Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Forsætisráðherra kaffibandalangsins og týndi formaðurinn

steingrímur jÁ fréttavef vísir.is er haft eftir Steingrími J. að það viðri vel til falls ríkisstjórnar, þessi ummæli dæma sig að mestu leyti sjálf.  Það er dapurlegt ef rétt er að þetta sé eina markmið Vinstri Grænna þe að fella ríkisstjórnina!  Hefði haldið að Steingrímur og félagar gætu verið málefnalegri en þetta.
En það þykir orðið ljóst að Steingrímur er forsætisráðherra efni kaffibandalangsins verði það að veruleika, það virðist reyndar vera orðið gleymt hjá Samfylkingarfólki að þetta bandalag hafi einhvertíman verið stofnað og tala menn um að þetta sé kaldakaffibandalagið, allur ilur farin úr bollanum eftir að Steingrímur áttaði sig á að hann væri í betri samningsstöðu en formaðurinn sem er nú týndur!  Það er einkennilegt að það virðist ekkert sjást til Ingibjargar Sólrúnar þegar stjórnarandstaðan heldur þinginu í þeirri gíslingu sem það er komið í, það eitt er grátlegt út af fyrir sig þegar flokkar geta haldið "maraþon" ræður til þess eins að tefja málin, þetta myndi hvergi líðast í kringum okkur!
En meiri athygli vekur að Rúv frumvarpið hefur fengið meiri athygli Vinstri grænna en kárahnjúkarnir þegar þeir fóru í gegum þinghúsið, merkilegt nokk!  En skyldi Össur vera taka við af Ingibjörgu aftur? Til þess að reyna ná fylgi flokksins upp aftur eftir skandalinn hennar Ingibjargar !?
Fréttablaðið, 20. jan. 2007 08:15

Viðrar vel til falls ríkisstjórnar

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, segir stöðuna vænlega til að fella ríkisstjórnina. Stjórnarandstaðan, sem stillti saman strengi sína í haust um sameiginlegar áherslur í velferðarmálum, sé sterk og samhent. Þetta sagði hann í ræðu sinni á flokksráðsfundi sem hófst í gær.
Steingrímur gerði trúverðugleika að umtalsefni í ræðu sinni. Átti hann þá við trúverðugleika Vinstrihreyfingarinnar, stjórnmálamanna, stjórnmálaflokka og stjórnmála í heild sinni.
„Ég held því fullum fetum fram að við eigum þennan trúverðugleika í augum þjóðarinnar," sagði hann. „Það þýðir ekki að allir kjósi okkur, en þetta er dýrmætt og verður ekki af okkur tekið."
Hann sagði flokkinn þurfa að greina stærstu og mikilvægustu lykilspurningarnar sem þjóðin þarf að svara með atkvæðaseðli, hvort sem þær séu um velferðarmál, umhverfismál, jafnréttismál eða efnahagsmál. „Okkar markmið er að það sé öruggt að atkvæði til vinstri grænna séu skýr skilaboð frá kjósendum í þessum efnum," sagði Steingrímur.

Gestur númer 12.000

Um leið og ég vil þakka öllum sem hafa verið að koma inn á síðuna mína frá því ég byrjaði að blogga um miðjan nóvember.  Nú hefur gestafjöldinn náð 12.000 heimsóknum sem ég bjóst aldrei við að ná.

Eins og ég sagði frá í gær ákvað ég að veita þeim gesti verðlaun sem myndi vera númer 12.000 og kynni ég hann nú til sögunnar

img_4301_custom
Sveinn Ingi Lýðsson
Sveinn Ingi hefur lengi haft mikinn áhuga á þjóðmálum. Hann er mikill áhugamaður um umferðarmál og hefur starfað sem ökukennari í hlutastarfi í rúman áratug. Þar áður sem löggæslumaður í 20 ár en starfar núna við Umferðareftirlit Vegagerðarinnar. 
 
Endilega kíkið á bloggið hans hér
Sveinn, endilega sendu mér heimilisfangið þitt í tölvupósti og ég sendi þér verðlaunin eftir helgi.

Áhugavert mál

Það verður áhugavert að fylgjast með máli Damon gegn Hönnun.  Eins einkennilega og það hljómar þá virðast þær verkfræðistofur sem taka að sér verkeftirlit litla sem enga ábyrgð bera á verkinu.  Það þyrfti að setja skýrar reglur um verkeftirlit og það væri gott verkefni fyrir umboðsmann neytenda að kalla eftir þeim.  Ég þekki dæmi þess að Línuhönnunn gerði kostnaðarmat og sá um verkeftirlit á verki sem átti að hljóða upp á 29 milljónir en áður enn menn vissu af var verkið komið í 70 milljónir en endaði svo í rúmum 100 milljónum og þetta er fyrir 15 árum síðan!  Það hefur lítið sem ekkert breyst í þessum málum síðan þá, því miður!
mbl.is Damon Albarn stefnir Hönnun hf.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðlaun í boði !

Já nú slær maður bara til keppni svona í tilefni þess að bóndadagurinn er liðinn.

Þar sem 12 þúsund markið er að falla þá hef ég ákveðið að vera með spá keppni og sá sem verður gestur núm 12.000 hér á síðunni minni hlítur veglegan vinning.

Sá sem verður númer 12.000 endilega skrifaðu í athugasemdir við það blogg sem í gangi er á þeim tíma svo ég viti hver er réttmætur vinningshafi


Egill bloggari

Nýr bloggvinur hefur bæst í hópinn, reyndar aldagamall vinur minn veraldlegu lífi en nýr hér á þessu sviði LoL

Við erum nánast aldrei sammála um neitt sem snýr að stjórnmálum enda er hann með einstaklega "skrýtnar" hugmyndir í þeim efnum, nema það sé ég eða bara við báðir Wink

Ég kynni til sögunnar Egill Rúnar Sigurðsson, stjórnmálafræðing, ökukennara, framkvæmdastjóra, gleðigaurinn, taflmanninn og samfylkingardólgin Tounge


Þar kom skýringin

Mary krónprinsessa Dana.Það er ekki furða að íslenska þjóðin er eins fögur og hún er.  Kæru landsmenn bræður og systur við erum ekki komin af neinu "ljótu" fólki heldur aðalnum í danaveldi sem nú hefur fengið einn verðlaunapeningin enn í safnið nú þegar Mary krónprinsessa hefur verið kosin glæsilegasta kona heims.  Það eitt gæfi tilefni til þess að selja Bessastaði og aðhyllast danskri konungsfjölskyldunni á nýjan leik.... eða kannski ekki, þetta var kannski full mikið af því góða.  Við breytum bara Bessastöðum í hótel LoL
mbl.is Mary krónprinsessa valin glæsilegasta kona heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreindýr - Nú fer hver að verða síðastur !

MBL0123692Nú hafa borist tæplega 1.200 umsóknir umsóknir um leyfi til þess að veiða hreindýr fyrir austan og enn eru nokkrir dagar til stefnu því fresturinn rennur út 15 febrúar n.k.  En það þykir orðið ljóst að þrátt fyrir stóraukinn kvóta þá verður eftirspurnin margfalt meiri, kvótinn er í dag 1.137 dýr en fróðir austfirðingar telja að umsóknirnar muni fara u.þ.b 2.000 - 2.200, en ekki skal ég segja neitt um það, geri bara ráð fyrir að ég fái þau dýr sem ég hef sótt um Wink og þá verða allir sáttir !


Kastljós komið á fullt - passið ykkur !

 

Nú mega menn fara að vara sig, samkvæmt nýjustu fréttum þá ætlar Kastljós að efla fréttaöflun sína til muna og hafa ráðið rannsóknarblaðamann til starfa, til hamingju Ísland því ég fæddist hér, ég segi nú bara ekki meira.  Ég hefði haldið að það væri eða öllu heldur væru rannsóknarblaðamenn sem væru nú þegar við störf hjá Kastljós eða fréttastofu ríkisútvarpsins við öflun og rannsóknarvinnu frétta!  En samkvæmt þessari frétt hefur svo ekki verið.  Ég geri ráð fyrir að spyrlar þáttarins verði beinskeyttari nú sem aldrei fyrr.

 

Vísir, 19. jan. 2007 11:00

Rannsóknarblaðamaður í Kastljósið

Friðrik Þór Guðmundsson hefur verið ráðinn í sérverkefni fyrir Kastljós í sjónvarpinu. Hann mun sinna rannsóknarvinnu bak við tjöldin.
„...muni ég sinna rannsóknarvinnu fyrir fréttastofu Ríkissjónvarpsins og Kastljós, en um er að ræða tilraunaverkefni til 3-4 mánaða og áframhaldið auðvitað háð árangri," segir Friðrik á bloggsíðu sinni.
„Það gefur augaleið að ég dáist að framtakinu hjá Elínu og Þórhalli en segi vitaskuld ekkert um hvort ég sé akkúrat rétti maðurinn - það er annarra að meta," segir Friðrik.


Ílla lyktandi matur - bjargar málunum !

eða er það svo?  Nú er bara spurningin hvort það verði ílla lyktandi þorramat að þakka ef Guðni vinnur 1 sætið á listanum og bolar þannig Hjálmari frá ! 
mbl.is Lauk kosningabaráttunni með þorramat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samráð enn og aftur ! ?

Það er vægast sagt ótrúlegt að fylgjast með þessu dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár án þess að nokkuð sé gert í málinu.  Ég er alveg viss um að þessir ágætu menn þeir sleppa sökum einhvers formgalla á máli gegn þeim í meintu samráðsmáli olíufélaganna.  En það er grátlegt að fylgjast með umboðsmanni neytenda, algjörlega seingeldur,  sem aðhefst ekki neitt.  Í dag tilkynna öll helstu olíufélögin sömu lækkunina og það heila 50 aura á líter, skyldu þeir komast yfir þessa lækkun án þess að þurfa skera verulega niður hjá sér annarstaðar í rekstrinum?  Það er sorglegt að fylgjast líka með samkeppniseftirlitinu sem aðhefst heldur ekki neitt frekar en fyrridaginn og ef þeir myndu taka sig taki og gerðu eitthvað þá eru þeir svo hægfara að það myndu líða ár og öld áður en nokkuð kæmi frá þeim.

Það sem gera þarf er einfaldlega er að skipta út umboðsmanni neytenda og fá einhvern VIRKAN áhugasaman einstakling í starfið !  Einhvern sem tekur af skarið og segir hingað og ekki lengra.

Ég held að ég geti sagt fyrir marga að maður er alveg að fá upp í háls af þessum olíufélögum.... Devil


mbl.is Skeljungur og Olís lækka verð á eldsneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband