Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Nýjar upplýsingar um lögreglumanninn sem stakk af

Samkvæmt fréttablaðinu í dag þá er það rangt hjá Austurglugganum að lögreglumaðurinn hafi stungið af eftir ákeyrsluna.  Hið rétta er að hann fór af staðnum til að kanna hver væri eigandi sleðans og að sjálfssögðu að tilkynna honum um áreksturinn.  Svo hann hefur þá bara ekki verið alsæmur eftir allt saman, enda gat það ekki verið þar sem hann er að austan Smile

Lögreglan - Skammastu þín!

Þetta er sláandi frétt frá Austfjörðum sem ég var að lesa í Austurglugganum.  Ef rétt er að lögreglumaður hafi stungið af frá ákeyrslu þá er eitthvað mikið að.  Enda skilur maður ekki af hverju fólk er yfir höfðuð að stinga af eftir ákeyrslur, í flestum tilfellum fæst tjónið greitt út úr tryggingarfélögunum.  Reyndar þarf fólk þá að greiða sjálfsábyrgðina sem er mishá eða lá eftir hverjum og einum svo ekki sá sem tjóninu veldur að greiða allan kostnaðinn.   Hvernig skyldi lögregluvarðstjórinn taka á þessu máli...... nema það hafi bara verið hann sem stakk af?

 

Tekið af vefriti Austurgluggans 

 Lögreglumaður stakk af frá ákeyrslu

   
Skrifað af GG   
Thursday, 08 February 2007
Íbúi á Seyðisfirði varð fyrir því að keyrt var á snjósleða sem hann átti sem stóð við íbúðarhús hans. 

Eigandinn sá þegar bíl var bakkað á sleðann, sem skemmdist töluvert, ökumaður bílsins kom út úr bílnum skoðaði sleðann fyrst lítillega og síðan bílinn sem skemmdist lítið. Ökumaðurinn horfði svo flóttalega kringum sig til að gaumgæfa hvort einhver sæi til hans,hélt að svo væri ekki og læddist burtu af vetttvangi án þess að láta vita.
Eigandinn náði hinsvegar númerinu af bílnum sem óhappinu olli, brúnum amerískum jeppa og kærði til lögreglu. Við rannsókn málsins kom í ljós að ökumaðurinn sem óhappinu ollier starfandi lögreglumaður.


Er landsbyggðafólk á móti lögreglunni?

Hvað er til ráða?  Þetta er önnur árásin á stuttum tíma á lögregluþjón sem var á frívakt.  Það einkennilega er að þessar árásir eru báðar gerðar á svipuðum stað önnur á Blöndós og hin á Skagaströnd, eru þetta sömu aðilarnir sem eiga þarna hlut að máli?

Eitt er víst, þetta þarf að stöðva, það er algjörlega ólíðandi að ráðist sé á laganna verði eða eigur þeirra hvort sem þeir eru á frívakt eða á vakt.


mbl.is Flugeldur sprengdur við heimili lögreglumanns á Skagaströnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líkamsrækt, borgarstjóri, brúðkaup og út að borða

Já það er ýmislegt sem maður er að gera í dag laugardag.  Tók daginn snemma, svona eins og aðra daga, og byrjaði á að fara í líkamsrækt niður í Hreyfingu, alltaf gaman að koma þangað.  Starfsfólkið allt svo brosmilt og skemmtilegt svo ekki sé talað um alla sem í salnum, þetta er svona eins og ein stór fjölskylda sem drífur alla áfram.  Eftir skemmtilega æfingar fór ég á fund ásamt fleirra fólki og hittum við Vilhjálm Borgarstjóra sem fór vel yfir stöðu mála í borginni, fróðlegur og skemmtilegur fundur sem án efa skilar miklum árangri.  Nú seinna í dag hefur mér verið sýndur sá heiður að fá að keyra prúðbúin brúðhjón um borgina, alltaf gaman að fá að taka þátt í þeim merka degi hvers manns sem brúðkaupsdagurinn er svo sannarlega.  Eftir að þeirri keyrslu líkur ætlum við hjónin því næst að skella okkur ásamt vinum okkar út að borða.  Dagurinn sem byrjaði ákaflega skemmtilega með sólargeislum verður bjartur og skemmtilegur...... svona eins og aðrir dagar.

Má líka til með að nefna að ég hef starfað minn síðasta föstudag í vinnunni hjá mér þar sem nýjir eigendur taka formlega við rekstri fyrirtækisins á fimmtudaginn n.k.  Spennandi hlutir þar á fer. 


Ég er bara Stum (eins og Bibba á Brávallagötunni sagði alltaf)

Maður er hreinlega bara orðlaus yfir þessu, ég velti því nú fyrir mér hvort viðkomandi ökumaður hafi farið í bílprófið á sínum tíma og ef hann hefur gert það hlýtur hann að hafa fallið allavega 1-2 sinnum ! Devil

En það er annað sem laganna verðir mættu fara sinna betur, það er þegar menn nota "hasard" neyðarstefnuljósin (þið vitið, þegar þau blikka öll í einu).  Þessi ljós á aðeins að nota þegar bifreiðin er kyrrstæð alls ekki þegar verið er að draga þá á hvorugur bíllinn að nota þessi ljós.  Það er hinsvegar allt of algengt að fólk er að nota þetta þegar verið er að draga bíla, báta eða kerrur!  Hinsvegar ætti fólk þá frekar að leigja hjá Byko eða Húsasmiðjunni vinnublikkljós (þessi gulu) og setja á toppinn.  Þetta mætti lögreglan athuga betur.


mbl.is Með bíl í drætti á 105 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

13 milljónir - Hreyfing og GRÆNIR lyfseðlar

Hvað á svo að gera við þessar 13 milljónir?  Er þetta hugsað sem einhverskonar auglýsingasjóður sem fer í það að segja fólki að hreyfing sé holl og öllum nauðsynleg?  Eða á þetta að fara í uppbyggingu íþrótta eða líkamsræktastarfs í landinu, þá dugar þessi peningur varla fyrir meira en einum fótboltavelli, 13 heitum pottum, sem varla eru sundhæfir!  Svo ég spyr aftur í hvað eiga þessir peningar að fara?  Ég held að fólk þurfi ekki að fá áminningar í sjónvarpi, blöðum eða útvarpi þess eðlis að hreyfing sé holl!  Það þarf eitthvað rótækara að gerast.

Reyndar ef einhver hefði sagt við mig fyrir 18 mánuðum síðan að ég ætti eftir að fara stunda líkamsrækt, breyta um lísstíl og léttast um 50 kíló þá hefði ég sagt að sá hinn sami væri klikkaður, enda annálaður íþrótta antísportisti nr 1.  En þetta varð nú raunin ég byrjaði og er enn að stunda líkamsrækt nokkrum sinnum í viku.

Ég held að verkefni sem þetta útheimti töluvert meiri peninga en 13 milljónir sem er nánast
"klink" í baráttunni við offituvandamál þjóðarinnar, sem er að verða eitt alvarlegasta heilsufarsvandamál nútímanst og hvað þá framtíðarinnar.  Kannki að Sif hafi átt að sleppa útgáfu kosningabæklingsins sem aldraðir greiddu fyrir hana  og setja frekar þá peninga í þetta verkefni!

Það er jafnframt annað sem heilbrigðisráðherra þarf að innleiða á íslandi og eru það svo kallaðir "grænir" lyfseðlar, sem eru í raun og vera "ávísun" á líkamsrækt fyrir einstaklinga sem ríkið myndi styrkja fjárhagslega svo þeir geti stundað líkamsrækt.  Þegar til lengri tíma litið myndi ríkið spara sér stórfé í útgjöld með minnkandi lyfjaáti landans, þó svo þessi kort myndu ekki koma í veg fyrir það að þeir sem þurfa á lyfjum að halda fengju þau og það helst ódýrari en þau eru í dag.  Enda ættu ríkir lítil sem engin samkeppni á íslenskum lyfjamarkaði þar sem lyfjaeftirlitið sér um sína!


mbl.is Tilraunaverkefnið Hreyfing fyrir alla stofnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgur

Þar í landi virðast framkvæmdastjórar vera ábyrgir, það virðist ekki vera hér allavega í hjá Olíubarónunum !
mbl.is Framkvæmdastjóri Cartoon Network segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er Davíð Oddsson

Ég veit mæta vel að hann er í Seðlabankanum, en nú þyrfti hann að taka sér göngutúr og rölta yfir í Landsbankann, tæma reikningin sinn og loka honum.  Allavega gerði hann það á sínum tíma í Kbbanka. 


mbl.is Æðstu yfirmenn Landsbankans með samtals 1,4 milljarða í laun og kaupauka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrefalt Húrra - Húrra - Húrra

Glæsilegur árangur Magga og hans starfsfólki.   Það hafa verið skemmtilegar stundir að fylgjast með þáttunum með yngsta meðlim fjölskyldunnar og ekki síður skemmtilegt að fylgjast með þeim glæsilega árangri sem starfsfólk Latabæjar er að ná á heimsmarkaði með Latabæ.  Tilnefning til Emmý verðlauna annað árið í röð er án efa mikill hápunktur og um leið gríðaleg viðurkenning fyrir þættina, spurning hvort Óskar-inn komi bara ekki á næsta ári?  Hver veit.

Til hamingju Latabæjarfólk


mbl.is Latibær tilnefndur til Emmy verðlauna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

10.9.8.7.6.5.4.3.1 Hvað ætli sé langt þangað til ?

Flugfélögin eru nú orðin þekkt fyrir það að rukka viðskiptavini sína út í hið óendanlega.  Hvernig væri að flugfélög myndu byrja greiða fólki fyrir tímann sem fer í að bíða þegar það eru seinkanir á flugi ?  Það væri ekki lítið sem til að mynda flugfarþegar Flugleiða/Icelandair fengju í sinn vasa, þar sem félagið er ansi oft of seint!  Ætli þetta sé ekki bara í daumalandinu þe að þeir tækju þetta upp, það held ég.  En þeir eru ansi duglegir að rukka hina ýmsu "skatta" sem eru í raun bara hækkanir hjá þeim þar sem ríkið fær ekki krónu af þeim eða bara lítinn hluta eins og dæmin hafa sannað til að mynda hjá íslenska flugfélaginu Sterling!  En neytendavörðurinn (talsmaður neytenda) er nú kominn í málið á sínum skjaldbökuhraða svo væntanlega kemur óskar hann eftir einhverjum lækkunum, eigum við að segja í kringum 2012 eða svo?


mbl.is Farþegar British Airways þurfa að greiða gjald fyrir aukatöskur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband