Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Nýtt útlit

Þá er maður búinn að breyta útlitinu aðeins.  Fékk reyndar góða hjálp frá einum blogg vini..... Takk fyrir upplýsingarnar Keli.  Þetta er allavega skárri litur en þessi rauði eða hvað finnst ykkur.  Á ég að reyna finna einhvern annan lit kannski?

Ekki ég heldur

James Brown heitinn sem yngsta son sinn ekki á nafn í erfðaskránni.

Svo einkennilegt sem það hljómar var ég ekki heldur nefndur í erfðaskránni hjá James heitnum Brown.  Ég sem á 2 geisladiska með kappanum. 


mbl.is James Brown hinn yngri ekki nefndur í erfðaskrá föðurins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hægt að hafa það betra ?

Nei, það held ég bara ekki.  Þetta er alveg hreint frábært að fá þessa hvítu snjókápu yfir borgina.  Gleður öll lítil hjörtu hvort á hvaða aldri sem þau eru Smile
mbl.is Vetur konungur ræður ríkjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja Egill Helgason - Yfirbloggari

Jæja Hr. Egill, hvað segirðu núna, er bloggið orðið nægilega "virt" svo þú þorir að kalla þig bloggara, það gæti lagað aðeins egó-ið að reka sinn eiginn fjölmiðill eða hvað finnst þér?  Wink
Vísir, 11. jan. 2007 23:00
Bloggarar metnir til jafns við fjölmiðla

Réttaryfirvöld í Washington í Bandaríkjunum hafa ákveðið að leyfa bloggurum að fylgjast með réttarhöldunum yfir Lewis Libby, fyrrum aðstoðarmanni Dick Cheney, til jafns við hefðbundna fjölmiðla. Munu þeir fá alls fjögur sæti við réttarhöldin en búist er við því að Cheney eigi eftir að bera vitni við þau.

Er þetta í fyrsta sinn sem bloggurum er leyft að vera við réttarhöld en margir hafa fengið blaðamannapassa inn á alls kyns sýningar og samkomur stjórnmálamanna og -flokka. Starfsmaður réttarins sagði við þetta tækifæri að „Bloggarar eru hluti af fjölmiðlum í dag og ef við værum að sniðganga þá værum við að sniðganga raunveruleikann."

Bloggarar segja að þeir muni tjá skoðanir sínar á því sem fer fram frekar en að segja frá því sem fer fram. Á meðal fréttabloggara sem fá sæti við réttarhöldin eru The Huffington Post og Firedoglake. Þráðlaust net verður í réttarsalnum og því munu bloggararnir setja pistla sína inn á meðan þeir sitja inni í réttarsalnum. 
 

 

 


Hvað er eiginlega að ?

Enn og aftur virðist Framsóknarflokkurinn ætla að beyta sér fyrir því að senda stofnanir út á land.  Ég skrifaði blogg ekki alls fyrir löngu undir nafninu "Hvers á höfuðborgin að gjalda" sem hægt er að skoða hér, kjósi menn það.  Hvers vegna heyrist ekki múkk í þingmönnum Reykvíkinga þegar verið er að færa heilu og hálfu stofnanirnar út á land, ég tala nú ekki um þegar einstakur ráðherra er hugsanlega að "fjárfesta" fyrir kosningarnar! 


mbl.is Útibú frá þýðingarmiðstöð utanríkisráðuneytisins opnað á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjófur staðinn að verki

Dagbók höfuðborgarlögreglunnar,

Ótrúlega lítið að gerast.............. eða hvað?

 

Karlmaður á fimmtugsaldri var staðinn að þjófnaði í opinberri stofnun í miðborginni um miðjan dag í gær. Þjófurinn var að stela veski þegar til hans sást en maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð. Ökumaður stakk af frá ógreiddum bensínreikningi í austurborginni og hið sama gerði ökumaður í Grafarvogi. Þá var tölvubúnaði stolið úr kjallaraherbergi í úthverfi borgarinnar.

Húrra

Mynd 416985

Ég fagna þessu nýja útspili borgarstjórans Vilhjálms Þ.  Vonandi skilar starfshópurinn niðurstöðu sem við öll getum unað.


mbl.is Samþykkt að skipa starfshóp til að fara yfir málefni spilasala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíddu nú við

Vín á frekar upp á pallborðið hjá Bretum en áðurHeyrðu nú er ég hissa!  Er verið að segja okkur það að við séum ekki númer 1 miðað við höfðatölu??  Það hlýtur bara vera, við sem erum yfirleitt með vinningin á flest allt s.s. gsm, tölvur í heimahúsum, bílaeign, tannstönglanotkun svo eitthvað sé nefnd.... Þetta er auðvitað svindl að við séum ekki númer 1 í víndrykkju Smile   Kannski að það sé ástæða til þess að þakka Þórarinn T. fyrir gott starf hjá SÁÁ.
mbl.is Bretar drekka meira vín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur Joð, Ögmundur og jónurnar

Undur og stórmerki stórtíðindi í bænum, úr herbúðum Vinstri Grænna berast mótmælaraddir, ég er svo hissa!

Það liggur við að maður fari að sjá þennan blessaða flokk og flokksfólk fyrir sér sem eftirlegu kindur af hippum.  Það eina sem vantar er að Steingrímur og Árni láti sér vaxa sítt hár og þeir tveir ásamt Kollu og Ögmundi "yfirkomma" reisi sér tjaldbúðir á Austurvelli, reyki jónur og haldi á kröfuskiltum sem á standa misgáfulegar athugasemdir,kröfur eða slagorð til varnar landi og þjóð.  


mbl.is VG mótmælir útboði á starfsemi gistiskýlis að Þingholtsstræti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirlýstur - ef þú sért hann vinsamlegast hringdu í lögregluna STRAX

Ég bara spyr ?  Ég heyrði eina undarlegustu tilkynningu sem ég hef heyrt lengi í morgunfréttum stöðvar 2 í morgun.  Hún hljóðaði eitthvað á þessa leið

" maðurinn er sem stal fartölvunni er á þrítugsaldri, dökkhærður, meðalhár og klæddur í dökka úlpu"

" þeir sem geta gefið upplýsingar vinsamlegast hafið samband við lögregluna"

Mér krossbrá!  Ég er á þrítugsaldri, dökkhærður, meðalhár og í dökkri úlpu en ég tók ekki fartölvuna, alveg satt!

Hvernig ætlar menn að þrengja leitarhringin með þessari yfirlýsingu???  Hvað skyldu vera margir sem eru svipaðir og þessi lýsing gefur til kynna bara á höfuðborgarsvæðinu??? 1000? 2000? 3000?

Nei, ég bara spyr! ?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband