Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Sálfræðigreining takk

Hvað í ósköpunum fær fólk til þess að gera þessa vitleysu mér er nú bara spurn!?  Ég hallast eiginlega að því að það þyrfti að senda þetta fólk í einhverskonar sálfræðigreiningu FootinMouth 


Flottir!

Frábært hjá lögreglunni.  Það er kominn tími til að taka ærlega á bæði þeim hópi sem kallaðir eru handrukkarar og einnig sölumönnum dauðans sem herferð lögreglunnar um helgina gekk út á að heimsækja.

FRÁBÆRT !


mbl.is Ruðst inn á harðsvíraða handrukkara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingarnir sem eru í raun kínverskir túristar!

Ég hef áður sagt frá fjölskyldumeðlim úr myndatökufíkla fjölskyldu landsins.  Nú er kominn tími til þess að segja frá ættarstoltinu, höfuðpaurnum og aðal myndatökumanninum, já það er rétt ég er að taka um Pétur Snæland betur þekktan sem Peps.  Hann er með heimasíðu með mikið af myndum, hann hefur þó tileinkað síðunni sinni sérstaklega myndum af flugvélum þar sem hann er mikill áhugamaður um þær.

Endilega smellið á myndina hér fyrir neðan til þess að komast á síðuna hans.


Kapaflíngflíng - klikkar ekki

Jæja þá kemur sú síðasta í röðinni, þetta eru hreint út sagt snilldar auglýsingar hjá Kapaflíng flíng banka (Kaupþing).  Það mættu fleirri fyrirtæki taka þá sér til fyrirmyndar og gera skemmtilegar auglýsingar.


Allir þorpsbúar stöðvaðir

Það er engu líkara en lögreglan á Seyðisfirði hafi farið á námskeið hjá starfssystkynum sínum á Höfuðbogarsvæðinu nú eða á Blöndósi.  Það er spurning hvort það sé orðið markmið þeirra að stoppa alla þorpsbúa fyrir helgi Wink


mbl.is Sex teknir fyrir hraðakstur á Seyðisfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vaseline - ótrúlegt

Alveg hreint ótrúlegt!  Ég sem hélt að Vaseline væri fitugur áburður sem enginn keypti nema þá einna helst einhverjir .......  En svo komst ég að því að þeir bjóða uppá alveg rosalega flotta línu af alskonar áburði svo ekki sé nú talað um varasalvan sjálfann. 


ó takk

Húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur

Ég get nú ekki sagt annað en "ó takk" við Orkuveituna þegar maður les tilkynninguna frá þeim vegna lekans í vesturbænum.  Þar segja þeir orðrétt

"Verði ábyrgð á tjóninu rakin til Orkuveitu Reykjavíkur mun fyrirtækið vitaskuld bæta það"

Er það ekki sjálfgefið að ef tjónið er þeirra þá eiga þeir að greiða tjónskostnaðinn!  Er ekki óþarfi að slá sig til riddara með því að segja það sem er sjálfssagt!

 


mbl.is OR harmar það tjón sem varð eftir að högg kom á raforkukerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Appelsínu-byggingar

Já það er ýmislegt sem fólk tekur sér fyrir hendur og dundar sér við að búa til, en svona til gamans þá er þetta allt saman búið til úr appelsínum.


Könnun á dag kemur skapinu í lag.... eða hvað?

Það er ekki laust við að maður sé að fá einkenni "kannannaþreytu" - Ég spyr hvernig verður þetta þrem til fjórum vikum fyrir kosningar, koma þá fjórar kannanir í viku ein í hverju dagblaði (Mbl, Fréttablaðið, Blaðið og DV)  Það er spurning hvort Viðskiptablaðið helli sér ekki út í lestina, svona til þess að vera með og þá gætum við fengið eina könnun á dag alla virka daga! 

En á sama tíma og mikil sorg hlítur að ríkja á stjórnarforystu Samfylkingarinnar þar sem fylgi flokksins virðist dala í hverri könuninni á fætur annari og það virðist vera svo að almenningur sé farinn að sjá í gegnum sífelldar stefnubreytingar hjá þeim og því eru góð ráð orðin dýr hjá flokknum, hvað skyldi forystan taka til bragðst á næstu dögum því það er alveg orðið ljóst að eitthvað verður að gera til þess að reyna koma flokknum aftur á koppinn.  Þessi könnun rifjar óneitanlega upp orð Jóns Baldvins þar sem hann taldi líftíma flokksins liðinn og spurningin hlítur því að vera orðin sú hvort Jón Baldvin skyldi hafa reynst sannspár?  Sagan segir að væringar séu innan flokksins um hvernig sé hægt að standa að forystubreytingum þegar svo stutt er til kosninga eins og raun ber vitni. 

En í öðrum flokki ríkir mikil gleði og ganga menn orðið beinir í baki og með höfuðið hátt, já ég er að tala um Vinstri Græna sem virðast vera á fljúgandi siglingu inn í ríkisstjórn og fátt virðist ætla stoppa fylgisaukninguna hjá flokknum, reyndar held ég að það eina sem geti stoppað hana sé kjördagur því ég tel það alveg ljóst að þeir munu ekki fá það fylgi upp úr kjörkössunum sem þeir eru að mælast með í könnunum.  En auðvitað verður "dómsdagur" bara að leiða það í ljós.

 


mbl.is Samfylkingin með 19,2% fylgi samkvæmt könnun Fréttablaðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki ég

Svona til þess að taka af allan vafa þá var að ekki ég sem fékk vinningin að þessu sinnu.  En ég vil óska vinningshafanum hjartanlega til hamingju með pottinn.
mbl.is Einn fékk fimmfaldan lottópott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband