Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007
15.1.2007 | 08:55
Spakmæli dagins
Rakst á þetta spakæli í morgun og ákvað að setja það hér inn mér og öðrum til ánægju
Hvað sem þig kann að henda, þá láttu þér aldrei gleymast,
að þú ert ekki bundinn við að fara yfir götuna sem þú valdir.
Þér er frjálst að leita uppi aðra leið, ef þú finnur að þú ert að villast.
Stig Dagerman
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.1.2007 | 23:10
Kennitölusýki eða þráhyggja !
Þegar ég var að velta því fyrir mér með Kaupþing og gjaldeyrin í dag þá fór ég allt í einu að velta fyrir mér kennitölunni minni almennt. Fór að velta því fyrir mér hvar ég hefði gefið hana upp og hvar ekki. Ég tók til að mynda DVD mynd á videoleigunni um daginn og þurfti að gefa upp kennitöluna, ég fór fyrir tveimur vikum og keypti mér skyrtur og þurfti að gefa upp kennitöluna mína, sama mál var þegar ég keypti brauðrist í sumar, þ.e ef ég vildi fá 2 ára ábyrgð á hana þá varð ég að gefa upp kennitölu, svo er það nú blessað bankakerfið, hjá lækninum, hjá endurskoðandanum eða rafrænni Reykjavík þú færð einfaldlega ekki þjónustu án þess að gefa upp kennitöluna þína. Þú ert hreint og beint búinn að segja allt og öllum kennitöluna þína, hvort heldur sem þér líkar betur eða verr.
Þá mundi ég eftir samtali við þjóðverja sem ég átti fyrir nokkrum árum og skoðun hans á ofnotkun kennitölunnar hér á landi. Hann skyldi einfaldlega ekki af hverju allir þyrfti að fá kennitölu viðskiptavinarins, ég skil það svo sem ekki heldur, en hvað getur maður gert annað en að gefa upp blessuðu kennitöluna.
Ég man eftir viðtali við lögfræðing persónuverndar sem var í útvarpinu fyrir u.þ.b. 3-4 árum, þar ræddi hún um mikilvægi þess að fólk óskaði eftir leyfi persónuverdar vildi það safna kennitölum. Mér vitanlega er ekki eftirlit að hálfu stofnunarinnar á því og tel ég víða pottur brotinn í þessu sambandi.
Af hverju eru t.d myndbandaleigur, læknar og rafræn Reykjavík ekki með notendanafn eða númer í stað kennitölu. Já spyr sá sem ekki veit !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.1.2007 | 19:18
Hver vegna eru ekki frjáls gjaldeyrisviðskipti ! ?

Það var svo sem ekki mikið mál EN hann vildi ekki gefa gjaldkeranum upp kennitöluna sína! Hann vildi fá einfaldri spurningu svarað sem var " Hvers vegna þarftu kennitöluna mína þegar ég er að kaupa gjaldeyri? " Svar gjaldkerans var einfalt " Ef ég fæ ekki kennitöluna þína þá færð þú EKKI gjaldeyri, svo einfalt er málið" " þú getur reynt að ræða við útibústjórann, en hann mun jafnframt neita þér" En svona til þess að það valdi engum misskilning þá var gjaldkerin síður en svo dónalegur, heldur var einfaldlega að benda á þær reglur sem henni væru settar.
Það er oft rætt um að við séum heppinn þar sem m.a við getum átt frjáls gjaldeyrisviðskipti þegar okkur hentar og með þá upphæð sem við kjósum. Má vel vera !
EN hvers vegna í ósköpunum biðja allir bankar fólk, sem er að skipta eða kaupa gjaldeyri um kennitölur viðkomandi? Reglur bankann eru mjög skýrar - ef þú neitar að gefa upp kennitöluna þá færðu ekki gjaldeyrir - PUNKTUR.
Ég spyr hvers vegna? Hvað kemur bankanum við hver sé að kaupa gjaldeyri? Svo framalega sem viðkomandi greiði fyrir hann!
Ég get ekki séð tilgang bankanna með því að óska eftir þessum upplýsingum, ekki nema þá að þeir vilji senda þér sólalandar hankæði, skíðalúffur eða einhvern annan ruslpóst því ekki getur annar tilgangur verið en sá að njósna, eða hvað?
Getur einhver svarað mér því ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.1.2007 | 15:34
Ég á ekki svo langt í land

![]() |
Heimsmet á þrekhjóli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.1.2007 | 21:10
Sem betur fer
Vel má vera að háskólinn missi nú góðan mann, erum við ekki öll góð inn við beinið? Öll höfum við kosti og galla hvert á okkar sviði. En mér hefur alltaf fundist það hálf broslegt þegar embættismenn innan háskólans eru þeirrar skoðunnar að þeir eigi sínar stöður með húð og hári. Ég er svo sem ekki að setja út á það þegar fólk tekur sér launalaust leyfi í 12 mánuði eða svo en það er annað mál þegar fólk ætlar sér að taka frí launalaust í óskilgreindan tíma gætu verið 12 mánuðir og gætu verið 10 ár. Viljum við virkilega hafa það svo að þegar fólk hefur fengið embættishlutverk í háskólanum að það geti notað þá stöðu sem einhverskonar björgunarbát um aldur og ævi þegar og ef það ákveður að snúa til baka ? Ég segi einfaldlega NEI
Þetta væri svona álíka og ef ég í minni vinni tæki mér leyfi til þess að fara vinna fyrir samkeppnisaðilan í ótilgreindan tíma og þegar ég væri orðinn leiður þar þá myndi ég bara snúa mér aftur til gamla vinnuveitandans og segja.... Hæ ég er kominn aftur, hvar er stóllinn minn... Algjörlega út í hött.
Við þig Einar vil ég óska þér alls hins besta í nýju starfi og ég er þess fullviss að þú munt sóma þér vel á Bifröst enda Borgarfjörðurinn næst fallegasti staður landsins.
![]() |
Fær ekki launalaust leyfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.1.2007 | 17:12
Norðmenn eiga þetta ekki og við vitum það öll
Já nú skal spyrja hver er réttmætur eigandi fjársjóðsins !
Nú mæli ég með að allir sem vettlingi geta valdið fari í íslendingabók og athugi ættir sýnar aftur til ársins 800 eða svo, ég tala nú ekki um þá sem eru í blóðflokk A+ eða A-, þar sem sagan segir að þeir séu komnir af Norskum víkingum, gæti það verið að hugsanlega lang lang lang lang lang afi þinn hafi átt gullið nú eða bróðir hans sem átti enginn börn og því hefði lang lang lang lang lang afi þinn átt að erfa bróður sinn og þú þar með talið líka? Nú skulu allir læsir sem ólæsir leggjast í lestur ættfræðivefa, ættfræðibóka og hefja "yfirherslu" allra ættingja.... við skulum fá það sem við eigum skilið
![]() |
Mikill víkingafjársjóður fundinn í Noregi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.1.2007 | 13:15
Við eigum það allt skilið

![]() |
Umtalsvert meiri snjódýpt í Reykjavík en á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.1.2007 | 11:25
prozac-þjóð
![]() |
Prozac fyrir gæludýrin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.1.2007 | 23:29
Tuborg besta forvörnin...
Það er nú bara orðin spurning hvort maður þyrfti ekki að fara vera með mjöð í bílnum, svona ef ske kynni að maður myndi rekast á innbrotsþjóf. Ef konan sem var rænd ferðatölvunni um daginn og heyrði þjófinn segja "ég get borgað þér núna" þegar hann var að tala í símann. Ef hún hefði haft bjór á sér þá hefði hann hugsanlega dokað við og þá hefði lögreglan líklegast bara náð honum.
Hreint og klárt : Ný forvörn í innbrotsvörnum.... skyldu Öryggismiðstöðin bjóða uppá tilboð sem væri eitthvað á þessa leið.
Þráðlaust öryggiskerfi
Slökkvitæki
1 kassi bjór (af eigin vali)
1 sjúkrakassi
Allt þetta og meira til á kr. 7.999 á mánuði...... hum maður myndi kannski hugsa sig um ....
Vísir, 12. jan. 2007 22:45
Bjór gegn glæpum
Tveir hjálpsamir menn í Flórída í Bandaríkjunum náðu að handsama ræningja sem lögregla var að leita að. Og hvernig? Jú, með því að gefa honum bjór.
Mennirnir tveir voru vitni að innbroti í bíl og létu lögreglu vita. Þegar lögreglan kom á vettvang flúði þjófurinn og lögreglan fór í humátt á eftir honum. Mennirnir ákváðu þó að leita að þjófinum sjálfir og keyrðu í svipaða átt og þjófurinn hljóp. Að lokum fundu þeir hann sitjandi á vegarbrúninni.
Í stað þess að öskra á manninn þá buðu þeir honum bjór og far upp á þjóðveg. Þjófurinn var fljótur að segja já, hentist inn í bíl og fékk kaldan bjór í hendurnar. Mennirnir snéru þá við og keyrðu þjófinn beint í hendur lögreglu. Ekki er vitað hvort að þjófurinn hafi fengið að klára bjórinn.
Breska dagblaðið Metro skýrir frá þessu á vefsíðu sinni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2007 | 22:05
Handteknir fyrir að fita hundinn
Já það er eins gott að passa línurnar hjá öllum á heimilinu. Skyldi maður geta fengið dóm ef maður fitar kóngulærnar of mikið.
Handteknir fyrir að fita hundinn
Tveir breskir bræðir hafa verið dæmdir fyrir brot á dýraverndunarlögum en þeir gáfu hundinum sínum Rusty meira að éta en honum var gott. Vesalings Labradorhundurinn þyngdist um næstum fjórtán kíló á tveimur árum og eins og sjá má líkist hann meira rostungi en venjulegum hvutta.
Bræðurnir, sem eru 53 og 62 ára gamlir, kváðust hins vegar aðeins hafa dekrað hundinn vegna mikillar væntumþykju í hans garð og því ákváðu dómarar að skilorðsbinda refsingu þeirra gegn gegn því að þeir gæfu greyið dýrinu minna að éta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 19.8.2011 Þetta er var ekki okkur að kenna!
- 7.8.2011 Munu flugmálayfirvöld ekki gera ástandsskoðun á vélum Iceland...
- 5.8.2011 Sagan endurtekur sig... þetta eru ekki við heldur þeir!
- 5.8.2011 Er Iceland Express þjónustufyrirtæki?
- 11.3.2010 Kristján Þór - Styrkir sig með hverjum deginum og þorir að se...
Eldri færslur
- Ágúst 2011
- Mars 2010
- September 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Fjölmiðlar
Tenglar á þá fjölmiðla sem ég les, þekki eða bara veit af!
- MissB
- SSB - Sjónvarpsstöð Sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti Stútfullur fróðleiksbrunnur
- Blaðið Það er bara þarna
- Deiglan Alveg ómissandi lesning
- Eyjafréttir Ekki spyrja mig afhverju !
- Þórshafnarfréttir Set þetta inn bara fyrir Rúnar
- Austurglugginn Allt gott kemur að austan
- Vísir Keyptar fréttir....? Gæti verið, hver veit
- Morgunblaðið...Málgagn þjóðarinnar Það eina sem þarf !
Skemmtilegir tenglar
Hér mun ég setja áhugaverða tengla sem gætu komið sér vel svona til þess að slóra eða stytta daginn.
- Handverkskona ársins 2007 -Miss B Besta handverkskona landsins og svei mér þá ef víða væri leitað.
- Hafsteinn - bloggar Heimsborgari á íslenskan mælikvarða, ferðast um landið jafn oft og reykvíkingar fara niður Laugarveginn
- Viltu vera í sambandi Ekkert vodafone...aðeins það besta Síminn
- Eru ekki allir tryggðir Þar sem tryggingar snúast um fólk!
- Reykjavík Nauðsynlegt til að vita hvað er að gerast í borginni
- Sjálfstæðisflokkurinn Máttastólpi íslenskt samfélagsins
- Jólahúsið Það styttist hratt í jólin.
Bloggvinir
-
Birna M
-
Dögg Pálsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Egill Rúnar Sigurðsson
-
Einar Lee
-
Eiður Ragnarsson
-
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
-
Vilberg Tryggvason
-
Púkinn
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
gudni.is
-
Gunnar Björnsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Haraldsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Heiðar Már Guðlaugsson
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Jórunn Sigurbergsdóttir
-
Kári Sölmundarson
-
Grafarholtssókn
-
Kristbjörg Sigurðardóttir
-
Lady Elín
-
Guðjón Baldursson
-
Alfreð Símonarson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
viddi
-
Ólafur fannberg
-
Pálína Erna Ásgeirsdóttir
-
Páll Vilhjálmsson
-
Óþekki embættismaðurinn
-
Reynir Jóhannesson
-
Rýnir
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sjálfstæðissinnar
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Halldór Sigurðsson
-
Þorsteinn Gunnarsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefanía Sigurðardóttir
-
Sveinn Hjörtur
-
Sveinn Tryggvason
-
Þóra Sigurðardóttir
-
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
-
TómasHa
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Vefritid
-
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
-
Vilborg G. Hansen
-
Birgir R.
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnar Gunnarsson
-
Kristján Guðmundsson
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Theodór Bender