Leita í fréttum mbl.is

Árið 1913, 1930, 1958, 1975, 1988 og 2007

Það getur verið fróðlegt að flétta málgagni þjóðarinnar "Morgunblaðinu".

Árið 1913 - er sagt frá

  • Hraðlestarslys í Brasilíu
  • Fórnarmorð í Kiew
  • Kosningar í Englandi
  • Áríðandi fundur í Skátafélagi Reykjavíkur auglýstur
  • Pétur Hjaltested stjórnarráðsritari varð 48 ára
  • Ávextir og kálmeti komið í Liverpool
  • og landsmönnum bauðst að kaupa börubyrgðir verslunarinnar "Víkingur" á áður óþekktum kjörum.

Árið 1930 - er sagt frá

  • Hattabúð Reykjavíkur, allir haust og vetrahattarnir
  • A.S.Í auglýsir "tvær eða þrjár stúlkur sem eru fljótar að vjelrita óskast til skrifstofustarfa ca. vikutíma.
  • Slys á Eyrarbakka
  • Biðjið um Colman´s - fæst allstaðar (Nathan&Olsen)
  • Erlendar Símfregnir
  • Verslunin Björnin auglýsir "Spikfeitt hangikjöt"

Áríð 1958 - er sagt frá

  • Flugbátur settist á Atlantshafið með 30 farþega
  • Skyndilega snjókoma í Reykjavík í gær
  • Örar úrsagnir úr danska kommúnistaflokknum
  • Stjörnubíó auglýsir myndina "Réttu mér hönd þína" sem sýnd er kl 7 & 9 með dönskum texta
  • Landsmálafélagið Vörður heldur aðalfund sinn, Pétur Benediksson bankastjóri ræðir um efnahagssamvinnu og fríverslun Evrópu
  • Seldi fyrir 182 þúsund mörk, fyrsti hafnfirski togarinn, sem seldi afla sinn í Þýskalandi að þessu sinni var Röðull.

Árið 1975 - er sagt frá

  • Enn samt aka menn Hringbrautina á 90 km í roki og ringingu
  • Fimm hafnfirskar stelpur söfnuðu 6100 krónum sem þær héldu til styrkar Hjálparsveit Skáta í Hafnarfirði (Júlía Ágústsdóttir, Guðlaug Gestsdóttir, Þórhalla Ágústsdóttir, Hrönn Ásgeirsdóttir og Björk Jakobsdóttir)
  • Stóriðja á Austurlandi?  Samskipti við erlenda um orkumál
  • Eigandi miða númer 27295 vann 50.000 krónur í Happdrætti Háskóla Íslands.

Árið 1988 - er sagt frá

  • Herferð gegn íslenskum vörum
  • Bakið veldur óþægindum hjá mörgum
  • Plástur hjálpar konum á breytingaskeiðinu
  • Þrjúhundruðasta flugferðin til Grímseyjar
  • Yfirgengileg þrjóska
  • Árið 2000 - er sagt frá
  • Aukinn ótti við kúariðu
  • Það eitt er víst að allt er óvíst
  • Tepptir með fisk og mjólk fyrir austan
  • Rafræn viðskipti ríkisstofnana á næsta ári
  • Ástir stöðumælavarða

Árið 2007 - er sagt frá

  • Vann tvöfaldan sigur á alþjóðlegu badmintonmóti
  • Frakkar læra á dragnót
  • Liðugar og sigursælar
  • Augnaráð virkar á hitt kynið

Það getur verið allt í senn áhugaverð, fræðandi og skemmtileg afþreying að flétta í gegnum gömul blöð og ný, þegar maður skoða þau gömlu getur maður ímyndað sér gamla tíma og alltaf getur maður nú brosað þegar maður rekst á gamlar auglýsingar. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Gaman af þessu. Ég var einmitt einu sinni mikið að skoða þetta. Fyrst voru þeir ekki komnir af fæðingarárinu mínu þegar ég byrjaði held ég. Nú eru þeir komnir vel áfram með  þetta.

Þeir voru semsagt ekki betri í umferðinni 1975. En þú finnst mér að þá hafi ekki allir viljað vera fyrstir við ljós eins og núna. Er þetta fæðingarárið þítt Otti?  

Jórunn Sigurbergsdóttir , 13.11.2007 kl. 13:49

2 Smámynd: Óttarr Makuch

Yep ég fæddist á því herrans ári 1975 - glæsilegt ár það, það þótti verða framúrskarandi ár þegar leið á þriðja mánuð ársins

Óttarr Makuch, 13.11.2007 kl. 23:02

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

En veistu Ottarr hvað skeði 1933 það er spurning/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 15.11.2007 kl. 13:39

4 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Hey!! Hvað með 1972??

Eiður Ragnarsson, 16.11.2007 kl. 18:01

5 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ég á einn fæddan á þessu ári.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 18.11.2007 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband