Leita í fréttum mbl.is

Intrum til sölu

Við íslendingar hljótum að vera skoða þennan möguleika í samstarfi við bankana, ég trúi nú ekki öðru þar sem íslensku bankarnir eru með samráð með virkum eignahlut sínum í INTRUM á íslandi sem er fyrirtæki sem græðir á tá og fingri, sem betur fer.  En í ljósi þess hljóta þeir að vera hugsa um að kaupa stærri gullkálf sem teygir anga sína í 21 annað land fyrir utan Ísland.  Ég spái því að annaðhvort því að bankarnir fari annaðhvort í samráð um að kaupa höfuðstöðvar INTRUM eða einhver af þeim kaupir þetta, annað getur ekki verið
Frétt úr Fréttablaðinu í dag 
Intrum til sölu?
Getgátur hafa verið á sænskum hlutabréfamarkaði að innheimtufyrirtækið Intrum Justitia, sem er með starfsemi í 22 löndum, verði yfirtekið á þessu ári.

Getgátur hafa verið á sænskum hlutabréfamarkaði að innheimtufyrirtækið Intrum Justitia, sem er með starfsemi í 22 löndum, verði yfirtekið á þessu ári.

Stærsti hluthafinn í Intrum er Landsbankinn með yfir ellefu prósenta hlut en í Dagens Industri kemur fram að stærstu eigendurnir hafi einungis áhuga á því að selja bréf sín sem valdi því að félagið er í ódýrari kantinum. Fyrir þær sakir er yfirtaka á Intrum líklegri en ella. Intrum er metið á rúma 67 milljarða króna í Kauphöllinni í Stokkhólmi og hefur hækkað um 30 prósent á einu ári.

Annar stærsti hluthafinn er svo Christer Gardell í Cevian Capital sem hefur starfað náið með íslenskum fjárfestum í Svíþjóð, svo sem í baráttunni um yfirráðin í Skandia. - eþa


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Það hlýtur að vera arðbært að festa fé sitt í fyrirtæki sem tekur meira fyrir sinn snúð en okurlánarar erlendis......   Þetta er á mörkum þess að vera glæpafyrirtæki í mínum huga..

Eiður Ragnarsson, 24.1.2007 kl. 23:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband