sannkölluð höll sem hefur uppá að bjóða öll þægindi s.s. fallegt útsýni, stóra verönd með heitum potti, flatsjónvörp svo ekki sé nú talað um nettenginguna.  Það liggur við að þetta sé flottara en heima hjá manni já svo ekki má nú gleyma fjarstýringunni sem notuð er til þess að stilla ljósin bæði innan sem utandyra.

IMG_2220 

IMG_2233

IMG_0021

Allir hafa fundið eitthvað við sitt hæfi, sumir hafa legið með tærnar uppí loft meðan aðrir hafa farið út til þess að moka veröndina.  Nú svo er ekki hægt annað en að búa til snjóhús þegar færi gefst og eiga svo notalega stund inni í því með kertaljós.

 

 


Flott hjá þeim

Frábært hjá Söndru og Sigurði, þarna eru listamenn á ferð, ótrúlega vel gert.  Nú er spurning hvort málshöfðunar glaðir ameríkanar fari í mál við þau vegna höfundarréttar...
mbl.is Snjómer Simpson á Reykhólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

..... Það er Síminn

Þessi auglýsing er án efa ein best gerða auglýsing sem framleidd hefur verið á Íslandi hvort heldur þegar litið er til handrits eða kvikmyndatöku.  Það er einnig sjálfgæft að auglýsingar vekji eins mikla eftirtekt og umtal líkt og þessi auglýsing gerði.

Frábært starf auglýsingastofunnar sem og markaðsdeildar Símans, til hamingju með glæsilegan árangur. 

Síðasta kvöldmáltíðin besta auglýsingin

mynd
MYND/Síminn

Síðasta kvöldmáltíðin með þeim Júdasi og Jesú Kristi var valin besta sjónvarpsauglýsingin í keppni Ímarks um Íslensku auglýsingaverðlaunin. Síminn auglýsti þar farsímaþjónustu. Sama auglýsing hreppti einnig verðlaun sem besta dagblaðaauglýsingin. Fyrirtækið EnnEMM framleiddi auglýsingarnar.


Það sem ekki er sagt

Fréttin er einna helst merkileg fyrir það sem ekki stendur í henni.  Einhvera hluta vegna ákveður mbl.is að birta hálfkláraða frétt sem segir nánast ekki neitt um stöðu mála í borginni.  Merkilegt að það skuli vanta hve stórt úrtakið var og hve há prósentan var sem svaraði könnuninni.  Einnig vantar í fréttina hvenær þessi könnun er gerð þ.e er þetta fyrstu vikuna í febrúar eða frá fyrsta til tuttugasta og níunda febrúar??  Það hlýtur að skipta töluverðu máli sérstaklega í ljósi þess hve neikvætt umtal borgarmálin hafa fengu framundir miðjan mánuð.

En vonandi horfir þetta allt til betri vegar og áhugavert verður að sjá könnun frá Gallup í mars og apríl, ég tel að þær muni frekar sýna hvernig staðan er og ég tala nú ekki um að þá fyrst gefst fólki tækifæri á að mynda sér skoðun á þeim miklu og góðu verkum sem framundan eru í borginni.


mbl.is Aðeins 9% treysta borgarstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband