Leita í fréttum mbl.is

Fimmtán mínútur

Alveg hreint mögnuð auglýsing sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.


Listamennirnir búa í Grafarholti

20080206_001__Small_

Það eru skemmtilegir tímar í Grafarholti.  Í tilefni af degi leikskólans þá hafa leikskólarnir í Grafarholti ákveðið að halda listmunasýningu í samstarfi við fyrirtækin hér í hverfinu.  Það hafa verið hengd upp á þriðja hundrað listaverk eftir nemendur á Maríuborg, Geislabaug og Reynisholti. 

Það ætti því að gleðja viðskiptavini og gesti Blómavals, Landsbankans, Húsasmiðjunnar og Nóatúns að líta yfir listaverk barnanna. 

Skemmtileg hugmynd leikskólanna og gott framtak fyrirtækjanna í hverfinu að taka þátt.  Ég hvet alla til þess að koma við í þessum fyrirtækjum og skoða listmunina.


Er það mannréttindabrot að fá ekki að reykja??

Er það mannréttindabrot að fá ekki að reykja?? Ég held ekki.  Ekkert frekar en að það væri mannréttindabrot á þeim sem sitja þyrftu undir reykingum inni á veitinga- og skemmtistöðum.

Hver eru rökin fyrir því að taka aftur upp á hinu háa alþingi með það að leiðarljósi að rýmka reglur bannsins og hugsanlega að leyfa reykingar aftur á veitinga- og skemmtistöðum landsins.  Undanfarna daga hefur glumið í útvarpinu háværar raddir reykingamanna og einstaka veitinga- og skemmtistaðaeigenda.  Fyrr nefndi hópurinn kvartar sáran að það sé orðið svo kalt úti að það sé mannréttindabrot að vísa fólki út til þess að reykja og þeir síðarnefndu segjast hafa orðið fyrir allt að þrjátíu prósent skerðingu á innkomu staða sinna.  Sem ég á reyndar erfitt með að trúa því ég get ekki betur séð en að flestir ef ekki allir staðir séu þéttsetnir á virkum kvöldum sem og um helgar.  Eini munurinn virðist vera sá að þegar maður fer inná þessa staði í dag getur maður neytt matar og drykkjar án þess að þurfa að vera umvafinn reykjarmökk svo ekki sé nú talað um þegar maður gengur út þá angar maður ekki af sígarettulykt.

Það eru ekki mörg ár síðan að reykt var inni í flestum fyrirtækjum og að ógleymdum bíóhúsunum.  Þegar það var bannað þá kvörtuðu reykingarmenn að brotið væri á rétti sínum en í dag myndi það varla detta nokkrum manni í hug að reykja t.d í bíóhúsum.

Ég fullyrði að þetta sé ein bestu lög sem sett hafa verið á landinu, öllum til heilla.  Vissulega þurfa allir að lúta lögunum þ.m.t þingmenn og annað starfsfólk þingsins og réttast væri að loka reykherbergi alþingishússins strax í dag því varla er hægt að færa rök fyrir því að slíkt herbergi sé til staðar.

Ég segi að viðurlögin ættu að vera mjög einföld.  Ef upp kemst að reykt hafi verið á veitinga- eða skemmtistað fær rekstraraðili staðarins áminningu, þegar þrjár áminningar eru komnar þá missir staðurinn einfaldlega rekstrarleyfið.  Með þessu móti myndi það vera hagur rekstaraðila að vera ekki að snúa vísvitandi út úr lögunum til þess að reyna finna glufur fyrir háværan en fámennan hóp.

Hvers vegna á það að vera erfiðara að framfylgja þessum lögum hér á Íslandi en í öðrum löndum sem bannað hafa reykingar? 


Já takk - ég skal smakka

Skemmtileg hugmynd og góð auglýsing fyrir Guðnabakarí.  En hvað ætli stærsta rjómabolla heims sé þung?  Nú er spurning hvort það komi ekki smá keppnisskap í bakarameistara landsins um að gera stærri og stærri rjómabollur.
mbl.is 20 kílóa rjómabolla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðlaunin verða til sýnis í Kringlunni 1 - 10 febrúar n.k.

Miðað við þá útrás sem mörg íslensk fyrirtæki s.s. Baugur, Exista, Kaupþing ofl ofl ofl hafa verið í undanfarin ár þ.m.t í danaveldi þá kæmi það ekki á óvart að þau hafi keypt danska landsliðið.   Allavega eiga þau stór fyrirtæki í Danmörku svo ég geri ráð fyrir að plattinn komi þá bara hingað heim, við eigum hann hvort sem er Wink

Kæru fjölskylda, vinir og nágrannar til hamingju með siguri  nn.


mbl.is Danir Evrópumeistarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

og þá er málinu reddað, sökudólgurinn fundinn !

Er ekki bara spurning um að gefa landsliðinu stóran bangsa sem þeir geta svo skipst á því að halda á, en svo er spurning hvort ekki ætti að kaupa einn stóran bangsa fyrir líðið í heild og svo lítinn bangsa fyrir hvern og einn leikmann og með því gætu liðið átt sitt lukkudýr sem og hver leikmaður líka sitt eigið lukkudýr.  Svei mér þá ef ég er ekki bara reiðubúinn að borga fyrir þetta sjálfur.Ef þetta


mbl.is Landsliðið vantar lukkutröll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fámennur hópur með læti

Þetta var fámennur hópur sem vildi stuðla að því að þeir sem komu til þess að fylgjast með fundinum gætu það ekki.  Enda eins og einn "mótmælandinn" sagði, við viljum komast á spjöld sögunnar og ætluðu alls ekki að fara út nema lögreglan myndi bera þau út..... Þá er spurning hvers vegna fólk var yfir höfuð að mótmæla.

Að öðru leiti vísa ég í skrif mín undir yfirskriftinni "atvinnumótmælendur á útsölu" hér fyrir neðan.


mbl.is Hávær mótmæli í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atvinnumótmælendur á útsölu

Sá ánægjulegi atburður átti sér stað í dag að nýr meirihluti tók við völdum hér í Reykjavík.  Meirihluti sem mun láta verkin tala og hefur nú þegar gert með því að lækka fasteignaskatt sem allir borgarbúar njóta góðs af, einnig hefur meirihlutinn gert með sér sterkan málefnasamning borgarbúum til hagsbóta.  Meirihluti Frjálslyndra og Sjálfstæðisflokks mun verða dæmdur af verkum sínum alveg eins og allir aðrir meirihlutar sem stýrt hafa borginni í gegnum tíðina.  Þess vegna getur það verið hvimleitt að heyra hve harða sleggjudóma margir fjölmiðlamenn eru tilbúnir að halda á lofti bæði í garð nýja meirihlutans sem og einstakra aðila sem eru innan hans. 

Því miður ákvað fámennur hópur að setja svartan blett yfir annars góðan dag fyrir okkur reykvíkinga.  En hugsanlega má finna skýringu á því að atvinnumótmælendur hafa verið á útsölu og það líklega með 80% afslætti.  Eins og einn viðmælandinn á Bylgjunni sagði í dag "þeir geta ekki verið uppá Kárahnjúkum því það er svo kalt þar á þessum árstíma".  Það sem var svo sorglegt við mótmælin í ráðhúsinu um hádegisbilið er hve ómálefnaleg þau voru og ekki þótti mér merkileg framkoma þeirra oddvita sem reyndu eftir fremsta megni að æsa hópinn.   Reyndar skaut það upp í huga mér hvenær löngufrímútur yrðu búnar í fjölbrautaskólunum í greindinni.  Það má með sanni segja að þetta hafi verið hávær 100 manna hópur sem gerði það að verkum að þeir sem áhuga höfðu á að fylgjast með framgangi fundarins gátu það ekki. 

Vissulega hafa allir rétt á því að mótmæla og oft á tíðum geta mótmæli hreinlega verið skemmtileg en þessi hegðun var hreint til skammar fyrir þennan hóp og þrátt fyrir að ég sé feginn að hann var ekki á pöllunum fyrir þremur mánuðum síðan eða svo þá get ég ekki annað en velt því fyrir mér hvers vegna þau voru ekki þar?


mbl.is Ólafur hyggst láta verkin tala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég tek heilshugar undir yfirlýsingu Varðar

Síðustu sólahringar hafa verið merkilegir svo ekki sé nú meira sagt.  Hverjum hafði órað fyrir því að nýr meirihluti myndi líta dagsins ljós í höfuðborginni eftir aðeins 102 daga setu fráfarandi meirihluta,ég held að engum hafi órað fyrir því að hann myndi falla eins fljótt og raun bar vitni.  En ég segi hinsvegar að hann hafi starfað 102 dögum of lengi. 

Fjögra flokka sundrung sem átti erfitt með að koma sér saman um einföldustu mál og borgarstjóri sem dansaði í kringum hópinn án þess að geta tekið afstöðu, vissulega erfitt starf það.

Hvað hefur 102 daga meirihluti áorkað hér í höfuðborginni á valdatíma sínum.

Hann hefur aukið útgjöld borgarinnar svo um munar.

Hann tók af mislægu gatnamótin á Miklubraut/Kringlumýrarbraut af, þrátt fyrir mikilvægi þeirra á einum fjölförnustu gatnamótum landsins.

Hann hækkaði fasteignaskatta, sem kemur verst niður á stórum fjölskyldum, öldruðum og öryrkjum.

Hann fékk leyfi frá Yoko til þess að hafa kveikt á friðarsúlunni á milli jóla og nýjárs.

Ef 102 daga fráfarandi meirihlutinn hefði ekki getað stuðst við vel unna fjárhags- og framkvæmdaráætlun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks þá hefði hann haft harla lítið fram að færa, verst þótti mér þó þau frávik sem tekinn voru frá þessum áætlunum með tilheyrandi brölti og fjárútlátum fyrir borgarbúa.

En ég tel að nýr meirihluti Frjálslyndra og Sjálfstæðisflokks hér í höfuðborginni komi til með að vinna vel að málefnum borgarinnar sem og allra borgarbúa.  Með því að taka skýra afstöðu til málanna og leggja til ábyrgar fjárhags- og framkvæmdaráætlanir.

Ég tek því heilshugar undir yfirlýsingu Varðar - fulltrúaráðs sjálfstæðismanna í Reykjavík.


mbl.is Vörður fagnar nýjum meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband