Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

huuu kannski eða uuu já :-)

Þá getum við andað rólega fyrst Vatíkanið er búið að gefa þetta út.  Hreinlega er þungu fargi af mér létt við þessa frétt þar sem ég var einmitt farinn að huga að því að senda út fréttatilkynningu þess efnis að hugsanlega væri líf á öðrum hnöttum en jörðinni.
mbl.is Vatíkanið segir ekki hægt að útiloka líf á öðrum hnöttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síminn..... uuuu já

sýnir fyrirtækið hvað í því býr.  Þrátt fyrir að ég sé örlítið litaður þá tel ég að Síminn hafi frumsýnt eina bestu auglýsingu sem gerð hefur verið fyrir íslenskt fyrirtæki.  Fagmennskan höfð í fyrirrúmi hvort sem litið er til handrits, umhverfis eða töku.  Þessi auglýsing fær 11 stjörnur af 10 mögulegum.  Reyndar hélt ég að það væri ekki hægt að sá út Jesú auglýsinguna fyrir jólin og satt best að segja vissi ég ekki hvað ég átti að halda þegar blessaða kattar auglýsingin var birt en nú hefur fyrirtækið komið fram og sýnt það enn og aftur hve öflugt það er.


Neytendavaktin í 24 stundum á morgun fimmtudag

Ég varð svo ljón heppinn að koma við á bensínstöðinni þegar ég var að hjóla heim og vitir menn 24 stundir morgundagsins þ.e fimmtudagsins var komið á stöðina.  Verst að það er ekki lottó úrdráttur á morgun, maður hefði þá í það minnsta geta keypt eina röð eða svo.

En það vakti athygli mína dálkur frá neytendavaktinni sem er samvinnuverkefni 24 Stunda og Neytendasamtakana.  Einu sinni á dag er farið vörur eða þjónustu og hvað þetta er ódýrast og hvar dýrast.

Á morgun fimmtudag er farið yfir það hvað minnsta stærð af ís með dýfu kostar og komið hefur í ljós að það er 58% verðmunur á þessari vöru á milli söluaðila.

Eden Hveragerði var ódýrast en þar kostaði ísinn 190 kr, Erluís var næst ódýrust með ísinn á 200kr en ísbúðin í Smáralind er dýrust því þar kostar ísinn 300 krónur.

En ég velti því fyrir mér hvað er minnsta stærðin lítil eða stór og hve áræðanleg er þessi könnun?  Ekki það að þetta sér mér eitthvert hjartans mál en ég gæti vel hugsað mér að taka þátt í þessari könnun þ.e vera framkvæmdaraðilinn að því gefnu að ég fengi að borða ísinn.

En án þess að ég sé með sannanir fyrir því þá er Erluís besta ísbúð bæjarins og alltaf jafn gaman að kíkja þar við og fá sér ís


Íslandspóstur vaknaðu!

Það er spurning hvenær Íslandspóstur vaknar og fer að gera skemmtileg frímerki álíka og þetta sem er af Frank Sinatra.
Spurning hver verði fyrsti tónlistarmaðurinnnú eða íþróttamaðurinn hér á landi til þess að fá frímerki með mynd af sér.

Þetta gæti orðið skemmtileg söfnunarmerki sem gaman væri að senda nú eða bara eiga.

Reyndar er hægt á netinu að panta sitt eigið frímerki fyrir þá sem það vilja t.d. um jólin gæti verið gaman að senda jólakortin með frímerki sem á væri mynd af krökkunum nú eða hundinum.


mbl.is Frank Sinatra kominn á frímerki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er frjáls eins og fuglinn... laus við...

Nova auglýsinguna sem hangið hefur yfir blogginu mínu undanfarnar vikur og mánuði.  Nei, hingað og ekki lengra það kostar ekki nema litlar þrjúþúsund og sexhundruð krónur á ári að vera laus við borðann og aðrar auglýsingar hér á síðunni.   Það myndi ég segja að væri afar ódýr hýsing eða ekki nema 10 krónur á dag - ég segi nú bara gerir aðrir betur fyrir eins flott kerfi og mbl bloggið er.

Góð mynd en 50kr dýrari!

Þetta er ein besta mynd sem ég hef séð lengi en væntanlega er hún það góð að hún verður ekki tilnefnd til Óskars, einhvernvegin hefur mér fundist myndir sem slegið hafi rækilega í gegn verið hunsaðar af "spekingum".

En getur einhver útskýrt fyrir mér af hverju aðgöngumiði á mynd sem er í stafrænum gæðum er 50 krónum dýrari en ef myndin er bara "venjuleg".


mbl.is Iron Man trónir á toppinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundurinn hennar Helgu á ættingja ... :-)

Þó ótrúlegt megi virðast þá hefur komið í ljós að hundurinn hennar Helgu Emils á náin ættingja í það minnsta eru bæði dýrin með eindæmum ófríð svo það liggur við að þau séu kominn í hringj og orðin sæt...

molerat


Forysta ASÍ til leigu?

Þessi skrípaleikur bifreiðarumboðsins og ASÍ er til skammar, vissulega er rétt að einstaka bifreiðar hafi lækkað í verði en að kynna 17% lækkun á bifreiðum sem á svo ekki við nein rök að styðjast er hrein móðgun við viðskiptavini og landsmenn alla.

Ég hef ekki tekið eftir forystu ASÍ hlaupandi á milli verslana í gegnum tíðina til þess að vera viðstadda lækkanir á vörum og þjónustu, maður hlýtur því að spyrja sig um tengsl Heklu og ASÍ nema hreinlega forysta ASÍ hafi misstígið sig svona hraplega og hlaupið á sig þegar þeir ákváðu að taka þátt í þessari auglýsingabrellu umboðsins.

Ég fór sjálfur í Heklu tveim eða þrem dögum eftir að tilkynningin var send út en þá gat starfsmaður umboðsins ekki svarað hvaða bíll hefði lækkað um 17%, ótrúlegt ekki satt, ein þeir hafa að lokum getað fundið einhvern verðlista frá því árið 2005 og ákveðið að lækka þann bíl enda lítil hætta á að þeir þyrftu að standa við stóru orðin.

 


mbl.is Auglýsingar Heklu sagðar brot á lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjólaði 17km í dag.

Það eru skemmtilegir tímar svo mikið er víst.  Nú stendur yfir átakið "Hjólað í vinnuna" og að sjálfssögðu tekur maður fullan þátt í því.  Ég er hluti af 8 manna teymi hérna hjá Símanum sem ætlar klárlega að rúlla þessu upp.  Teymið samanstendur af algjörum áhugamanna íþróttafólki uppí það að vera með fólk sem kemst næst því að verða einhverskonar líkamsræktarsjúklingar.  Fólk sem hjólar í vinnuna og heim aftur en telur sig alls ekki fá nóg af hreyfingu út úr því og mætir í ræktina í hádeginu til þess að taka aðeins á, ótrúlegt en satt!

Ég læt hinsvegar duga að hjóla í vinnuna og heim aftur, það eru í kringum 17 Km leið svo ég er bara sáttur eða öllu heldur er ég eiginlega bara rosalega ánægður með þetta, hélt að ég myndi ekki endast einn dag í þessu en núna eru komnir tveir dagar og vitir menn ég ætla klárlega að vera með á morgunn, ekki spurning.

En til gamans þá hafa starfsmenn Símans og Skipta nú hjólað rétt rúma 1000 km á tveimur dögum og það hlýtur að teljast nokkuð gott.....


Hvað kosta þær hér?

Ég veit ekki með ykkur, en ég sé bara akkúrat ekkert merkilegt við þessi númer.  Þau eru eiginlega ekki einu sinni svo óspennandi að vert sé að greiða þessar upphæðir fyrir plöturnar.  En þetta gæti verið ágæt búbót fyrir umferðarstofu, þeir gætu tekið mest spennandi númerin hér og boðið þau upp.  Aldrei að vita nema gott verð fengist fyrir góðar íslenskar plötur..

En hver segir svo að það sé dýrt að búa á Íslandi Wink


mbl.is 50 bílnúmer á ríflega 700 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband