Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Hjálpasveit kölluð út

 Snoop Dogg á tónleikum í fyrra.

 

Jæja kæru landar, nú þurfum við að safna liðið og fara af stað í björgunarleiðangur.  Þið viljið sjálfssagt vita hvert skal halda og hverjum skal bjarga, ég skal segja ykkur það líkt og við björguðum gráhærða skákmanninum (Fisher, vona að nafnið sé rétt skrifað) þá getum við nú ekki látið aumingja P.Diddy sitja heima í Bandaríkjunum án þess að fá að koma til Evrópu í tónleikaferðalag.

Ég mæli því eindregið með að gömlu kempurnar sem björguðu Fisher fari af stað skrifi um málið, komi í fjölmiðla og síðast en ekki sísta útvegi rapparanum íslenskt vegabréf svona svo hann komist áhindraður um öll heimsins höf.


mbl.is Snoop Dogg fær ekki vegabréfsáritun í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn merkilegasti dagur ársins er í dag

Já hverjum þykir ekki afmælisdagurinn sinn merkilegu, ég hef alltaf sagt að afmælisdagar hvers og eins séu merkilegustu dagar ársins enda eiga allir sem eiga afmæli að taka sér frí frá þeim störfum sem þeir vinna við hvort heldur sem fólk stundar atvinnu eða er í skóla.  Afmælisdagurinn er þinn.

 


Ábending til Morgunblaðsins

 Skýjaborg yfir Vík í Mýrdal

 

Um leið og ég vil óska Jónasi Erlendssyni til hamingju með að eiga mynd ársins þá langar mig að koma með þá ábendingu til Morgunblaðsins að þeir setji nú inn á mbl.is allar þær myndir sem unnu til verðlauna í þessari ljósmyndasamkeppni.  Þarna eru á ferðinni margar mjög flottar myndir sem án efa eiga erindi við fleirri aðilla en þá sem eiga erindi eða komast í Smáralindina.


mbl.is Skýjahöll yfir Vík í Mýrdal valin mynd ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný bloggvinkona - Sigrún Jóna

Ég segi það satt, maður verður ríkari með hverjum deginum. 

Góð vinkona mín til margra ára bætist nú í hóp bloggvina minna.  Við Sigrún Jóna höfum oft tekið spjall um málefni líðandi stundar, við erum ekki alltaf alveg sammála um hvernig eigi að fara að hlutunum en við vitum að takmarkið er hið sama.

Það er sönn ánægja að benda ykkur á bloggsíðu hennar.  Þið komist inn á síðuna hennar með því að smella á myndina hér fyrir neðan.

Sigrún Jóna

Þessi kallar ekki allt ömmu sína

Það ætti að hrósa þessum ágæta starfsmanni sérstaklega á næstu árshátíð fyrirtækisins reyndar finnst mér að Gunnar Birgisson bæjarstjóri Kópavogs ætti að heiðra hann og veita honum viðurkenningu fyrir hetjudáð þar sem hann var tilbúinn að vinna við mjög erfiðar aðstæður og hugsanlega lífshættulegar þegar hann klifraði upp í kranan til þess að ná inn í stjórnklefan.

Ég hef sagt það áður og segi það aftur það eru þessar hetjur hversdagsins sem ættu að fá orður frá forsetanum, svona til til tilbreytinga mætti hann alveg heiðra aðra en þá sem hann er að verðlauna fyrir að mæta í vinnuna ss sýslumenn ofl.  Kannski finnst honum venjulegir samborgarar ekki nógu fínir?


mbl.is Hugaður starfsmaður bauð sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Algjört Kodak moment

Þetta er hreint út sagt magnað Kodak moment. 
Svona nú sjáðu hvað ég burstaði vel tennurnar í morgun, láttu ekki svona sjáðu LoL

Ölgerðin á móti áfengisdrykkju?

Ölgerðin segir það þvert á sína stefnu og viðhorf að styðja...

Skemmtileg stefna hjá framleiðanda sem framleiðir "merkilegt nokk" áfenga drykki

"Þetta er bagalegt því uppákoman er í eðli sínu andstæð stefnu og viðhorfi Ölgerðarinnar til neyslu áfengra drykkja,“ segir í yfirlýsingunni."

þeir eru kannski alfarið á móti allri áfengisneyslu en vilja að sjálfssögðu að íslendingar drekki appelsín LoL


mbl.is Ölgerðin kemur ekki að drykkjukeppni með neinum hætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottur pottur í garðinn, mikið grín og mikið gaman

Það væri ekki amarlegt að eiga einn svona partýbíl svona til þess að halda gleðskap í á góðu vetrarkvöldi, kosturinn við að hafa pottinn svona á bíl er auðvitað sá að hægt er að færa hann á milli gleðskapa eftir þörfum , eða ætti maður bara að láta heitapottinn frá Poulsen duga! 


Þetta er kraftaverk

Eða alveg einstök (ó)heppni, en allavega það þarf mikinn snilling að takast þetta!


Góða ferð og góða skemmtun

Frábært framtak Eimskips að bjóða starfsfólki sínu í óvissuferð, alltaf gaman þegar fyrirtæki kunna að meta starfsmenn sína og sýna þeim hve fyrirtækið er öflugt að geta boðið þeim erlendis.  Góða skemmtun Dóra, Halldór, Inga, Kristinn, Eygló, Guðmundur, Hannes, Hakon, Gréta, Júlía og allir samferðamenn þeirra.
mbl.is Fjölmenn óvissuferð til Spánar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband