Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006

Ráðstafanir gerðar vegna hótana í garð lögreglu

Hvert er þjóðin að fara!  Erum við virkilega orðin svona ofstækisfull að lögreglan verður að klæðast sérstökum hlífðarvestum.  Er það næsta skref sem við sjáum lögregluna á íslandi taka að þeir fari að bera skotvopn sem staðalbúnað.  Ég segi NEI TAKK ! 

Geta þeir ekki hafið uppá þessum ofstækismönnum og tekið þá úr umferð eitt skipti fyrir öll.

Hitt er svo annað mál að það þarf að skoða tilfellið þar sem maður lést hjá þeim með mjög gagnrýnum augum og sjá hvað fór úrskeiðis.  En hótanir hafa aldrei skilað neinu og munu ekki gera.


mbl.is Ráðstafanir gerðar vegna hótana í garð lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stekkjastaur kemur í nótt.

stekkjastaur01 

 

Stekkjastaur kom fyrstur,

stinnur eins og tré.

Hann laumaðist í fjárhúsin

og lék á bóndans fé.

 

Hann vildi sjúga ærnar,

- þá varð þeim ekki um sel,

því greyið hafði staurfætur,

- það gekk nú ekki vel.

 

(Jóhannes úr Kötlum) 


Jólasveinarnir

 

jólasveinar 01

 

Segja vil ég sögu

af sveinunum þeim,

sem brugðu sér forðum

í bæina heim.

 

Þeir uppi á fjöllum sáust,

- eins og margir veit, -

í langri halarófu

á leið niður í sveit.

 

Grýla var þeirra móðir

og gaf þeim tröllamjólk,

en pabbinn Leppalúði,

- það var leiðindafólk.

 

Þeir jólasveinar nefndust,

- um jólin birtust þeir.

Og einn og einn þeir komu,

en aldrei tveir og tveir.

 

Þeir voru þréttán,

þessir heiðursmenn,

sem ekki vildu ónáða

allir í senn.

 

Að dyrunum þeir læddust

og drogue lokuna úr.

Og einna helzt þeir leituðu

í eldhúsi og búr.

 

Lævísir á svipinn

þeir leyndust hér og þar,

til óknyttanna vísir,

ef enginn nærri var.

 

Og eins, þó einhver sæi,

var ekki hikað við

að hrekkja fólk - og trufla

þess heimilisfrið.

 


Helgin

Það er óhætt að segja að maður hafi haft nóg að gera um helgina.  Á laugardagskvöldið fórum við á jólahlaðborð á Hótel Borg (silfri).  Það er aðeins til eitt orð yfir jólahlaðborðið það...... STÓRKOSTLEGT, boðið var upp á ýmislegt sem maður á kannski ekki að venjast á jólahlaðborðum eða annarsstaðar s.s. kengúrukjöt og dádýrakjöt, hvoru tveggja var skemmtileg nýjung sem gaman var að smakka.  Skemmtidagskráin var heldur ekki af verri endanum, þar voru þeir félagar Bergþór Pálsson og Helgi Björns sem tóku nokkur vel valin lög, reyndar hefði ég vilja heyra 1-2 jólalög en það er nú einu sinni svo að maður fær ekki allt sem maður vill Smile

Endilega skoðið matseðilinn hjá þeim á Hótel borg  www.hbveitingar.is

Á sunnudeginum fórum við eins og sagt er frá í fyrra bloggi að höggva jólatré í Brynjudal og þegar heim var komið var húsfrúin á heimilinu byrjuð að elda kalkún fyrir kvöldið, enda vorum við með 11 manns í mat og drykk.  Það var komið að fyrsta jólaboðinu á þessu herrans ári 2006.  Buðum við uppá fylltan kalkún með öllu tilheyrandi og svo ís og marssósu á eftir.  Gómsætt og skemmtilegt kvöld þar á ferð.  Það er alltaf gaman þegar fjölskyldan er saman kominn til þess að gleðjast enda eru þar á ferð mestu gleðistundirnar sem maður á.

 


Jólatréið fallið og komið í hús.

Tilbuinn ad sagaJæja þá er fjölskyldu jólatréið komið í hús.  Ég og eldri dóttir mín hún Hafdís Hrönn fórum með vinum okkar upp í Brynjudal að finna fallegasta, jólalegasta og stærsta tréið til þess að saga niður og koma með það heim.  Það er óhætt að segja að við höfum fundið stórt tré því dóttirin sættist ekki á neitt annað tréið sem við völdum sem var svo sem allt í lagi en það er ca 2,4m á hæð....

þetta verður líklegast eins og í Christmas vacation myndinni tréið sprengir allt utan af sér.  Neinei við erum búinn að mæla þetta allt saman, en líklegast verður fjölskyldan að flytja á hótel á meðan jólatréið fær að skarta sínu fínasta í stofunni gestum og gangandi til mikillar gleði Tounge  en þetta kemur svo sem allt í ljós á föstudaginn þegar við ætlum að skreyta jólatréið.

  

     

  


Grænir lyfseðlar !!!

Ég vil vekja athygli á nýrri færslu á bloggsíðunni hans Björns Inga.  Hann tekur þar fyrir málefni sem ég er honum svo hjartanlega sammála.  Hann ræðir þar um mikilvægi forvarnargildis þess að stunda líkamsrækt og hvort ekki væri eðlilegt að ríkið kæmi með einhverju móti á móts við þá sem stunda almenna líkamsrækt.  Hægt væri að hugsa um þessa iðju fólks sem "grænan lyfseðil" þe lyfseðill án lyfja sem tekið hefur verið upp víða erlendis.  Það er spurning hvort td þeir styrkir sem kæmu frá borg, bæ, fyrirtækjum eða verkalýðsfélögum vegna líkamsræktariðkunnar ættu ekki að vera skattfrjálsir, reyndar myndi ég vilja teygja minn enn lengra og segja að þeir sem stunduðu líkamsrækt ættu að geta dregið þann kostnað að fullu frá skatti.  Það þarf ekki að fara mörgum orðum um mikilvægi líkamsræktar fyrir alla enda hreyfing nauðsynleg fyrir unga sem aldna í baráttu sinni fyrir betri líðan, heilsu og jafnframt baráttunni við einu mesta heilsufarsvandamáli nútímans þe offitu.

Endilega skoðið bloggið hans Björns Inga sem er einmitt formaður ÍTR svo vonandi kemur hann sterkur inn í þennan málaflokk í þágu allra. 

http://bingi.blog.is/blog/bingi/entry/88194/


Jólalest Coca-Cola ekur um hverfi borgarinnar

jolalestÞó svo að flestir sem til mín þekkja vita að ég er ekki sérstakur stuðningsaðili Vífilfells þá get ég ekki annað en glaðst yfir þeim jólaanda sem þeir koma höfuðborgarbúum í ár eftir ár.   Það er orðinn órjúfanlegur þáttur í undirbúningi jólanna að fara á hólinn hér í hverfinu til þess að sjá hina einu sönnu Coca Cola jólales streyma fram hjá fallega upplýsta og jólatóna sem fylla hverfið og hjálpa vonandi þeim sem af einhverjum ástæðum eru ekki komnir í jólaskap að skella sér í gírinn.

Í ár voru það 5 upplýstir trukkar sem keyrðir voru af jólasveinum , ég get vart líst gleðinni sem skein frá litlu telpunum okkar og svo maður játi nú auðvitað frá okkur hjónunum líka.

 


Ekið með undirskriftir frá Selfossi til Alþingishúss

banner

Þetta er hreint frábær árangur að ná 25.000 undirskriftum á 5 dögum.  Háttvirtur Samgöngumálaráðherra hlýtur að daga þetta mál undir sinn verndarvæng og tryggja málinu skjóta meðferð og að það verði sett á forgangslista vegaáætlunar.  Það tala allir um að það sé þverpólitísk sátt um þessa aðgerð og því er ekkert til fyrirstöðu að koma málinu af stað STRAX.

 


mbl.is Ekið með undirskriftir frá Selfossi til Alþingishúss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei meiri ásókn í dælulykla hjá Atlantsolíu

163239BOg allir saman nú 1-2-3

www.atlantsolia.is

Þarf að segja meir?  Eða viljum við verðlauna Olís, Essó og Shell mikið lengur!


mbl.is Aldrei meiri ásókn í dælulykla hjá Atlantsolíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hús Magasin vettvangur jóladagatals DR

181581BSkyldi þetta vera "afsökunarbeiðni" frá frændum okkar Dönum eftir allt skítkastið upp sem hefur verið í gangi undanfarið.... Það skyldi þó aldrei vera en Siguður í KB Banka hafi fengið greidda rauðvínsflöskuna líka LoL

 

Viðskipti | mbl.is | 7.12.2006 | 8:34

Danskir fjölmiðlar segja, að danska ríkissjónvarpið, DR, hafi gefið Magasin verslunarkeðjunni stóra jólagjöf en jóladagatal DR, sjónvarpsþættir fyrir börn í desember þar sem dagarnir fram til jóla eru taldir niður, gerast m.a í og undir stórverslun Magasin við Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn og því sést hús eða vörumerki Magasin í öllum þáttunum 24.


mbl.is Hús Magasin vettvangur jóladagatals DR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband