Leita í fréttum mbl.is

Aumingja austfirðingar

Þið eigið samúð mína alla.  Þið vitið ekki hvað þið hafið nú fengið yfir ykkur.........Já ég er að tala um Digital Ísland.   Nú fyrst fáið þið að kynnast léilegum sjónvarpsgæðum og handónýtum afruglurum.  Nú og ef þið fáið ekki nægan styrk eða of mikinn styrk þá fer allt í kerfi, myndinn frís og svo fáið þið að sjá þættina í afar hægt þar sem myndin afmyndast og kemur fram í einhverskonar kubbamynd.  Þetta eru allt nýir gallar við annars frábært kerfi sem reyndar var orðið úrelt þegar það kom til landsins, en engu að síður frábær LoL

Þið eigið án efa eftir að skemmta ykkur konunglega Smile

 

 Frétt - austurglugginn.is

Digital Ísland á Austurlandi PDFPrentaRafpóstur
Skrifað af GG   
Saturday, 24 February 2007
Digital Ísland mun á næstu vikum stækka dreifikerfi sitt á stafrænum útsendingum og mun á næstu vikum ná til allra þéttbýlisstaða á Austurlandi. Um seinustu helgi fóru þjónustu menn á vegum Mömmu um Bakkafjörð um í gær birtust þeir á Egilsstöðum og verða á Héraði fram á þriðjudag.

Útsending 365 næst aðeins með Digital Ísland myndlykli og þeir sem vilja njóta þess áfram að horfa á fréttir Stöðvar 2 í opinni dagskrá verða því að vera með myndlykil. Sky News fréttastöðin verður í opinni dagskrá fyrir alla þá sem eru með stafrænan myndlykil Digital Íslands auk þeirra stöðvar sem senda út opna dagskrá. Á öðrum stöðum en á Egilsstöðum er ekki hægt að nota gamla myndlykilinn eftir að útsendingu er skipt í stafrænt merki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Maron Bergmann Jónasson

Austfirðingar eiga ekki von á góðu.

Þegar þessi mikla tækninýjung birtist á mínu heimili var allt sjónvarpslaust í heila viku.  Mér reiknast til að ég hafi verið geymdur á hold hjá þjónustuveri 365 í samtals 7 segi það og skrifa sjö klukkustundir þessa einu viku.  Hver besservisserinn á fætur öðrum sagði mér að gera öfugt miðað við þann á undan.

Þetta endaði með því að ég þurfti að fá mann sérhæfðan í loftnetauppsetningum og stillingum.  Hann benti mér á það að loftnetið sem var skaffað með afruglaranum næði engu merki því ég væri með húsið mitt á vitlausum stað í hverfinu.

Nýtt loftnet, óteljandi ferðir upp á þak, loftnetsuppsetningamaðurinn í tímavinnu í þrjá klukkutíma, kostnaður 22.000 krónur.

Kæru austfirðingar ekki, ekki, alls ekki fá ykkur digital Ísland

Maron Bergmann Jónasson, 26.2.2007 kl. 22:15

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ekki skemmtilegt að lenda í svona löguðu. Er sjálf með breiðbandið. fékk nóg af stöð 2 og fjölvarpi og öllum pakkanum. 

Jórunn Sigurbergsdóttir , 26.2.2007 kl. 23:01

3 Smámynd: Birna M

Ég er með breiðband fékk nóg af öllum hinum

Birna M, 26.2.2007 kl. 23:04

4 Smámynd: Ólafur fannberg

er með breiðband..henti hinu draslinu út

Ólafur fannberg, 26.2.2007 kl. 23:07

5 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Breiðbandið blívur í Grafarholtinu, hvað með Borgarnes?

Sigríður Jósefsdóttir, 27.2.2007 kl. 14:12

6 Smámynd: Óttarr Makuch

Við þurftum einmitt að greiða heilar 120.000 krónur fyrir að ná sambandi við Stöð2 sem við þurfum að sjálfssögðu að greiða úr eigin vasa og kom Stöð2 þar hvergi nálægt.  Hef oft hugsað um að senda þeim reikning, en geri ráð fyrir að hann yrði aldrei greiddurr af þeim

Óttarr Makuch, 27.2.2007 kl. 18:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband