7.4.2007 | 11:59
Borðarðu Cheerios eða Cocopuff´s í morgunmat?
Ertu í brúnum eða hvitum nærbuxum?
Notarður skó númer 30-35, 36-40 eða 41-45?
Finnst þér Olivur góðar?
Þessar spurningar væru auðvitað í lagi við ákveðnar kringumstæður en ef þú ert að færa bankaviðskiptin þín og þjónustufulltrúin spyr þig þeirra, þá er auðvitað eitthvað að!
Ef ég myndi segja já við að ég tengdist hryðjuverkastarfsemi að einhverju tagi, fengi ég þá ekki að stofna til viðskipta? Til að mynda er einstaklingur sem starfar við niðurrif á húsum hann er klárlega merktur hryðjuverkamaður hjá húsfriðunarnefnd og félögum þeirra
Ef móðir mín væri frá Kúbu og faðir minn frá Færeyjum fengi ég þá ekki að stofna bankareikning?
Ég spyr nú bara hvenær er nóg orðið nóg
![]() |
Ertu hryðjuverkamaður? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2007 | 08:46
Páskaeggjaleit í Elliðárdalnum í dag
Í Elliðarárdalnum laugardaginn 7.apríl kl. 14.00 við gömlu Rafveitustöðina
Krakkar, mömmur, ömmur, pabbar og afar
Sjálfstæðisfélögin í Breiðholti og Árbæjarhverfi efna til páskaeggjaleitar í Elliðarárdalnum 7. apríl kl. 14:00
Leitað verður að fagurlega skreyttum eggjum og börnin fá súkkulaðiegg Leiktæki og hoppkastali verða á staðnum
Keppt verður í húllakeppni
Munið að taka með körfur eða poka undir eggin
Hittumst hress
Allir velkomnir Stjórnir sjálfstæðisfélagnna í Breiðholti og Árbæ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2007 | 08:34
Er Morgunblaðið hefnigjarnt?

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2007 | 23:48
Hver þarf langferðabíl ?
Ekki veit ég af hverju við stórfjölskyldan erum að aka um á strumpastrætó (Toyota Previa), væri ekki nóg og mun heilsusamlegra að aka um á einu svona farartæki, svo myndi maður ekki styrkja þessa blessuðu íslensku olíufursta endalaust með síhækkandi bensínverði

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.4.2007 | 23:24
Frábær árangur eyjapeyja frá Færeyjum sem rúllaði upp X-Factor
Jógvan frá Færeyjum söng sig inn í hjörtu Íslendinga
Jógvan frá Færeyjum söng sig inn í hjörtu áhorfenda í Vetrargarðinum í beinni útsendingu á X-factor á Stöð tvö í kvöld. Hann háði einvígi í úrslitakeppninni við Hara-systurnar frá HVeragerði og vann með yfir 70 prósent atkvæða.Jógvan var skjólstæðingur Einars Bárðarsonar í keppninni, en hver dómaranna þriggja undirbjó og þjálfaði söngvara í lokaþáttunum.
"Okkur líður eins og fegurðardrottningum," sagði Einar skælbrosandi eftir að úrslitin úr símaatkvæðagreiðslu voru kunngerð.
Færeyingar fylgdust með sínum manni í keppninni í beinni útsending, en gátu ekki greitt atkvæði.
Opinbert markmið með X-Factor - líkt og forveranum Idol-Stjörnuleit - er að uppgötva nýjar söngstjörnur; laða fram í sviðsljósið hæfileikaríkt söngfólk sem unnið getur hug og hjörtuð þjóðarinnar með söng sínum og persónutöfrum.
"Við erum sko ekki að fara að grenja - og við erum ekki hættar!" sögðu Hara-systurnar, Hildur og Rakel.
Báðir keppendur fluttu nýtt lag, sem Óskar Páll Sveinsson og Stefán Hilmarsson sömdu sérstaklega fyrir úrslitaþáttinn. Lagið, í flutningi sigurvegarans, Jógvans, verður svo gefið út strax að loknum þætti og verður fáanlegt á tonlist.is.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.4.2007 | 08:02
Er mbl.is að deyja eða er fréttavaktin sofandi?
Ég velti því fyrir mér nú þegar klukkan er 07.58 að það hafa engar fréttir verið færðar inn á mbl.is síðan kl 21.15 í gærkvöldi. Fór ég ósjálfrátt að velta fyrir mér hvort hér gæti verið á ferðinni ein mesta og stærsta gúrkutíð fréttafjölmiðils í langan tíma? Það er varla að ég trúi því að EKKERT hafi gerst á Íslandi já eða í heiminum öllum síðan kl 21.15 í gærkvöldi.
Er Visir.is að stinga Mbl.is af, þeir virðast vera orðnir fljótari með fréttirnar og uppfærslur á vefnum hjá sér. Það væri grátlegt ef Mbl.is myndi missa það góða forskot sem þeir höfðu á aðra netfjölmiðla.
Strákar og Stelpur á fréttavakt Mbl.is - VAKNIÐ, það er kominn dagur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.4.2007 | 23:53
Byrjar þau aftur!
Þetta er orðin frekar þreytt dugga bæði hjá Vinstri Grænum og Samfylkingunni um að bókhald stjórnálaflokka skuli vera opið. Þetta hafa þessir flokkar boðað síðustu ár en eins og við svo margt annað sem þessir flokkar boða þá verður lítið um efndir. Hvers vegna í ósköpunum opna þessir flokkar ekki bókhald sitt? Það hefur enginn staðið í vegi fyrir því. Ég skora á þessa tvo flokka að hætta þessum leikarskap eða á ég að segja hræsni og opna sitt bókhald og standa við yfirlýsingar sínar.
En svo má líka spyrja sig af því hvers vegna flokkarnir eigi að vera með opið bókhald. Ég veit til þess frá fyrstu hendi að margir einstaklingar styðja sinn flokk um einhverja tiltekna fjárhæð á mánuði eða ári og sumir af þeim kæra sig ekkert um að það sé tilkynnt að þeir séu að greiða inn í stjórnmálastarf. En ég segi stoltur frá því að ég hef greitt til Sjálfstæðisflokksins í hart nær 10 ár.
![]() |
Bókhald stjórnmálaflokka á að vera öllum opið að mati VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
5.4.2007 | 19:46
Til hamingju með afmælið
Þegar ég las og hlustaði á þessa frétt fór ég að velta því fyrir mér hvaða kaka gæti verið tákn Reykjavíkur og eða landsins. Er það hin klassíska skúffukaka, randalínukaka, Djöflateran eða eru það kannski bara kleinur?
Það er vissulega alltaf keppni á milli bakara um tertu/köku ársins en væri það ekki kjörið verkefni fyrir félag bakara að efna til verðlaunasamkeppni og velja hina einu sönnu köku sem gæti verið tákn Reykjavíkur eða landsins alls.
Næst þegar ég fer út í bakarí þá mun ég án efa prufa að byðja um Reykjavíkurtertuna!
![]() |
Sacher-tertan 175 ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2007 | 11:55
Það munar ekki um örlætið
Merkilegt hve fljótt menn geta tekið nýja stefnu, þetta minnir einna helst á Samfylkinguna hér á landi. Það er vinstri, hægri snú og breyting á stefnu nánast daglega. Fyrir fáeinum klukkustundum þá vildu menn fá Íranir fá dóm yfir bretunum, en núna eru þeir leystir út með gjöfum.
Maður segir nú ekki annað en batnandi mönnum er best að lifa.
![]() |
Sjóliðarnir komnir heim með vasa og sælgæti frá Ahmadinejad |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.4.2007 | 08:20
Varúð - Matarhátíð hefst
Það er óhætt að segja að matarhátíðin sé nú formlega hafin. Reyndar hófst hún um leið og byrjað var að ferma og maður fékk hvert boðskortið á fætur öðru í fermingarveislur sem allar áttu það sameiginlegt að bera fram kræsingar af bestu gerð og auðvitað át maður á sig gat í þeim öllum, enda rétt að fá eitthvað fyrir andvirði pakkans sem gefin var
Í dag skírdag fer fjölskyldan í eina fermingarveislu og eftir hana er haldið í afmæli þar sem afmælisbarnið er komið á "sveskjusafa aldurinn" þe hann er orðinn FIMMTUGUR karlinn, hann heldur sér þó ótrúlega vel þrátt fyrir að gráu hárin spítist nú fram á methraða líkt og íllgresið í garðinum á sumrin
Jæja sem sagt skemmtilegur dagur framundan þar sem við munum hitta mikið af kunningjum, vinum, vandamönnum já og svo fólk sem við þekkjum ekki neitt.
Gleðilega páskahátíð öllsömul.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- 19.8.2011 Þetta er var ekki okkur að kenna!
- 7.8.2011 Munu flugmálayfirvöld ekki gera ástandsskoðun á vélum Iceland...
- 5.8.2011 Sagan endurtekur sig... þetta eru ekki við heldur þeir!
- 5.8.2011 Er Iceland Express þjónustufyrirtæki?
- 11.3.2010 Kristján Þór - Styrkir sig með hverjum deginum og þorir að se...
Eldri færslur
- Ágúst 2011
- Mars 2010
- September 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Fjölmiðlar
Tenglar á þá fjölmiðla sem ég les, þekki eða bara veit af!
- MissB
- SSB - Sjónvarpsstöð Sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti Stútfullur fróðleiksbrunnur
- Blaðið Það er bara þarna
- Deiglan Alveg ómissandi lesning
- Eyjafréttir Ekki spyrja mig afhverju !
- Þórshafnarfréttir Set þetta inn bara fyrir Rúnar
- Austurglugginn Allt gott kemur að austan
- Vísir Keyptar fréttir....? Gæti verið, hver veit
- Morgunblaðið...Málgagn þjóðarinnar Það eina sem þarf !
Skemmtilegir tenglar
Hér mun ég setja áhugaverða tengla sem gætu komið sér vel svona til þess að slóra eða stytta daginn.
- Handverkskona ársins 2007 -Miss B Besta handverkskona landsins og svei mér þá ef víða væri leitað.
- Hafsteinn - bloggar Heimsborgari á íslenskan mælikvarða, ferðast um landið jafn oft og reykvíkingar fara niður Laugarveginn
- Viltu vera í sambandi Ekkert vodafone...aðeins það besta Síminn
- Eru ekki allir tryggðir Þar sem tryggingar snúast um fólk!
- Reykjavík Nauðsynlegt til að vita hvað er að gerast í borginni
- Sjálfstæðisflokkurinn Máttastólpi íslenskt samfélagsins
- Jólahúsið Það styttist hratt í jólin.
Bloggvinir
-
Birna M
-
Dögg Pálsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Egill Rúnar Sigurðsson
-
Einar Lee
-
Eiður Ragnarsson
-
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
-
Vilberg Tryggvason
-
Púkinn
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
gudni.is
-
Gunnar Björnsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Haraldsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Heiðar Már Guðlaugsson
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Jórunn Sigurbergsdóttir
-
Kári Sölmundarson
-
Grafarholtssókn
-
Kristbjörg Sigurðardóttir
-
Lady Elín
-
Guðjón Baldursson
-
Alfreð Símonarson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
viddi
-
Ólafur fannberg
-
Pálína Erna Ásgeirsdóttir
-
Páll Vilhjálmsson
-
Óþekki embættismaðurinn
-
Reynir Jóhannesson
-
Rýnir
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sjálfstæðissinnar
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Halldór Sigurðsson
-
Þorsteinn Gunnarsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefanía Sigurðardóttir
-
Sveinn Hjörtur
-
Sveinn Tryggvason
-
Þóra Sigurðardóttir
-
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
-
TómasHa
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Vefritid
-
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
-
Vilborg G. Hansen
-
Birgir R.
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnar Gunnarsson
-
Kristján Guðmundsson
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Theodór Bender