Leita í fréttum mbl.is

Á 766km hraða í -50°C frosti...

Glugginn... að sögn flugstjórans í Flugleiðavélinni var þetta það sem lífið snerist um í gær þegar ég var á heimleið frá Köln, flaug frá Dusseldorf til Köben og svo frá Köben hingað heim á klakan.  Ekki leiðinlegt það.  Var alveg hreint ótrúlega heppinn í vélinni á leiðinni frá Köben og heim, það var svo fámennt, en góðmennt, að ég fékk heila sætaröð alveg útaf fyrir mig, leið eins og Sir Elton þegar hann kom á klakann í einkaþotunni, slíkt var plássið.  Ég gat skipst á að vinna, spila í PSP og fengið mér kríu þess á milli Smile alveg hreint magnað.  Ég bara spyr hver þarf einkaþotu sem hefur aðgang að Flugleiðum.......?  ekki ég Cool 

En eitt verð ég þó að játa ég fór að velta því fyrir mér öllu þessu öryggistékki sem er orðið á flugstöðvum um allan heim.  Erum við ekki akkúrat kominn í þá aðstöðu sem Bin Laden og hans fólk vill hafa okkur?  Maður þarf nánast að hátta sig og standa með útréttar hendur á meðan vopna- og eiturefnaleit fer fram á banni, eða svona því sem næst, ég þurfi í það minnsta að fara úr skónum og taka af mér beltið.  Ég er síður en svo að kvarta undan örygginu, en ég held samt að við séum í heljargreypum þeirra hryðjuverkahópa sem gerðu árásirnar 11 sept hér um árið!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Þú hefðir átt að upplifa 16 flug á 12 dögum eins og ég gerði rétt fyrir aðventuna.....  Reyndar voru 2 þeirra innanlanda og milli Egilsstaða og Reykjavíkur er nú ekki verið að hafa fyrir því að leyta of mikið á fólki, en í Ameríkuhrepp......  Lorturinn......

Eiður Ragnarsson, 1.2.2007 kl. 01:03

2 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Ferðu alltaf svona seint að sofa Óttar minn????

Eiður Ragnarsson, 1.2.2007 kl. 01:05

3 Smámynd: Óttarr Makuch

Veistu Eiður, allur sá tími sem fer í svefn er tími sem er sóað !  Ég er svona kvöld/nætur manneskja og vaki því lengi og vakna snemma

Óttarr Makuch, 1.2.2007 kl. 09:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband