Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Þættinum hefur borist bréf !

%7B161be478-a050-4eb6-813c-4046bd505d09%7D_2002eyrarbakki01Þetta er ein frægasta setning allra tíma í ljósvakamiðlum landsins.

En ég hef fengið bréf þar sem sett er út að í færslunni um hvers á höfuðborgin að gjalda er upptalning á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess, þá er spurt sérstaklega hver vegna EYRARBAKKI sé allt skrifað með stórum stöfum en önnur sveitafélög ekki.  Svo ég svari spurningu 1 þá er ég EKKI ættaður frá EYRARBAKKA svo ég viti til Wink og svo ég svari spurningu 2 þá skrifa ég EYRARBAKKI með stórum stöfum þar sem vinahjón okkar voru að fjárfesta í húseign á EYRARBAKKA.  Þetta er gert til þess að vekja athygli á þeim fallega stað sem EYRARBAKKI er Smile


Að taka lífinu með stakri ró

Það var einu sinni sem það kviknaði í gasgrilli í vinnunni þar sem ég vinn og þá þótti fólki ég taka þessu helst til of rólega ég skil því þennan ágæta mann vel Smile  En sem betur fer fór þetta allt saman vel.

Ég segi nú ekkert annað en

"Complete self control"


mbl.is Kastaði út brennandi rúmfötum og lagðist aftur til svefns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers á höfuðborgin að gjalda?

Mér er bara spurn, hvað næst?  Verður Ríkissjónvarpið flutt í Mjóafjörð, Dómsmálaráðuneytið í Vík, Hæstiréttur á Þórshöfn, Ríkisskattstjóri á Borgarfjörð Eystri.... hvað verður eiginlega næst?

Það er svo skrítið að það þarf alltaf verið að flytja heilu og hálfu stofnanirnar út á land, mér er bara spurn hvers vegna?  Býr ekki megin þorri allra landsmanna hér á eða í kringum höfuðborgarsvæðið (Reykjavík, Kópavog, Garðabæ, Hafnarfjörð, Mosfellsbæ, Voga, Suðurnes, Akranes, Borgarnes, Hvergerði, Selfoss, Stokkseyri, EYRARBAKKA og Þorlákshöfn, vona að ég hafi engu gleymt).  Hver eru rökin fyrir því að færa Fæðingarorlofssjóð á Hvammstanga?  Hver eru rökin fyrir því að færa sektarinnheimtu lögreglunnar á Blöndós? Hverjar voru ástæðurnar að færa Landmælingar uppá Akranes? Hverjar voru ástæðurnar að flytja Byggðastofnun á Sauðárkrók?  Það eru einfaldlega enginn rök fyrir þessum fluttningum, menn geta svo sem rætt um að þetta væri atvinnuskapandi fyrir svæðin, en það er nú bara svo að þessar stoðdeildir eða stofnanir eru líka atvinnuskapandi fyrir þá sem eru í kringum höfuðborgarsvæðið.  Ég er alls ekki að segja að allt eigi að vera í Reykjavík, síður en svo, það á hinsvegar að vera ljóst að það þjónar hagsmunum fjöldans að hafa þetta hér á stór Reykjavíkursvæðinu, þar sem flestir.

Ég leyfi mér að fullyrða að það hefur aldrei verið nein hagræðing rekstrarlega séð að flytja stofnanir út á land og því væri gaman að sjá hver sé hagræðing með fæðingarorlofssjóð?

Hvernig stendur á því að þingmenn okkar Reykvíkinga eru ekki eins duglegir að toga í kaðlana eins og þeir virðast vera duglegir þeir þingmenn sem á landsbyggðinni eru !?


mbl.is Fæðingarorlofssjóður fluttur til Hvammstanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Tákn um gæði"

Ég segi nú bara ekkert annað en “Toyota tákn um gæði” það ætti að selja þennan Tropper jepparæfil og kaupa fyrir lögregluna Toyotu LandCruser eða HiLux, það eru allavega bílar sem bila ekki 58 sinnum á tveimur árum, svo mikið er víst.

 

Þetta minnir óneitanlega á vesalings lögregluvarðstjórann á Vopnafirði sem þurfti að nota sinn eigin bíl í neyðarútköll þar sem lögreglujeppinn sem var að gerðinni Nissan Patrol var alltaf bilaður. 

 Þetta fer að verða spurning hvort Björn ráðherra sé á móti landsbyggðarlögreglunni eða hvort hann treystir fólki þar betur en annarsstaðar og því þurfi ekki eins mikið á lögreglubílum að halda.... Ég hallast meira að því að hann treysti fólkinu þar sem Björn myndi helst vilja hafa 1 lögreglumann á hvern íbúa landsins og jafnvel hermann líka Wink.
mbl.is Lögreglubíllinn hefur bilað í 58 skipti á tveimur árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ATH bannað að tala í GSM í akstri

Þetta er nú hálfbroslegt atvik, að vera gæða sér á sleikjó og svelgjast á og afleiðingarnar hefðu geta orðið skelfilegar en sem betur fer fór þetta betri veg.  En það mætti alveg hugleiða ýmis bönn þegar fólk er á akstri s.s. bannað er að snæða skyndibita eða sælgæti, bannað er að mála sig eða snyrta og stranglega bannað að tala við ökumanninn þegar bifreiðin er á ferð.  En núna er engungis bannað að aka og tala í GSM síma.  En greinilega þá getur sælgætið verið STÓRVARASAMT Smile
mbl.is Fékk 40 tonna mjólkurbíl inn í stofuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spilavíti Háskólans okkar !

Háskóli Íslands, stofnun allra landsmanna,  það er hreint með ólíkindum að fylgjast með framgangi þessa máls hjá þessari annars virðulegu stofnun.  Þeir segjast ekki koma nálægt rekstri spilasala en eru samt með “samning” við þá aðila sem reka Háspennuna og leigja þeim kassana sem er grundvöllurinn að starfsemi þeirra geti gengið. 

Þeir segjast ekki koma neitt nálægt að taka ákvörðun um að spilavíti verði rekið í Breiðholtinu en samt boðaði háskólarektor til sín á fund fyrir svolitlu síðan, framkvæmdastjóra Háspennunar og formann íbúasamtakanna Betra Breiðholt til þess að ræða stöðu mála.

 

Það er mín skoðun að Háskólinn eigi að sjá sóma sinn í því að það verði ekkert af opnun spilavítisins í Breiðholtinu, það er mikill meirihluti íbúa og félagsamtaka alfarið á móti þessari starfsemi í því húsnæði sem um er rætt. 

 

Ég bara spyr, hvernig getur Háskóli Íslands, stofnun allra landsmanna, hunsað tilmæli meirihluta fólks í Breiðholtinu !! ??

 

Eftirtaldir aðilar hafa nú þegar skorað á háskólann að draga til baka þá ákvörðun að opna spilavítið

 

Borgarstjórinn í Reykjavík

Borgarstjórn Reykjavíkur

Hverfisráð Breiðholts

Íbúasamtökin Betra Breiðholt

Félag Sjálfstæðismanna í Hóla- og Fellahverfi

Félag Sjálfstæðismanna í Skóga- og Seljahverfi

Félag Sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjarhverfi

Verslunar- og húsnæðiseigendur í Mjódd

Sem og tæplega 3000 íbúar í Breiðholtinu hafa skrifað undir mótmælayfirlýsingu.
mbl.is Yfirlýsing frá borgarstjóranum í Reykjavík: Feluleikur Háskóla Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þykkvabæjarskrúfur

Eru þeir í Þykkvabæ að reyna breikka vörulínuna hjá sér?  Ég var eitthvað búinn að heyra af minnkandi snakksölu hjá þeim þykkvabæjarmönnum en ekki að það væri farið að ganga svona illa Pouty

hver man ekki eftir frasanum úr auglýsingunum þeirra..... 

Skrúfur, flögur..... trúir þú á álfasögur....  (Þetta minnir allavega á einhverjar sögur)


mbl.is Kannabisplöntur gerðar upptækar í Þykkvabæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vekjaraklukkan truflar

Miðað við allt það magn flugelda sem skotið var upp í gærkvöldi þá getum við ekki annað en verið jákvæð miðað við hve lítið fór úrskeiðis.  Ég heyrði það í útvarpsfréttunum að aðeins 4 aðilar hafi komið á slysadeildina vegna flugelda"áverka" og svo fer slökkviliðið í útköll út af vekjaraklukkum svona á þetta að vera Smile 
Vísir, 01. jan. 2007 19:45

Útkall út af vekjaraklukku

Rólegt hefur verið hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en þó var farið í sex útköll á dælubíla í dag. Eitt þeirra var í Álfaborgir í Grafarvogi þar sem maður hringdi í neyðarlínuna út af reykskynjara í íbúð nágrannans, - eða svo hélt hann. Verkefnið var á endanum ekki flóknara en að slökkva á vekjaraklukku sem granninn hafði stillt áður en hann fór að heiman.
  

 

 


Þerruð krókutílatár.

417545ALandsbjög er stofnun sem við viljum öll hafa til staðar þegar á þarf að halda.  Það er gleðilegt að sjá og ekki síður heyra að fólk hafi svarað tárum framkvæmdastjóra þegar hann kom í hvern fjölmiðilinn á fætur öðrum og sakaði allt og alla um svindl sem svo mikið sem horfðu til þess að selja flugelda.  Ég segi nú ef að þeir hefðu ekki verið þeir stærstu þá hefði eitthvað stórkostlegt verið að, svo mikið er víst, þeir hafa óheftan aðgang að öllum fjölmiðlum eins og þeir vilja, það hafa engir aðrir eins mikið bolmagn til þess að auglýsa eins mikið og þeir gerður í útvarpi, sjónvarpi og prentmiðlum svo ekki sé talað um öll auglýsingaskyltinn sem eru/voru út um allan bæ.

En þrátt fyrir að mér hafi þótt þessi krókudílatár hvimleið þá fagna ég því að fólk skuli styðja þá í því góða starfi sem þeir eru að gera.


mbl.is Metsala á flugeldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt nýtt ár

Fréttamynd 417502

Ég óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þakka ég fyrir skemmtileg kynni á árinu sem er nú liðið.  Megi árið 2007 vera ykkur öllum gæfu og hamingjuríkt.


« Fyrri síða

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband