Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006
18.12.2006 | 19:51
Sjöundi var Hurðaskellir
Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér væran dúr.
Hann var ekki sérstaklega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.12.2006 | 10:23
Sá sjötti, Askasleikir
Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus.
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.
Þegar fólkið setti askana
fyrir hött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lundBloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.12.2006 | 10:21
Sá fimmti, Pottaskefill,
Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.
Þau ruku´ upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti ´ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.
(Jóhannes úr Kötlum)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2006 | 00:05
34 mínútur í dauðateygjunum
Lyfin láku úr æðunum
Flórídaríki stöðvaði allar aftökur um óákveðinn tíma eftir að niðurstöðurnar lágu fyrir.
Hæstaréttardómari í fylkinu sagði í kvöld að löggjöfin um það að dauðarefsingum skuli framfylgt með þessum hætti sé meingölluð og standist ekki stjórnarskrá. Hann sagði hins vegar að ekki þyrfti endilega að hætta við sprauturnar, löggjöfina mætti lagfæra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.12.2006 | 21:51
Sá fjórði, Þvörusleikir,
Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.
Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.
(Jóhannes úr Kötlum)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.12.2006 | 19:33
Greinapróf fyrir alla verkfræðinema - STRAX - takk fyrir !


Verkfræðinemar leiðbeina um sprengjugerð
Ítarlegur leiðarvísir á íslensku um sprengjugerð og kveikibúnað hefur verið öllum aðgengilegur á heimasíðu verkfræðinema í Háskóla Íslands. Sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar segir ótrúlegt að til sé fólk sem birti svo háskalegar upplýsingar.Í saklausri leit að kökuuppskrift gúglaði maður saltpétur á netinu og rakst þá á þessa ítarlegu handbók á íslensku um sprengjur.
Í handbókinni er farið yfir sprengiefni, meðal annars er sagt frá áburði sem notaður var til að sprengja byggingu í Oklahóma og drap 168 manns. Eins og segir í handbókinni íslensku þá rústaðist byggingin þannig að öll framhliðin sprengdist í tætlur.
Þarna eru líka nákvæmar leiðbeiningar um hvernig eigi að búa til rörasprengju og fjarri því að fólk sé hvatt til að láta sprengjugerð vera - þvert á móti - þar segir : þegar þú sprengir reyndu þá að snúa töppunum frá þér.
Og svo er farið yfir einfaldan kveikibúnað fyrir sprengjur, t.d. hvernig þú getur útbúið kveikjubúnað með fjarstýrðum bíl - nú eða tímasprengju með vekjaraklukkunni þinni.
Óvíst er að foreldrar séu verkfræðinemanum þakklátir svona rétt fyrir gamlárskvöld þegar krakkar eru líklegri en á öðrum árstímum til að fikta við sprengjugerð í óvitaskap sínum. Sprengjusérfræðingur hjá Landhelgisgæslunni segir ótrúlegt að til skuli vera fólk sem birti upplýsingar af þessu tagi á netinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.12.2006 | 12:15
Nær öll íslensk fyrirtæki nýta tölvur og netið

![]() |
Nær öll íslensk fyrirtæki nýta tölvur og netið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.12.2006 | 00:47
Stúfur hét sá þriðji
Stúfur hét sá þriðji
Stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.
Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.
(Jóhannes úr Kötlum)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.12.2006 | 22:44
Skytturnar þrjár munda olíubyssurnar með lögmannaher !!!
Skytturnar þrjár munda olíubyssurnar með lögmannaher !!!
Það er svo einkennilegt að fylgjast með umræðunni á netinu vegna ákvörðunar Ríkissaksóknara hvað varðar að ákæra forstjóra Olís og fyrrum forstjóra Essó og Shell.
Fólk virðist vera kætast yfir tæknilegum mistökum annara og segja nú vinnur réttlætið.
En ég spyr er það svo? Ég held ekki, þá kunna einhverjir að spyrja hvers vegna, jú vegna þess að það er sama hvernig þessir ágætu herramenn verða dæmdir hvort heldur sem er til greiðslu sekta eða til fangavistar þá eru það alltaf við neytendur sem þurfum að greiða brúsann. Ef einhver okkar heldur að þeir muni greiða sektirnar úr eign vasa þá er það stór misskilningur, olíufélögin munu að sjálfssögðu greiða fyrir þá nú ef þeir verða dæmdir til fangelsisvistar þá skal ég hundur heita ef þeir fái ekki greiðslur frá olíufélögunum fyrir. Jafnframt þá mun lögfræðiher þeirra munda olíubyssurnar til þess að verjast með kjafti og klóm með tilheyrandi kostnaði. En hverjir skyldu svo greiða fyrir öll þessi herlegheit á endanum ?
Hverjir aðrir en við neytendur með því að versla við þessi þrjú olíufélög (Olís, Essó og Shell).
En ég tel að stærsta refsingin sem þessir ágætu herramenn og fyrirtæki geta fengið er sú ef við myndum hætta að versla við þau! Það er það eina sem þau myndu skilja, þe þegar það kemur við budduna þeirra !
Við skulum svo vona að málarekstur ríkissaksóknara sé betur undirbúinn en Baugsmálið með endalausum áfrýjunum fram og til baka!
Svona til gamans, ef þú verslar við þessi fyrirtæki ertu að styðja samráðið!
![]() |
Þrír einstaklingar ákærðir vegna samráðs olíufélaganna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.12.2006 | 13:56
Giljagaur kom annar,
Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- hann skreið ofan úr gili
og skauz í fjósið inn
Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Nýjustu færslur
- 19.8.2011 Þetta er var ekki okkur að kenna!
- 7.8.2011 Munu flugmálayfirvöld ekki gera ástandsskoðun á vélum Iceland...
- 5.8.2011 Sagan endurtekur sig... þetta eru ekki við heldur þeir!
- 5.8.2011 Er Iceland Express þjónustufyrirtæki?
- 11.3.2010 Kristján Þór - Styrkir sig með hverjum deginum og þorir að se...
Eldri færslur
- Ágúst 2011
- Mars 2010
- September 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Fjölmiðlar
Tenglar á þá fjölmiðla sem ég les, þekki eða bara veit af!
- MissB
- SSB - Sjónvarpsstöð Sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti Stútfullur fróðleiksbrunnur
- Blaðið Það er bara þarna
- Deiglan Alveg ómissandi lesning
- Eyjafréttir Ekki spyrja mig afhverju !
- Þórshafnarfréttir Set þetta inn bara fyrir Rúnar
- Austurglugginn Allt gott kemur að austan
- Vísir Keyptar fréttir....? Gæti verið, hver veit
- Morgunblaðið...Málgagn þjóðarinnar Það eina sem þarf !
Skemmtilegir tenglar
Hér mun ég setja áhugaverða tengla sem gætu komið sér vel svona til þess að slóra eða stytta daginn.
- Handverkskona ársins 2007 -Miss B Besta handverkskona landsins og svei mér þá ef víða væri leitað.
- Hafsteinn - bloggar Heimsborgari á íslenskan mælikvarða, ferðast um landið jafn oft og reykvíkingar fara niður Laugarveginn
- Viltu vera í sambandi Ekkert vodafone...aðeins það besta Síminn
- Eru ekki allir tryggðir Þar sem tryggingar snúast um fólk!
- Reykjavík Nauðsynlegt til að vita hvað er að gerast í borginni
- Sjálfstæðisflokkurinn Máttastólpi íslenskt samfélagsins
- Jólahúsið Það styttist hratt í jólin.
Bloggvinir
-
Birna M
-
Dögg Pálsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Egill Rúnar Sigurðsson
-
Einar Lee
-
Eiður Ragnarsson
-
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
-
Vilberg Tryggvason
-
Púkinn
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
gudni.is
-
Gunnar Björnsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Haraldsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Heiðar Már Guðlaugsson
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Jórunn Sigurbergsdóttir
-
Kári Sölmundarson
-
Grafarholtssókn
-
Kristbjörg Sigurðardóttir
-
Lady Elín
-
Guðjón Baldursson
-
Alfreð Símonarson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
viddi
-
Ólafur fannberg
-
Pálína Erna Ásgeirsdóttir
-
Páll Vilhjálmsson
-
Óþekki embættismaðurinn
-
Reynir Jóhannesson
-
Rýnir
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sjálfstæðissinnar
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Halldór Sigurðsson
-
Þorsteinn Gunnarsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefanía Sigurðardóttir
-
Sveinn Hjörtur
-
Sveinn Tryggvason
-
Þóra Sigurðardóttir
-
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
-
TómasHa
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Vefritid
-
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
-
Vilborg G. Hansen
-
Birgir R.
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnar Gunnarsson
-
Kristján Guðmundsson
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Theodór Bender