Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Frábær dagur - Súkkulaðiegg í vinning

Mynd 425400

Þá er fyrsta páskaeggjaleit sem haldinn hefur verið í Elliðárdal lokið.  Það er óhætt að segja að það hafi verið margt um mannin því þarna voru saman komin afar, ömmur, mömmur og pabbar ásamt börnum og barnabörnum líklegt er talið að þarna hafi verið saman komin í kringum 1500 manns.  Það er óhætt að segja að Breiðhyltingar og Árbæingar láta ekki veðrið aftra sér við að koma og leita af eggjum og skemmta sér í góðra vina hópi.

Takk fyrir daginn þetta var stórskemmtileg skemmtun.


mbl.is Margir leituðu að páskaeggjum í Elliðaárdal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beltislaus og talandi í gsm

Í fljótu bragði virðist þetta vera það eina sem vantaði uppá til þess að vera með fullt hús stiga.

En fyrirsögnin segir að hann hafi ekið númerlausum bíl en hið rétta kemur svo fram í fréttinni þar sem segir að hann hafi verið ekið bílnum sem hafi verið án númeraplötu að framan, stórbrot þar á ferð.   Annað hvort hefur lögreglan á Blöndósi ekki áttað sig á því að það er númeraplata einnig aftan á bílum eða þeir gleymt að taka hana af líka nú eða þriðji valmöguleikin að þessi ágætis ökumaður hafi ákveðið að fá númeraplötu að "láni" hjá þriðja aðila en það hlýtur að vera lögbrot líka. 

Án þess að ég sé að gera lítið úr þessum brotum þá held ég að það að vera ölvaður og réttindalaus skipti höfð máli.

Það er auðvitað ekki í lagi með svona menn.  Hvernig er hægt að koma svona fólki til hjálpar? 


mbl.is Ölvaður og ökuréttindalaus á númerslausum bíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borðarðu Cheerios eða Cocopuff´s í morgunmat?

Ertu í brúnum eða hvitum nærbuxum?  Police

Notarður skó númer 30-35, 36-40 eða 41-45?  Police

Finnst þér Olivur góðar?  Police

Þessar spurningar væru auðvitað í lagi við ákveðnar kringumstæður en ef þú ert að færa bankaviðskiptin þín og þjónustufulltrúin spyr þig þeirra, þá er auðvitað eitthvað að!Police

Ef ég myndi segja já við að ég tengdist hryðjuverkastarfsemi að einhverju tagi, fengi ég þá ekki að stofna til viðskipta? Til að mynda er einstaklingur sem starfar við niðurrif á húsum hann er klárlega merktur hryðjuverkamaður hjá húsfriðunarnefnd og félögum þeirra  Police

Ef móðir mín væri frá Kúbu og faðir minn frá Færeyjum fengi ég þá ekki að stofna bankareikning?Police

Ég spyr nú bara hvenær er nóg orðið nóg Ninja


mbl.is „Ertu hryðjuverkamaður?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Páskaeggjaleit í Elliðárdalnum í dag

 

Í Elliðarárdalnum laugardaginn 7.apríl kl. 14.00 við gömlu Rafveitustöðina

Krakkar, mömmur, ömmur, pabbar og afar

Sjálfstæðisfélögin í Breiðholti og Árbæjarhverfi efna til páskaeggjaleitar í Elliðarárdalnum 7. apríl kl. 14:00

Leitað verður að fagurlega skreyttum eggjum og börnin fá súkkulaðiegg Leiktæki og hoppkastali verða á staðnum

Keppt verður í húllakeppni

Munið að taka með körfur eða poka undir eggin

Hittumst hress 

Allir velkomnir Stjórnir sjálfstæðisfélagnna í Breiðholti og Árbæ


Er Morgunblaðið hefnigjarnt?

Það borgar sig greinilega ekki að gangrýna Mbl.is of mikið, því þá lendir maður í tómu tjóni.  Núna eru allmargar færslur af blogginu mínu týndar í augnablikinu og fyrsta færslan á forsíðunni hjá mér er síðan í febrúar.  Skemmtileg tilviljun að ég skuli hafa verið að gangrýna mbl.is einmitt þennan sama dag og þetta gerðist Wink   En vonandi kemst þetta í lag í dag, ef ég er heppinn.

Hver þarf langferðabíl ?

Ekki veit ég af hverju við stórfjölskyldan erum að aka um á strumpastrætó (Toyota Previa), væri ekki nóg og mun heilsusamlegra að aka um á einu svona farartæki, svo myndi maður ekki styrkja þessa blessuðu íslensku olíufursta endalaust með síhækkandi bensínverði

 


Frábær árangur eyjapeyja frá Færeyjum sem rúllaði upp X-Factor

mynd
Ekki veit ég hvað er í gangi á MBL.IS þeim sofandi netfréttamiðil sem eitt sinn skipaði fyrsta sætið yfir alla aðra fréttamiðla.  En núna er klukkan orðin 23.21 og þeir hafa enn ekki tilkynnt um úrslit X-Factor sem haldinn voru fyrr í kvöld.  Þar kom sá og sigraði Færeyski pilturinn með yfirburðum og fékk enga álverskosningu því hann fékk samtals 70% atkvæða, geri aðrir betur!
Til hamingju nágrannar með glæsilegan árangur.
Vísir, 06. apr. 2007 22:42

Jógvan frá Færeyjum söng sig inn í hjörtu Íslendinga

Jógvan frá Færeyjum söng sig inn í hjörtu áhorfenda í Vetrargarðinum í beinni útsendingu á X-factor á Stöð tvö í kvöld. Hann háði einvígi í úrslitakeppninni við Hara-systurnar frá HVeragerði og vann með yfir 70 prósent atkvæða.

Jógvan var skjólstæðingur Einars Bárðarsonar í keppninni, en hver dómaranna þriggja undirbjó og þjálfaði söngvara í lokaþáttunum.

"Okkur líður eins og fegurðardrottningum," sagði Einar skælbrosandi eftir að úrslitin úr símaatkvæðagreiðslu voru kunngerð.

Færeyingar fylgdust með sínum manni í keppninni í beinni útsending, en gátu ekki greitt atkvæði.

Opinbert markmið með X-Factor - líkt og forveranum Idol-Stjörnuleit - er að uppgötva nýjar söngstjörnur; laða fram í sviðsljósið hæfileikaríkt söngfólk sem unnið getur hug og hjörtuð þjóðarinnar með söng sínum og persónutöfrum.

"Við erum sko ekki að fara að grenja - og við erum ekki hættar!" sögðu Hara-systurnar, Hildur og Rakel.

Báðir keppendur fluttu nýtt lag, sem Óskar Páll Sveinsson og Stefán Hilmarsson sömdu sérstaklega fyrir úrslitaþáttinn. Lagið, í flutningi sigurvegarans, Jógvans, verður svo gefið út strax að loknum þætti og verður fáanlegt á tonlist.is.

Er mbl.is að deyja eða er fréttavaktin sofandi?

Ég velti því fyrir mér nú þegar klukkan er 07.58 að það hafa engar fréttir verið færðar inn á mbl.is síðan kl 21.15 í gærkvöldi.  Fór ég ósjálfrátt að velta fyrir mér hvort hér gæti verið á ferðinni ein mesta og stærsta gúrkutíð fréttafjölmiðils í langan tíma?  Það er varla að ég trúi því að EKKERT hafi gerst á Íslandi já eða í heiminum öllum síðan kl 21.15 í gærkvöldi.

Er Visir.is að stinga Mbl.is af, þeir virðast vera orðnir fljótari með fréttirnar og uppfærslur á vefnum hjá sér.  Það væri grátlegt ef Mbl.is myndi missa það góða forskot sem þeir höfðu á aðra netfjölmiðla.

Strákar og Stelpur á fréttavakt Mbl.is - VAKNIÐ, það er kominn dagur


Byrjar þau aftur!

Þetta er orðin frekar þreytt dugga bæði hjá Vinstri Grænum og Samfylkingunni um að bókhald stjórnálaflokka skuli vera opið.  Þetta hafa þessir flokkar boðað síðustu ár en eins og við svo margt annað sem þessir flokkar boða þá verður lítið um efndir.  Hvers vegna í ósköpunum opna þessir flokkar ekki bókhald sitt?  Það hefur enginn staðið í vegi fyrir því.  Ég skora á þessa tvo flokka að hætta þessum leikarskap eða á ég að segja hræsni og opna sitt bókhald og standa við yfirlýsingar sínar.

En svo má líka spyrja sig af því hvers vegna flokkarnir eigi að vera með opið bókhald.  Ég veit til þess frá fyrstu hendi að margir einstaklingar styðja sinn flokk um einhverja tiltekna fjárhæð á mánuði eða ári og sumir af þeim kæra sig ekkert um að það sé tilkynnt að þeir séu að greiða inn í stjórnmálastarf.  En ég segi stoltur frá því að ég hef greitt til Sjálfstæðisflokksins í hart nær 10 ár. 

 


mbl.is Bókhald stjórnmálaflokka á að vera öllum opið að mati VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband