Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006

Rangt farið með hvenær vél BA - Tíminn kostar sitt !!

ba_plane_gateway_transparent

Það skiptir auðvitað öllu máli hvort vélin lenti kl 12.30 eða 14.15.  Ég vona það að fólk geti tekið ró eftir slíkt áfall, þetta er nú bara svona venjuleg seinkun á flugi Icelandair dags daglega Wink frá London.


mbl.is Rangt farið með hvenær vél British Airways lenti á Íslandi í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er einhver hissa, sá hinn sami rétti upp hönd !!

Ég bara spyr er einhver hissa á að stunduð séu óvönduð vinnubrögð þegar gamli ritstjóri DV á í hlut?  Vinnubrögðin sem voru/eru stunduð á DV eru nú ekki til þess að hrópa húrra fyrir enda mörg dæmi þess að fréttafluttningur þar á bæ hafi frekar átt heima í jólabókaflóði landsmanna í deild - skáldsagna en í dagblaði.  Ég væri til í að éta hattinn hans Reynis ef vinnubrögðin hefðu lagast eitthvað þegar hann flutti sig úr starfi DV yfir í Ísafold....  Það er nú einu sinni svo að erfitt er að kenna gömlum hundi að sitja.


mbl.is Ritstjórar Ísafoldar segja landlækni fara með alvarlegar rangfærslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherra að leik

gudniRakst á þessa frétt í fréttablaðinu í gær, spurningin er skyldu sumir vera orðnir eitthvað óvissir með framtíðina Wink
Vísir, 20. des. 2006 16:30

Rammíslensk rödd ráðherrans

„Já, hélstu kannski að einhver væri að herma eftir mér?" spyr Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra.
Margir þeir sem fylgdust með heimildarmynd Egils Eðvarðssonar um ferð Frummanna til Bandaríkjanna, til að taka upp plötu sína, í Ríkisútvarpinu á mánudagskvöld, ráku upp stór eyru þegar þulurinn tók til máls. Kunnugleg rödd en úr allt öðru samhengi. Svo kunnugleg að ekki fór á milli mála hver las. Þar var Guðni lifandi kominn.
„Já, þeir vildu rammíslenska rödd til að túlka ferðalag Frum-manna vestur um haf. Þeir leituðu bara til mín og ég vildi gera þetta fyrir þá. Þjóðarsnillingar miklir og ég lét á þetta reyna."
Guðni segist vera aðdáandi Stuðmanna, reyndar var ekki betur að heyra en Guðna þætti þessi spurning hin sérkennilegasta.
„Þetta eru snillingar. Eilífðarsnillingar. En, já, þetta er frumraun mín á þessu sviði," segir Guðni.
Ráðherra gerir ekki ráð fyrir því að hann muni leggja þularstörf fyrir sig í framtíðinni þó vel hefði til tekist.
„Jújú, það er kannski ágætt að eiga einhverja öryggisbáta. Ég gat ekki neitað þessum ágætu drengjum um að verða við þessari furðulegu bón. En mér fannst þetta skemmtilegt verkefni."
Textinn sem Guðni las var tekinn upp í Efstaleiti. Og ekki höfðu þeir Frummenn fyrir því að bjóða ráðherra borgun fyrir starfið.
„Nei, þeir nefndu ekki peninga. Og ég spurði ekki um peninga."- jbg


Hin eina sanna jólaauglýsing

Set hér inn til gamans hina einu sönnu jólaauglýsingu.  Ef við komumst ekki í jólafílinginn á því að horfa á þessa þá einfaldlega er hægt að kalla mann skrökkur (Grinch)

 


Heilaskemmdir af völdum áfengisneyslu geta gengið til baka - Þá er því reddað !

Nú getum við andað rólega, þessu er reddað, við getum drukkið mið-fim-föst-lau og sun svo framalega sem heilinn fær að hvílast mán og þrið.                 * skáll * fyrir því Wink
mbl.is Heilaskemmdir af völdum áfengisneyslu geta gengið til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flugumferðarstjórar segja stjórn Flugstoða ekki vilja semja..... kemur á óvart !

Það skyldi þó ekki koma flugumferðarstjórum á óvart að Fligstoðir séu ekki á þeim buxunum að semja um þá kauphækkun sem þeir eru að krefjast um að fá?  Ég mæli reyndar með því að VR sameinist Félagi flugstjórnarmanna, þá færu þeir kannski að vinna betur fyrir sína félagsmenn !
mbl.is Flugumferðarstjórar segja stjórn Flugstoða ekki vilja semja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kraftlyftingar ! ?

strandið

 

Mögnuð fréttamynd, það er engu líkara en þetta sé kraftlyftingakeppni og hann sé að draga skipið upp að landi Smile


Segir launakröfur flugumferðarstjóra óforsvaranlegar - Pólverja takk!

Mikið lifandi skelfing er þetta að verða leiðinlegur hópur þessir flugumferðarstjórar þeir eru farnir að minna ótrúlega mikið á eina stétt í þessu þjóðfélagi sem er þekktur fyrir það að gráta miklum og stórum tárum Crying  Þetta er orðið fáránlegt hvernig þessir flugmálastjórar haga sér, þeir hafa verið í "verkfalli" síðustu ár, ætli það endi ekki með því að danaveldi eða noregur taki yfir íslenska flugstjórnarsvæðið.  En það er kannski spurning hvort við ættum ekki bara að flytja inn pólverja til þess að leysa þessi störf !

 


mbl.is Segir launakröfur flugumferðarstjóra óforsvaranlegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákvörðun um framboðslista

Jæja þá er komið að því á fimmtudag verður listi sjálfstæðismanna í Reykjavík kynntur fyrir bæði suður og norður kjördæmi Reykjavíkur.  Nú er bara bíða og sjá hvernig listinn hljóðar og ég efa það ekki að hann er sigurstranglegur.
=====

Eftirfarandi fundarboð barst frá flokksskrifstofunni í dag. 

Fundur verður haldinn í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
fimmtudaginn  21. desember kl. 17.15 í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Dagskrá         
1. Ákvörðun um framboðslista í Reykjavíkurkjördæmunum. 
2. Ræða, Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra. Stjórnin

Misnotkun á kerfinu !

Ég átti spjall við einstakling ekki alls fyrir löngu sem gerði mig algjörlega kjaftstopp!  Hvernig stendur á því að engir stjórnmálaflokkar, engar stofnanir nú eða engir einstaklingar taka á þeim málum sem lúta að misnotkun á kerfinu okkar!  Það er algjörlega ólíðandi í nútíma samfélagi að fólk skuli vera að skrá sig úr sambúð eða það sem verra er að slíta hjónabandi og skilja til þess að hagnast á því.  Hvers vegna eru engir sem vilja taka á þessum málum ?  Þessi ágætis maður sem ég ræddi við er til að mynda skilin við frúnna en þau búa að sjálfssögðu enn saman en hagnaðurinn við skilnaðinn sagði hann að væri í kringum 700-800.000 á ári þegar allt væri týnt til, getur þetta bara staðist?  Ég hef ekki tekið þessar tölur saman en það gæti verið athyglisvert að skoða þetta frekar, svona við tækifæri.  Þessi ágæti einstaklingur borgar t.d. fyrir börnin sín á leikskóla líkt og um væri að ræða einstæða foreldra, sama gildir auðvitað um barnabætur sem eru hærri til einstæðra foreldra. 

Ég vil láta taka á þessum málum í eitt skipti fyrir öll, svo að misnotkun á kerfinu líkt og virðist vera í gangi í stórum mæli hér í dag verði eytt. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband