Leita í fréttum mbl.is

Tilvalin uppskrift fyrir kvöldið.

Bang Bang kjúklingur

Uppskrift fyrir tvo:

450 gr. kjúklingabringur (skinn- og beinlausar)
1 hvítlauksrif, kramið undir hnífsblaði, ekki skorið
1/2 tsk svört piparkorn
1 lítill laukur skorinn til helminga
1 gúrka, frælaus og skorin í strimla
Salt og mulinn svartur pipar

Sósan:
3 msk. hnetusmjör
2 msk. AMOY Sesame Oil
1 msk. AMOY Light Soy Sauce
3 msk. kjúklingasoð
1 msk. vínedik
2 vorlaukar, smátt skornir
2 hvítlauksrif, pressuð
5 x 1 cm. engiferrót, skorin í stöngla á stærð við eldspýtu
Athugið! Engiferrótin er bragðsterk prófið ykkur áfram eftir smekk
1 msk. Sichuan piparkorn (má sleppa)
1 tsk. ljós púðursykur

Chilli olía:
4 msk. jarðhnetuolía eða önnur sambærileg
1 tsk. chilli krydd

 

1. Setjið kjúklinginn í pott og hellið vatni yfir þannig að það fljóti yfir
kjúklinginn. Bætið við hvítlauksrifinu, piparkornunum og lauknum og látið suðuna koma upp. Fleytið ofan af vatninu og bætið svo við salti og pipar eftir smekk. Látið sjóða á vægum hita í 25 mínútur eða þangað til kjúklingurinn er
meir. Sigtið vatnið frá að lokum en geymið soðið.

2. Búið til sósuna með því að blanda saman í skál hnetusmjöri, sesamolíu og
kjúklingasoðinu saman. (Athugið! hægt er að nota 3 msk. af ristuðu sesam mauki
í stað hnetusmjörs og sesamolíu). Bætið því næst sojasósunni, vínedikinu,
vorlauknum, hvítlauknum, engiferrótinni og Sichuan piparkornunum saman við.
Sykrið eftir smekk.

3. Búið chilli olíuna með því að hita jarðhnetuolíuna og chilli kryddið saman
þangað til hún fer að krauma og bíðið í 2 mínútur. Látið kólna og fleytið þá
rauðu olíuna ofan af.

4. Dreifið gúrkunni á diska, skerið kjúklingabringurnar í bita í sömu stærð og
gúrkan. Leggið kjúklingabitana ofan á gúrkustrimlana. Hellið sósunni yfir og
látið chilli olíuna drjúpa yfir eftir smekk.

Borið fram með hrísgrjónum eða Amoy eggjanúðlum.

 

Þessi uppskrift er í boði


Hvað er maður að hugsa

Ekki veit ég af hverju maður er að rífa sig upp á hverjum morgni kl 05.30 til þess eins að fara í leikfimi, sérstaklega þegar aðrir virðast hafa það svona náðugt Smile

 

Hitt er svo annað mál, það eru forréttindi að fá að fylgjast með borginni vakna og sjá hvernig hraðinn eykst smám saman þar til það verður algjör sprengja líkt og allir séu að verða of seinir í vinnu milli hálf átta og átta.
Góðan og gleðilegan mánudag, megi vikan vera ykkur ánægjuleg.

Hjúkk - sloppinn

Jæja maður slapp að þessu sinni að hlupa apríl.   Það er reyndar óhætt að segja að maður hafi farið þau nokkur svona í gegnum árin þó svo maður hafi frekar verið sá sem plataði einhverja aðra til þess að hlaupa... enda hreyfing holl fyrir alla Smile
mbl.is Aprílgöbb stór og smá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðurstöður álverskosninga - Kjósa þarf aftur!

Þegar maður veltir fyrir sér nýafstöðnum kosningum vegna álversins í Straumsvík þá getur maður ekki komist hjá því að spyrja sig "er þetta virkilega það sem fólk vill"?  Af hverju fengu ekki höfuðborgarbúar að kjósa um álverið í Straumsvík?  Því klárlega hefur þetta áhrif á fleirra fólk en sem býr í Hafnarfirði, hefði ekki verið eðlilegt að kjósa á stór Reykjavíkursvæðinu?

Það er annar punktur við þessar kosningar sem gaman væri að fá svar við þe er nóg að aðeins munaði 88 atkvæðum, er ásættanlegt að ekki sé afgerandi og skýr niðurstaða í kosningunni?  Niðurstaðan var sú að 50,3% sögðu nei en 49,7% sögðu já.  Vær ekki eðilegt með svona stórar ákvarðanir að niðurstaðan yrði að vera afgerandi t.d þyrfti 60% greiddra atkvæða til þess að málið sé samþykkt í einni kosningu, en ef það er mjög næmt á milli líkt og í þessari kosningu þá þyrfti að endurtaka kosninguna eftir 3-6 mánuði, þá ætti að koma afgerandi niðurstaða en ekki niðurstaða sem byggist kannski fyrst og fremst á heppni.  Ég spyr er íbúðalýðræðið að virka í Hafnarfirðinum í dag þegar aðeins 88 manns fá að ráða framtíð bæjarsamfélagsins.  Þetta er stórt mál sem ég tel að sé afar brýnt að meirihluti kjósenda verður að vera sáttur við, á hvorn vegin sem niðurstaðan er þá verður hún að endurspegla afgerandi meirihluta.  Eftir miklar vangaveltur tel ég eðlilegt að kjósa aftur um stækkun álversins í Straumsvík og opinbera með því sterkan vilja Hafnfirðinga um hvort þeir vilja hafna stækkun eða ekki.


Páskaeggjaleit í Elliðárdal - 7 apríl kl 14.00

Páskaeggjaleit í Elliðárdalnum, verður haldinn laugardaginn 7 apríl kl. 14.00 við gömlu Rafveitustöðina.

Krakkar á öllum aldri, mömmur, pabbar, afar og ömmur komið og njótið góðrar náttúru í góðra vina hóp.

Leitað verður að fagurskreyttum eggjum og börnin fá gómsætt súkkulaðiegg.

Leiktæki verða á staðnum og hoppukastali, keppt verður í húllakeppni.

Munið að taka körfu eða poka undir eggin sem páskahérinn hefur falið!

Hittumst öll hress og kát í Elliðárdalnum þann 7 apríl!

Félög sjálfstæðismanna í Breiðholti og Árbæ.


mbl.is Páskaeggjaleit á Ægisíðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SMS SMS SMS SMS SMS SMS

Góði hálsar,  er ekki eðlilegt að halda sms keppni hér á landi líka?  Ég er kannski ekki sá fljótasti en ég hlýt að vera í top?? sætunum, miðað við það magn sem ég sendi af sms á degi hverjum ætti ég það skilið að fá verðlaunaféið afhent strax í upphafi keppni.  En þar sem ég er yfirmáta samstarfsfús þá get ég fallist á það að taka þátt í formlegri keppni bara svona formlegheitanna vegna LoL


mbl.is Keppt í SMS-sendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann er tannlaus greyið takið eftir þvi...

... tönnunum hann týndi, sykur snúði í, nú er íllt í efni ekkert liggur á... tralala

Aumingja Gorillan að vera svona tannlaus, það er spurning hvort hún gæti ekki mætt á óskilamuna uppboðið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, mér skyldist að þar væru alltaf gómar á lausu Wink

 


Nóatún, Fjarðakaup eða Hagkaup.

Ég er viss um að eitthvað af þessum þremur fyrirtækjum þe Fjarðakaup, Nóatún eða Hagkaup eru tilbúinn að hleypa einokunarverslun ríkissins þe ÁTVR inn í sín verslunarhúsnæði í afmörkuð rými.

Það myndi samræmast stefnu forstjóra ÁTVR hann gæti þá fylgt eftir þeirri stefnu sem hann framkvæmdi þegar ÁTVR í Mjódd var færð yfir í Garðheima, flestum til mikillar undrunar nema þá eiganda Garðheima og Halldóri Ásgrímssyni.  Það er löngu orðið tímabært að bjóða íslenskum neytendum uppá þann möguleika að geta keypt sér vínber, osta og rauðvín á einum og sama staðnum líkt og gengur víðast hvar í kringum okkar.  Þessi einokunarstefna ÁTVR er úreld!

Það var því mikil synd að Vinstri Grænir skyldu hóta háttvirtu Alþingi íslendinga um að hefja málþóf og með því hindra að mörg brýn og góð málefni kæmust í gegn ef frumvarp um áfengissölu yrði afgreitt, þetta er sáraeinfalt mál, skaðlaust en veitir okkur þann sjálfssagða munað að geta verslað léttvín þegar við viljum, þar sem við viljum og hugsanlega á sanngjarnara verðið.


mbl.is ÁTVR vill opna nýja vínbúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er ég hissa.

Það kemur eflaust mörgun á óvart að Vinstri Grænir hafi verið á móti í þessu máli eins og svo morgum öðrum.  Það er löngu orðið tímabært að bæta húsakostinn á sem er við laugaveginn, enda vantar þar húsnæði sem hentar vel undir verslunarstarfsemi, mikið af því húsnæði sem er nú til staðar er þröngt í býður ekki uppá neinar breytingar.
mbl.is Leggjast gegn niðurrifi húsa við Laugaveg og Vatnsstíg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kæri eiginmaður

Sá þennan þessa stórskemmtilegu sögu á blogginu hans Haffa vinar mins, stóðst ekki mátið og setti hann hér inn líka, alveg brilljant..... 

Kæri  eiginmaður.

 
Ég skrifa þér þetta bréf því ég hef ákveðið að fara frá þér.

Ég hef verið þér góð eiginkona í sjö ár án þess að það hafi skilið nokkuð eftir.

Þessar síðustu tvær vikur hafa verið algjört helvíti.

Það sem fyllti mælinn var þegar yfirmaðurinn þinn hringdi í dag til að segja mér að þú
hefðir sagt upp vinnunni þinni  !!!!

Hvað varstu eiginlega að hugsa
??????

Í alvörunni, bara í síðustu viku komstu heim úr vinnu og tókst ekki einu sinni eftir því að ég hafði

farið í klippingu . Ég eldaði meira að segja uppáhalds matinn þinn og til að reyna að

vekja athygli þína klæddist ég glænýjum sexý náttkjól um kvöldið !!!!

Þú hinsvegar komst heim,gleyptir í þig hluta af matnum á innan við mínútu, fórst svo upp í rúm þar sem þú gláptir á fótboltaleikinn í sjónvarpinu eins og þú gerir ALLTAF ....áður en þú steinsofnaðir!!

Þú ert alveg hættur að segja að þú elskir mig og ert líka alveg hættur að snerta mig !

Annaðhvort ertu búinn að vera að halda framhjá mér eða elskar mig hreinlega ekki lengur.

Hver sem skýringin er.....þá er ég farin frá þér.

Ps.
Ekki reyna að hafa upp á mér.....því þú verður bara fyrir vonbrigðum því ég og Halldór bróðir þinn
höfum ákveðið að hefja búskap saman.

Vertu blessaður.......!

Þín FYRRVERANDI eiginkona !



Sagan endar þó ekki þarna...........

 

Kæra fyrrverandi eiginkona.
Mig langar að byrja á að segja þér að ekkert hefur glatt mig eins mikið lengi og að fá
bréfið frá þér í dag.
Það er rétt hjá þér að við höfum jú verið gift í sjö ár en að þú skulir

halda því fram að þú hafir verið mér góð eiginkona þessi sjö ár.....er ansi

langt frá sannleikanum verð ég að segja.

Rétt skal vera rétt og til að útskýra mína hlið á málunum þá þér að segja  horfi ég svona oft á fótboltann í sjónvarpinu til að losna við þurfa að hlusta á þetta stanslausa röfl í þér út af öllu og öllum ! Verst að það
virkar ekki eins vel og ég hefði viljað ! Og bara svo að þú vitir það þá tók ég

VÍST
eftir því að þú hafðir farið í klippingu í síðustu viku. En málið var að mér þótti klippingin

bara svo misheppnuð og hrikalega ljót enda leistu út eins og karlmaður! Og þar sem móðir mín elskuleg kenndi mér að segja frekar ekki neitt ef maður hefði ekkert fallegt að segja.. ....ákvað ég að þegja !
Eitthvað hefur þú svo ruglað mér saman við hann Halldór bróður  þegar

þú segist hafa eldað uppáhalds matinn minn því þér að segja hætti ég að borða svínakjöt fyrir rúmum sjö árum

síðan !!! Ástæðan fyrir því að ég fór að sofa þegar þú klæddist nýja sexý náttkjólnum þarna um kvöldið var einfaldlega sú að þegar ég sá verðmiðann aftan á náttkjólnum gat ekki annað en velt því fyrir mér hvort það gæti virkilega verið tilviljun að kjóllinn kostaði 3.999 kr. og að Halldór bróðir hafði fengið lánaðan hjá mér 4 þús. kall fyrr um daginn!!!!!!

En bara svo að þú vitir það þá elskaði ég þig þrátt fyrir allt og vonaðist til að við gætum reynt að
laga það sem farið hafði úrskeiðis í hjónabandinu.

Þannig að þegar ég svo uppgötvaði að ég hefði unnið í 572 milljónir í víkingalottoinu í dag ákvað ég

að segja upp vinnunni minni og koma þér á óvart með því að kaupa handa okkur tvo miða til Jamaika.
En þegar ég kom heim varst þú farin og mín beið bréfið frá þér.

Ég trúi því að það sé ástæða fyrir öllu.
Ég vona bara að þú finnir þá fyllingu í þeirri ákvörðun sem þú hefur tekið.
Lögfræðingurinn minn hefur tjáð mér að með bréfi þínu hafir þú fyrirgert rétti þínum til lottovinningsins

þannig að því miður fyrir þig er hann er alfarið minn.

Vona að þú hafir það bara gott í framtíðinni.

Já og meðan ég man...........er ekki alveg viss hvort ég sagði þér það nokkurntímann en Halldór bróðir er ekki
fæddur Halldór....heldur....Halldóra
.

Vona að það komi ekki að sök.

Með ótrúlega góðri kveðju frá Jamaika....

Hinn moldríki
og frjálsi FYRRVERANDI eiginmaður þinn!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband