Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006
31.12.2006 | 11:28
Hvað svo?
Nú hefur verið hætt við að greiða til Byrgisins frekari greiðslur úr ríkissjóði, sem hefði átt að vera sjálfgefið þegar málið kom upp, ég geri ráð fyrir því að ríkissjóður hafi ekki greitt til þeirra eftir að óskað var eftir því að ríkisendurskoðun færi yfir fjármál Byrgisins.
En það vakna fleirri spurningar í þessu sambandi, hver er staða þeirra vistmanna sem eru í Byrginu núna? Verður Byrginu lokað og ef svo hver tekur við því ágæta fólki sem er í meðferð og er að reyna koma undir sig fótunum á nýjan leik?
Það er ákaflega brýnt að þessu fólki verði fundinn staður þar sem enginn röksun verður á meðferð þeirra.
Ríkið hættir greiðslum til Byrgisins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
31.12.2006 | 01:44
Gærdagur, dagur, morgundagur !
Ég heyrði lífsmottó hjá ákaflega vel gerðum manni um daginn og það hljóðaði svona
Gærdagurinn er fortíðinn
Dagurinn er nútíminn
og Morgundagurinn er framtíðinn
Þegar hann sagði þetta við mig skaut upp í kollinn á mér hvers vegna er maður að velta fyrir sér hvað getur gerst á morgun þegar morgundagurinn kemur hvort sem manni líkar betur eða verr. Því morgundagurinn er framtíðinn. Það bætist ekki bara einn dagurinn við morgundaginn heldur eru svo skemmtileg tímamót að það bætist heilt ár við líka sem er fullt af nýjum tækifærum sem bíða eftir því að vera gripinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2006 | 17:53
CSI
Hvert er þetta þjóðfélag að fara, maður bara spyr sig? Er fólk alveg að missa sig? Er það virkilega það sem fólk vill sjá að lögreglumenn verði klæddir skotheldum vestum og með byssur sér til varna? Hvað gengur eiginlega að fólki sem skýtur á lögregluna! Nú vantar bara CSI eins í sjónvarpinu, þeir myndu á stuttum tíma finna út hver skaut úr byssunni, hver framleiddi kúluna og hver stóð við hliðina á þeim sem skaut! En án gríns þá þarf að finna þann/þau/þá sem gerðu þetta og koma vitinu fyrir þau eitt skipti fyrir öll.
Þar sem fréttin er nú utan að landi þá sakna ég settningar sem yfirleitt fylgir þessum fréttum og hún er " það var aðkomumaður" því eins og þið vitið þá eru það alltaf aðkomufólk sem skanelerar á svona stöðum !
Skotið á bifreið lögreglumanns á Blönduósi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.12.2006 | 17:45
1 júní 2007 - Niðurtalning
Það verður betra líf eftir 1 júní 2007 það er víst alveg á hreinu. Manni verður þó að minnsta kosti óhætt að bregða sér inn á kaffihús eða veitingastað án þess að finnast maður sitja í miðjum öskubakka. Ég hef sjálfur aldrei reykt en tel mig þó alls ekki fanatískan í garð reykingamanna en það er auðvitað eitthvað að þegar maður bregður sér inn til þess að fá sér smá hressinu að þegar maður kemur út aftur þyrfti maður helst að skipta um föt því þau eru farinn að anga eins og öskubakki. Ég held að þegar bannið tekur gildi hér þá muni ásóknin á kaffihús og veitingastaði aukast líkt og gerst hefur í Írlandi.
Við getum öll hlakkað til 1 júní 2007, þe ef stjórnvöld ÞORA að standa við bannið án þess að framlengja aðlögunartímann....
Reykingar bannaðar á veitingahúsum í Belgíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2006 | 13:54
Til hamingju
Barnið kom um leið og leigubíllinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.12.2006 | 12:25
Ógleymanlega fólkið
Magni Ásgeirsson
Þeir sem allt þykjast vita um refilstigu tónlistar supu hveljur þegar spurðist að annarrar deildar sveitaballapoppari hefði komist áfram í Rock Star þáttunum. Hvað myndu hinir ofursvölu" LArokkarar halda um Ísland. En allt fór á annan veg. Magni ekki bara sló í gegn og sveitaballabransinn hlaut verðskuldaða uppreisn æru og Magni bjargaði í leiðinni Skjá einum og rakaði saman seðlum fyrir Símann í formi SMS-skeyta.
Nylon-flokkurinn
Eyþór Arnalds
Óli Geir Jónsson
Bubbi Morthens
Jói og Gugga
Ásgeir Kolbeins og Arnar Gauti
Samúel Kristjánsson
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir
Árni Johnsen
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2006 | 11:52
Guð er mikill. Þjóðin verður sigursæl og Palestína er arabísk."
Þetta voru lokaorð eins af allra mesta hrottamanns sem uppi hefur verið, að mínu mati. En hann var dæmdur til dauða og dómnum framfylkt með því að hengja hann í nótt. Það sem ég er nú hræddastur um er að hann verði gerður að einhverskonar "píslavotti". Ég held líka að það sé mikið til í orðum Muallah Omars eins af leiðtogum talibana að með því að dæma hann til dauða virki þetta sem vítamínsprauta á þá sem berjast í heilögu stríði gegn Bandaríkjamönnum.
En nóg um það, ég hef lýst því yfir áður og geri það enn og aftur til ítrekunnar að dauðarefsingar eiga ALDREI rétt á sér, að mínu mati, sama hver á í hlut.
Saddam neitaði að láta draga hettu yfir höfuð sé fyrir aftökuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.12.2006 | 00:15
KBbanka tárin
Ég held ég hafi sjaldan verið eins kjaftstopp hvað auglýsingar varðar og þær sem KBbanki birti á fimmtudaginn í dagblöðunum. Þar sáust grátandi starfsmenn og tilkynning með að þetta fólk væri að hætta hjá KBbanka þann dag. Þessar auglýsingar þótti mér gera ákaflega lítið úr þessu fólki, lítið úr fyrirtækinu og lítið úr viðskiptavinum. Ég bara spyr hver í ósköpunum er markaðsstjóri KBbanka sem heitir reyndar núna Kaupþing? Fyrir jól barst okkur brauðkarfa sem mér skyldist á starfsfólki bankans að flestir hafi hent beint í ruslið og svo kemur þessi vægast sagt ömurlega auglýsingaherferð sem á víst að kosta einhverstaðar í kringum 200.000 milljónir segi það satt og skrifa. Ég hefði haldið að þetta væri nú ekki svo mikið mál fyrir KBbanka að skipta um nafn þar sem Kaupþings nafnið hefur verið notað erlendis en aðeins KBbanka nafnið hér á klakanum, það hefði líklegast dugað að birta 4-6 heilssíður með tilkynningu á nafnabreytingunni að KBbanki héti hér eftir Kaupþing ! Ég neita að trúa því að markaðsdeild bankans sé svona hrikalega geld að þetta hafi verið skársti kosturinn því að mínu mati þá er bara eitthvað AÐ! En til starfsmanna Kaupþings þá vil ég segja, til hamingju með nýja nafnið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.12.2006 | 21:34
Ekki var það mikið !
Ekki var tveggja stunda vinnutap og eyðilegging á girðingu í kringum svæðið metið til mikils eða aðeins 70.000,- Sem þýðir væntanlega að mótmælendur hefðu leikandi haft efni á að stöðva vinnuna þarna í a.m.k. 1 dag (8 x 35.000) það hefði ekki kostað þá nema 280.000 krónru og það hefði verið ódýrara en heilsíðuauglýsing í prentmiðlunum og þeir hefðu án efa fengið talsvert meiri athygli... Kannski verður það næsta skref hjá þeim... hver veit.... ekki ég.
Dæmdur í sekt fyrir að ryðjast inn á álverslóð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.12.2006 | 13:03
Þrír menn bera faglega ábyrgð á Byrginu
Eins og einhver söng hér á árum áður, ekki benda á mig... segir varðstjórinn, þetta kvöld var ég að æfa lögreglukórinn.... o.s.frv.
En sá aðili sem hlýtur að bera höfuðábyrgð á starfsemi Byrgisins hlítur að vera Guðmundur Jónsson forstöðumaður. Ég hefði viljað að Ríkisendurskoðun hefði skilað áliti sínu nú í dag en ekki eftir tvær vikur líkt og áætlað er. Fyrst og fremast til þess að reyna koma starfsemi Byrgisins í eðlilegt horf sem allra fyrst, því án efa þá hefur það hjálpað mörgun í gegnum árin að koma undir sig fótunum á nýjan leik.
Það koma mér einnig talsvert á óvart hve loðin svör ráðuneytið fær við þeim spurningum sem það lagði fyrir stjórn Byrgisins, sumum spurningum er nú bara alls ekki svarað og öðrum er svarað algjörlega út í hött s.s. með afeitrunina, það sér það hver heilvita maður að afeitrun á sér þarna stað, ekki ætla ég svo sem að dæma um hvort það sé eðileg starfsemi í Byrginu hvort afeitrun er þar eða ekki en er það ekki akkúrat hluti af því að koma fíklum aftur á réttan kjöl þe að afeitra þá?
Þrír menn bera faglega ábyrgð á Byrginu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýjustu færslur
- 19.8.2011 Þetta er var ekki okkur að kenna!
- 7.8.2011 Munu flugmálayfirvöld ekki gera ástandsskoðun á vélum Iceland...
- 5.8.2011 Sagan endurtekur sig... þetta eru ekki við heldur þeir!
- 5.8.2011 Er Iceland Express þjónustufyrirtæki?
- 11.3.2010 Kristján Þór - Styrkir sig með hverjum deginum og þorir að se...
Eldri færslur
- Ágúst 2011
- Mars 2010
- September 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Fjölmiðlar
Tenglar á þá fjölmiðla sem ég les, þekki eða bara veit af!
- MissB
- SSB - Sjónvarpsstöð Sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti Stútfullur fróðleiksbrunnur
- Blaðið Það er bara þarna
- Deiglan Alveg ómissandi lesning
- Eyjafréttir Ekki spyrja mig afhverju !
- Þórshafnarfréttir Set þetta inn bara fyrir Rúnar
- Austurglugginn Allt gott kemur að austan
- Vísir Keyptar fréttir....? Gæti verið, hver veit
- Morgunblaðið...Málgagn þjóðarinnar Það eina sem þarf !
Skemmtilegir tenglar
Hér mun ég setja áhugaverða tengla sem gætu komið sér vel svona til þess að slóra eða stytta daginn.
- Handverkskona ársins 2007 -Miss B Besta handverkskona landsins og svei mér þá ef víða væri leitað.
- Hafsteinn - bloggar Heimsborgari á íslenskan mælikvarða, ferðast um landið jafn oft og reykvíkingar fara niður Laugarveginn
- Viltu vera í sambandi Ekkert vodafone...aðeins það besta Síminn
- Eru ekki allir tryggðir Þar sem tryggingar snúast um fólk!
- Reykjavík Nauðsynlegt til að vita hvað er að gerast í borginni
- Sjálfstæðisflokkurinn Máttastólpi íslenskt samfélagsins
- Jólahúsið Það styttist hratt í jólin.
Bloggvinir
- Birna M
- Dögg Pálsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Lee
- Eiður Ragnarsson
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Vilberg Tryggvason
- Púkinn
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Grazyna María Okuniewska
- gudni.is
- Gunnar Björnsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Haraldsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiðar Már Guðlaugsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Inga Lára Helgadóttir
- Jórunn Sigurbergsdóttir
- Kári Sölmundarson
- Grafarholtssókn
- Kristbjörg Sigurðardóttir
- Lady Elín
- Guðjón Baldursson
- Alfreð Símonarson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- viddi
- Ólafur fannberg
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Vilhjálmsson
- Óþekki embættismaðurinn
- Reynir Jóhannesson
- Rýnir
- Sæþór Helgi Jensson
- Sjálfstæðissinnar
- Sigríður Jósefsdóttir
- Halldór Sigurðsson
- Þorsteinn Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefanía Sigurðardóttir
- Sveinn Hjörtur
- Sveinn Tryggvason
- Þóra Sigurðardóttir
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- TómasHa
- Þorsteinn Siglaugsson
- Vefritid
- Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Birgir R.
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Carl Jóhann Granz
- Gunnar Gunnarsson
- Kristján Guðmundsson
- Marta Guðjónsdóttir
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Theodór Bender
337 dagar til jóla
Af mbl.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar