Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Essó - Rausnarlegt

Olíufélagið alltaf jafn rausnalegt við viðskiptavini sína.  Lækkar eldsneytið um heila 50 aura..... TAKK
mbl.is Esso lækkar verð á bensíni um 50 aura
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð sé lof að það sé ekki fótbolti

Ég segi nú ekki meir !  Þarf vegabréfsáritun vegna kriketmóts, hvernig væri þetta ef þarna væri á ferðinni fótbolta- og eða handboltamót?  Eyjunum yrði þá líklegast lokað alveg á meðan!

 


mbl.is Tímabundna vegabréfsáritun þarf til Kyrrahafseyja vegna krikketmóts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísitering - Lögreglan og -17 stiga FROST

Jæja þá er maður að leggja af stað í sína mánaðarlegu vísiteringu um Norðurland þeir staðir sem ég mun heimsækja í dag eru

- Brú, Hvammstangi, Blöndós, Skagaströnd, Sauðárkrókur, Ólafsfjörður, Siglufjörður, Dalvík (sem ég veit að er orðið öruggt að heimsækja nú, þökk sé Birni Bjarna og vösku lögregluliði hans) og Akureyri, svo maður á langan akstur fyrir höndum en í staðinn hittir maður mikið af skemmtilegu fólki og getur tekið púlsinn á þverskurði þjóðfélagsins.

Morgundagurinn er ekki síður ferðadagur því þá mun ég koma við á

- Akureyri (sem ég reyndar gisti í, þrátt fyrir ótrúlega lágt þjónustustig "höfuðborgar" Norðurlands), Grenivík, Húsavík og Mývatn.

Mér skyldist á því norðanfólki sem ég ræddi lítillega við í gær að þó svo við reykvíkingar hefðum vinningin með snjóinn þá hefðu norðlendingar vinningin með kuldan því í dag á að vera allt að -17 siga frost fyrir norðan en lækkar svo í aðeins -8 til - 9 , og ég sem er orðinn svo kulvís eftir að þessi nokkur kíló sem af mér eru runnin fóru að það hálfa hefði verið nóg, maður verður bara að klæða sig EXTRA vel og reyna bera höfuðið hátt og einbeita sér að því að gnísta ekki í sundur tönnunum Smile


Betra seint en ALDREI

Alveg ótrúlegt hvað það getur tekið langan tíma að fá einfaldan úrskurð um smávægilega einföld málefni.  Gat ekki Neytendastofa klárað þetta mál þegar jólabókaflóðið var í hástreymi eða þurfti hún að gefa Eddu "þægilegt svigrúm" svona rétt á meðan að flóðið gengi yfir?  Var þetta ekki málefni sem hefði verið hægt að klára á u.þ.b 30 mínútum eða svo.  Það hefði ekki þurft nema örfá símtöl og nokkra tölvupósta og málið í höfn. 
mbl.is Neytendastofa ávítar bókaútgáfu fyrir auglýsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slær hreinlega öllu við, já og líka áramótaskaupi RÚV

Ekki að ég sé kominn með Kaupþing á heilan, en ég hef sagt það áður að það hefði átt að sleppa áramótaskaupi RÚV og birta einfaldlega þessar þrjár auglýsingar sem Kaupþing hefur látið framleiða fyrir sig með einum besta leikara sem uppi hefur verið fyrr og síðar.  Set hér hinn auglýsingu númer 2 frá þeim, algjör snilld get horft endalaust á hana og hún stein liggur, að mér finnst Smile

 

 

P.S. ég hlít að fara fá betri kjör hjá þessum háu herrum í bankanum, maður gerir ekkert annað en að auglýsa hann Cool


Ég er verulega hissa

Þessi ákvörðun Margrétar kemur mér vægast sagt verulega á óvart.  Ég hefði haldið að hún myndi kjósa að fara alla leið í formannssætið.  Margrét hefur klárlega verið ein af stoðum flokksins frá upphafi og á vel að geta gert tilkall til forystusætisins þ.e nema að hún hafi kosið að gera það ekki vegna Guðjóns sem og Nýs afls sem virðast vera farnir að ráða flokknum!
mbl.is Margrét Sverrisdóttir sækist eftir sæti varaformanns Frjálslynda flokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöð 2 - 365 eða hvað þið heitið nú í dag !

Við skulum grýta dagskrástjóra stöðvarinnar.  Hverjum lifandi nú eða dauðum manni sem er með nokkrar heilasellur í lagi dettur í hug að sýna þátt um tannlækningar og mistök þeim tengdum í sjónvarpinu, líkt og var á stöð 2 í gærkvöldi, ER EKKI ALLT Í LAGI ! 

Er ekki dagskráin kominn á lægsta pall sem hægt er að komast á með þessu 10 dollara efni þ.e ef þessi þáttur hefður kostað svo mikið.

Við þig háttvirtur dagskrástjóri, ég myndi ganga um með hauspoka í dag þvílík var skömmin í gærkvöldi Devil og það sem meira er fyrir þetta er maður að borga stórfé!


Kaupþing - Gjaldþrota !

Ég er búinn að vera reyna komast inn á kaupthing.is og fæ ekkert nema villumeldingar, er bankinn minn nokkuð orðinn gjaldþrota og hættur starfsemi ?

Ég fæ bara þessa villumeldingur - hvar eru milljónirnar mínar !

 

Failed loading template

The type initializer for "System.ComponentModel.DefaultPropertyAttribute" threw an exception.

Template handler : /layout/template112.ascx

at System.ComponentModel.DefaultPropertyAttribute..ctor(String name)
at System.Reflection.CustomAttribute.CreateCAObject(Int32& propNum, Assembly& assembly)
at System.Reflection.CustomAttribute.GetObject()
at System.Reflection.CustomAttribute.CheckConsistencyAndCreateArray(CustomAttribute caItem, Type caType)
at System.Reflection.CustomAttribute.GetCustomAttributes(MemberInfo member, Type caType, Boolean inherit)
at System.Reflection.CustomAttribute.GetCustomAttributes(Type type, Type caType, Boolean inherit)
at System.RuntimeType.GetCustomAttributes(Boolean inherit)
at System.ComponentModel.TypeDescriptor.GetCustomAttributes(Type type)
at System.ComponentModel.MemberList.ReflectGetCustomAttributes(Type classToReflect, Type metadataType)
at System.ComponentModel.MemberList.GetAttributes()
at System.ComponentModel.ComponentEntry.GetAttributes(Object component)
at System.ComponentModel.MemberList.ReflectGetCustomAttributes(Type classToReflect, Type metadataType)
at System.ComponentModel.MemberList.GetAttributes()
at System.ComponentModel.ComponentEntry.GetAttributes(Object component)
at System.ComponentModel.MemberList.ReflectGetCustomAttributes(Type classToReflect, Type metadataType)
at System.ComponentModel.MemberList.GetAttributes()
at System.ComponentModel.ComponentEntry.GetAttributes(Object component)
at System.ComponentModel.MemberList.ReflectGetCustomAttributes(Type classToReflect, Type metadataType)
at System.ComponentModel.MemberList.GetAttributes()
at System.ComponentModel.ComponentEntry.GetAttributes(Object component)
at System.ComponentModel.MemberList.ReflectGetCustomAttributes(Type classToReflect, Type metadataType)
at System.ComponentModel.MemberList.GetAttributes()
at System.ComponentModel.ComponentEntry.GetAttributes(Object component)
at System.ComponentModel.TypeDescriptor.GetAttributes(Type componentType)
at System.Web.UI.TemplateControl.LoadControl(Type t)
at System.Web.UI.TemplateControl.LoadControl(String virtualPath)
at Innn.Lisa.Web.WebPage.OnInit(EventArgs e)

InnerException : Field not found: ?.Default.
at System.ComponentModel.DefaultPropertyAttribute..cctor()


skurður, pillur eða tyggjó ?

Offita er mikill vandi í Bretlandi líkt og víða...

Nei nú er mælirinn fullur ! Fyrst bauðst manni magaminnkunar uppskurður, svo kom pillan og hvað svo nú er komið tyggjó ?  Hvenær endar þetta og ég sem er alltaf að puða í Hreyfingu !!!! Þetta er auðvitað ekkert annað en ÓSANNGJARNT og ekkert annað.  Maður hefur misst nokkur kíló með hörku púli og miklum svita og svo kemur þetta!  Maður var einum of fljótur á sér, ég hefði getað farið í bíó spjattað á tyggjó og orðið fit.

Hver segir svo að lífið sé sanngjarnt ?  Blush


mbl.is Vonir bundnar við tyggigúmmí í baráttunni við offituvandann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Austfirðir, nei takk !

Til hamingju Valgerður með að hafa kosin til forystu sæti flokksins.  Það er sem manni bregður við er hversu mikla höfnun Austurland fær í þessu vali þar sem þeim er hreint og beint hafnað af flokknum.  Þetta er þó sá landshluti sem um aldir var nánast óskráð regla að annar hver maður var framsóknarmaður og restin skiptist á milli annara stjórnamálaafla í landinu.  Er þetta leið Framsóknaflokksins til þess að auka fylgi sitt á landsvísu?  Eða er þetta leið flokksins til þess að segja bless á 90 ára starfsafmæli sínu?  En eitt er þó víst að austfirðingar geta ekki sætt sig við þessa útreið sem þeir fá.  Því held ég að margir austfirðingar hvar sem svo þeir eru búsettir á landinu segi einfaldlega - Nei takk við Framsóknarflokkinn í næstu kosningum !
mbl.is Gengið frá framboðslista Framsóknarflokks í Norðausturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband