Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007
12.4.2007 | 23:05
Svona VERÐ ég að eignast
Ég segi nú ekkert annað en Sverrir hvað? Hann hefur fengið að prófa skurðgröfu sem ég reyndar játa að mig dauðlangaði að prófa líka........ en í næsta garðpartý ætla ég að mæta á einum svona og hver verður þá að tala um einhverja skurðgröfu..... bíddu skurðgrafa - hvað er það!! ??
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.4.2007 | 06:07
Stjörnuspá dagsins
Alltaf gaman að kíkja á stjörnuspánna af og til,
HRÚTUR: Liðið treysir á þig að koma verkefninu í höfn, og þú treystir líka á þig. Þú getur heimtað af sjálfum þér að hrista þetta fram úr erminni, en lausnarorðið er húmor. Taktu þessu létt og þá gengur það upp.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.4.2007 | 23:00
Nýr bloggvinur
Jæja þá er ein stoltasta mamman á landinu komin með bloggsíðu.
Ég er svo heppinn að þekkja hana frá því að við vorum skólasystkini fyrir rúmum áratug síðan, ef þið spyrjað hana þá reikna ég með að hún segi fyrir ca 3-5 árum síðan
Ég er að sjálfssögðu að tala um ofurmömmuna Elísabetu Láru Tryggvadóttur. Endilega kíkið inn á bloggið hennar með því að smella hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.4.2007 | 22:46
Nú er ég svo hissa!
Ha, og vissi fólk þetta ekki. Ég hefði getað sagt ykkur þetta fyrir allmörgum árum síðan.
Ég hef bara einu sinni á ævinni farið í megrun og tekið einhvern kúr heilagan minnir að hann hafa heitið Zero-3 virkaði vel á meðan maður var á honum en svo komu kílóin hreinlega fljúgandi til baka með smá vöxtum.
Það er nú einn maður sem ég þekki sem var mjög ginkeyptur fyrir öllum megrunarkúrum, hann keypti hvern kúrinn á fætur öðrum ég man hann var á umræddum Zero-3 kúr, sítrónukúr, sveskjukúr, Herbalife eiginlega held ég að hann hafi prófað allt nema atkinskúrinn (sem betur fer). En lítill hefur árangurinn verið með öllum þessum kúrum, en hann heldur áfram leitinni af hinum eina sanna fullkomna kúr.
Ég ákvað hinsvegar eftir Zero-3 kúrinn minn að kúrar væru almennt ekki fundnir upp fyrir mig og ákvað ég þá að þegar ég væri tilbúinn þá myndi ég taka á því verkefni að lostna við öll aukakílóin sem ég var með. Sem og ég gerði þetta er skemmtilegt en umfram allt einfalt!!!
Það sem þú þarft að hafa í huga er jákvætt hugafar, fara í líkamsrækt og borða góðan og hollan mat þá mun árangurinn ekki láta á sér standa, ég lofa því!
Megrunarkúrar þjóna litlum tilgangi fyrir meirihluta fólks að sögn vísindamanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.4.2007 | 22:15
Andlitslyfting
Þá hefur síðan fengið töluverða andlitlyftingu hún hefur nefnilega fengið nýja kórónu á toppinn. Bloggvinur minn Halldór Sigurðsson var svo vingjarnlegur að leyfa mér að nota eina af myndum sínum sem hann tók. Þessi mynd sínir blokkarkransinn í Breiðholtinu og dýrlega fjallasýn á bakvið.
Þeir sem vilja skoða fjölmargar fallegar myndir sem Halldór hefur tekið smellið hér og þá komist þið yfir á bloggið hans.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2007 | 16:51
Nafnið liggur ekki fyrir ??
Merkilegt að nafnið skuli ekki liggja fyrir sérstaklega þegar það á að tilkynna það um næstu helgi!
Skyldi hafa gleymst að tilkynna forstjóranum hvaða nafn markaðsdeildin ætlar að nota á stöðvarnar? Svona líkt og það gleymdist að tilkynna gamla forstjóranum að samráð væri ólöglegt?
En nú lækkar örugglega bensínreikningurinn á heimilinu okkar þar sem þeir ætla væntanlega að hella sér út í samkeppni með tilheyrandi lækkun á eldsneyti.
Esso-merkið kostar fimmtíu milljónir á ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.4.2007 | 16:29
Þó fyrr hefði verið
Ég segi nú ekki meira en það "þó fyrr hefði verið".
Maður hefðu nú haldið að það hefði verið byrjað að selja áfengi um borð í skemmtiferjunni Herjólfi fyrir áratug síðan eða svo. Það er ekkert sjálfssagðara en að ferðalangar geti slakað aðeins á uppá þilfari með rauðvínsglas í hendi og virt fyrir sér fegurðina þegar þeir sigla um sundin blá.
Sótt um áfengisleyfi um borð í Herjólfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.4.2007 | 15:28
Flottur fiskréttur eftir páskana
Sjávarrétta Chow Mein með steiktum núðlum
Uppskrift fyrir tvo til þrjá:
100 gr. smokkfiskur
3-4 stk. skelfiskur
50-85 gr. rækjur
250 gr. Amoy Egg Noodles
2 msk. Amoy Light Soy Sauce
1 tsk. Amoy Sesame Oil
100 gr. strengjabaunir
1-2 vorlaukar, fínt skornir
1/2 eggjahvíta, létt þeytt
2 msk. hrísgrjónavín
1 tsk. salt
1 tsk. sykur
2 tsk. maísenamjöl hrært út með 1 msk. vatni
5-6 msk. olía
Hreinsið smokkfiskinn, skerið í hann krosslaga mynstur að innanverðu og skerið síðan í bita á stærð við frímerki. Setjið í pott með sjóðandi vatni. Fjarlægið bitana úr vatninu þegar þeir verða hvítir og hafa rúllast upp, skolið undir köldu vatni og látið vökvann renna af. Skerið hvern skelfisk í 3-4 bita. Afþýðið rækjurnar og skerið í 2-3 bita hverja ef þær eru stórar.
Hrærið saman eggjahvítu og maísenamjölsblöndu og setjið fiskinn út í. Sjóðið núðlurnar í ca. 3-4 mín. og setjið í sigti. Látið renna á þær kalt vatn, og hrærið 1 msk. af olíu saman við. Hitið um 2-3 msk. af olíu á forhitaðri pönnu, bætið út í baununum og sjávarréttunum og steikið í 2 mín. Setjið salt, sykur, sojasósu, vín og helminginn af vorlauknum, hrærið áfram í u.þ.b. mínútu. Fjarlægið hræruna af pönnunni og geymið. Hitið afganginn af olíunni, bætið við núðlunum og helmingnum af hrærunni. Steikið í 2-3 mín. og sejtið á stóran disk.
Hellið afganginum af hrærunni ofan á núðlurnar og skreytið með vorlauk og sesam olíu. Berið fram með Amoy Chili sósu.
Sígildur réttur frá Canton héraðinu í suðurhluta Kína. Þar sem Canton var fyrsta höfnin í Kína sem opnaðist fyrir erlendum viðskiptum, gætir þar mikils fjölbreytileika í matargerð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2007 | 12:10
Hver er munurinn?
Hver er munurinn á Kókaíni og meintu Kókaíni? Er búið að eltast lengi við þetta meinta Kókaín? Það læðist að mér sá grunur að blaðamaðurinn fái greitt fyrir hvert orð sem hann skrifar því orðið "meint" er klárlega ofaukið í texgtanum Eða það finnst mér allavega.
Tekin með rúmt kíló af meintu kókaíni í Leifsstöð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.4.2007 | 10:51
Framsóknarmenn komnir á skrið og traktorinn orðinn heitur
Framsókn byrjuð, það fer varla framhjá nokkrum manni, konu eða barni að kosningar eru í námd. Framsóknarflokkurinn með sína pr. meistara eru hreinlega komnir í 3 gír og traktorinn kominn á skrið.
Það er ekki hægt að þverfóta fyrir annaðhvort auglýsingum fyrir þeim td hér á blogginu nú ef maður skreppur í kringluna þá voru þeir þar fyrir páska að gefa páskaegg sömuleiðis í Smáralind og í Mjódd. Þeir eru bara allstaðar, hélt satt best að segja að það væru ekki svona margir framsóknarmenn til lengur, ég taldi örugglega í kringum 10-15 Þeir hafa kannski gripið til þeirra ráða að flytja inn erlent vinnuafl til þess að gefa og dreifa bæklingum, hver veit.
En ef þetta er bara byrjunin, við hverju á maður að búast viku til 10 dögum fyrir kosningar, já nú er stórt spurt?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- 19.8.2011 Þetta er var ekki okkur að kenna!
- 7.8.2011 Munu flugmálayfirvöld ekki gera ástandsskoðun á vélum Iceland...
- 5.8.2011 Sagan endurtekur sig... þetta eru ekki við heldur þeir!
- 5.8.2011 Er Iceland Express þjónustufyrirtæki?
- 11.3.2010 Kristján Þór - Styrkir sig með hverjum deginum og þorir að se...
Eldri færslur
- Ágúst 2011
- Mars 2010
- September 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Fjölmiðlar
Tenglar á þá fjölmiðla sem ég les, þekki eða bara veit af!
- MissB
- SSB - Sjónvarpsstöð Sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti Stútfullur fróðleiksbrunnur
- Blaðið Það er bara þarna
- Deiglan Alveg ómissandi lesning
- Eyjafréttir Ekki spyrja mig afhverju !
- Þórshafnarfréttir Set þetta inn bara fyrir Rúnar
- Austurglugginn Allt gott kemur að austan
- Vísir Keyptar fréttir....? Gæti verið, hver veit
- Morgunblaðið...Málgagn þjóðarinnar Það eina sem þarf !
Skemmtilegir tenglar
Hér mun ég setja áhugaverða tengla sem gætu komið sér vel svona til þess að slóra eða stytta daginn.
- Handverkskona ársins 2007 -Miss B Besta handverkskona landsins og svei mér þá ef víða væri leitað.
- Hafsteinn - bloggar Heimsborgari á íslenskan mælikvarða, ferðast um landið jafn oft og reykvíkingar fara niður Laugarveginn
- Viltu vera í sambandi Ekkert vodafone...aðeins það besta Síminn
- Eru ekki allir tryggðir Þar sem tryggingar snúast um fólk!
- Reykjavík Nauðsynlegt til að vita hvað er að gerast í borginni
- Sjálfstæðisflokkurinn Máttastólpi íslenskt samfélagsins
- Jólahúsið Það styttist hratt í jólin.
Bloggvinir
- Birna M
- Dögg Pálsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Lee
- Eiður Ragnarsson
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Vilberg Tryggvason
- Púkinn
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Grazyna María Okuniewska
- gudni.is
- Gunnar Björnsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Haraldsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiðar Már Guðlaugsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Inga Lára Helgadóttir
- Jórunn Sigurbergsdóttir
- Kári Sölmundarson
- Grafarholtssókn
- Kristbjörg Sigurðardóttir
- Lady Elín
- Guðjón Baldursson
- Alfreð Símonarson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- viddi
- Ólafur fannberg
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Vilhjálmsson
- Óþekki embættismaðurinn
- Reynir Jóhannesson
- Rýnir
- Sæþór Helgi Jensson
- Sjálfstæðissinnar
- Sigríður Jósefsdóttir
- Halldór Sigurðsson
- Þorsteinn Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefanía Sigurðardóttir
- Sveinn Hjörtur
- Sveinn Tryggvason
- Þóra Sigurðardóttir
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- TómasHa
- Þorsteinn Siglaugsson
- Vefritid
- Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Birgir R.
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Carl Jóhann Granz
- Gunnar Gunnarsson
- Kristján Guðmundsson
- Marta Guðjónsdóttir
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Theodór Bender
33 dagar til jóla
Af mbl.is
Innlent
- Myndskeið: Stórbrotið útsýni af flugbrautinni
- Maskína: Framsókn í fallbaráttu
- Myndir: Hraunið við bílaplan Bláa lónsins
- Gosstöðvarnar ekki aðgengilegar fyrir ferðamenn
- Vatnsleki hjá Brauð & co
- Má segja að þetta gos hafi þjófstartað
- Hraunið við bílastæði Bláa lónsins
- Stal munum úr starfsmannaaðstöðu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar