Leita í fréttum mbl.is

Tilvalin uppskrift fyrir kvöldið.

Bang Bang kjúklingur

Uppskrift fyrir tvo:

450 gr. kjúklingabringur (skinn- og beinlausar)
1 hvítlauksrif, kramið undir hnífsblaði, ekki skorið
1/2 tsk svört piparkorn
1 lítill laukur skorinn til helminga
1 gúrka, frælaus og skorin í strimla
Salt og mulinn svartur pipar

Sósan:
3 msk. hnetusmjör
2 msk. AMOY Sesame Oil
1 msk. AMOY Light Soy Sauce
3 msk. kjúklingasoð
1 msk. vínedik
2 vorlaukar, smátt skornir
2 hvítlauksrif, pressuð
5 x 1 cm. engiferrót, skorin í stöngla á stærð við eldspýtu
Athugið! Engiferrótin er bragðsterk prófið ykkur áfram eftir smekk
1 msk. Sichuan piparkorn (má sleppa)
1 tsk. ljós púðursykur

Chilli olía:
4 msk. jarðhnetuolía eða önnur sambærileg
1 tsk. chilli krydd

 

1. Setjið kjúklinginn í pott og hellið vatni yfir þannig að það fljóti yfir
kjúklinginn. Bætið við hvítlauksrifinu, piparkornunum og lauknum og látið suðuna koma upp. Fleytið ofan af vatninu og bætið svo við salti og pipar eftir smekk. Látið sjóða á vægum hita í 25 mínútur eða þangað til kjúklingurinn er
meir. Sigtið vatnið frá að lokum en geymið soðið.

2. Búið til sósuna með því að blanda saman í skál hnetusmjöri, sesamolíu og
kjúklingasoðinu saman. (Athugið! hægt er að nota 3 msk. af ristuðu sesam mauki
í stað hnetusmjörs og sesamolíu). Bætið því næst sojasósunni, vínedikinu,
vorlauknum, hvítlauknum, engiferrótinni og Sichuan piparkornunum saman við.
Sykrið eftir smekk.

3. Búið chilli olíuna með því að hita jarðhnetuolíuna og chilli kryddið saman
þangað til hún fer að krauma og bíðið í 2 mínútur. Látið kólna og fleytið þá
rauðu olíuna ofan af.

4. Dreifið gúrkunni á diska, skerið kjúklingabringurnar í bita í sömu stærð og
gúrkan. Leggið kjúklingabitana ofan á gúrkustrimlana. Hellið sósunni yfir og
látið chilli olíuna drjúpa yfir eftir smekk.

Borið fram með hrísgrjónum eða Amoy eggjanúðlum.

 

Þessi uppskrift er í boði


Hvað er maður að hugsa

Ekki veit ég af hverju maður er að rífa sig upp á hverjum morgni kl 05.30 til þess eins að fara í leikfimi, sérstaklega þegar aðrir virðast hafa það svona náðugt Smile

 

Hitt er svo annað mál, það eru forréttindi að fá að fylgjast með borginni vakna og sjá hvernig hraðinn eykst smám saman þar til það verður algjör sprengja líkt og allir séu að verða of seinir í vinnu milli hálf átta og átta.
Góðan og gleðilegan mánudag, megi vikan vera ykkur ánægjuleg.

Hjúkk - sloppinn

Jæja maður slapp að þessu sinni að hlupa apríl.   Það er reyndar óhætt að segja að maður hafi farið þau nokkur svona í gegnum árin þó svo maður hafi frekar verið sá sem plataði einhverja aðra til þess að hlaupa... enda hreyfing holl fyrir alla Smile
mbl.is Aprílgöbb stór og smá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðurstöður álverskosninga - Kjósa þarf aftur!

Þegar maður veltir fyrir sér nýafstöðnum kosningum vegna álversins í Straumsvík þá getur maður ekki komist hjá því að spyrja sig "er þetta virkilega það sem fólk vill"?  Af hverju fengu ekki höfuðborgarbúar að kjósa um álverið í Straumsvík?  Því klárlega hefur þetta áhrif á fleirra fólk en sem býr í Hafnarfirði, hefði ekki verið eðlilegt að kjósa á stór Reykjavíkursvæðinu?

Það er annar punktur við þessar kosningar sem gaman væri að fá svar við þe er nóg að aðeins munaði 88 atkvæðum, er ásættanlegt að ekki sé afgerandi og skýr niðurstaða í kosningunni?  Niðurstaðan var sú að 50,3% sögðu nei en 49,7% sögðu já.  Vær ekki eðilegt með svona stórar ákvarðanir að niðurstaðan yrði að vera afgerandi t.d þyrfti 60% greiddra atkvæða til þess að málið sé samþykkt í einni kosningu, en ef það er mjög næmt á milli líkt og í þessari kosningu þá þyrfti að endurtaka kosninguna eftir 3-6 mánuði, þá ætti að koma afgerandi niðurstaða en ekki niðurstaða sem byggist kannski fyrst og fremst á heppni.  Ég spyr er íbúðalýðræðið að virka í Hafnarfirðinum í dag þegar aðeins 88 manns fá að ráða framtíð bæjarsamfélagsins.  Þetta er stórt mál sem ég tel að sé afar brýnt að meirihluti kjósenda verður að vera sáttur við, á hvorn vegin sem niðurstaðan er þá verður hún að endurspegla afgerandi meirihluta.  Eftir miklar vangaveltur tel ég eðlilegt að kjósa aftur um stækkun álversins í Straumsvík og opinbera með því sterkan vilja Hafnfirðinga um hvort þeir vilja hafna stækkun eða ekki.


Páskaeggjaleit í Elliðárdal - 7 apríl kl 14.00

Páskaeggjaleit í Elliðárdalnum, verður haldinn laugardaginn 7 apríl kl. 14.00 við gömlu Rafveitustöðina.

Krakkar á öllum aldri, mömmur, pabbar, afar og ömmur komið og njótið góðrar náttúru í góðra vina hóp.

Leitað verður að fagurskreyttum eggjum og börnin fá gómsætt súkkulaðiegg.

Leiktæki verða á staðnum og hoppukastali, keppt verður í húllakeppni.

Munið að taka körfu eða poka undir eggin sem páskahérinn hefur falið!

Hittumst öll hress og kát í Elliðárdalnum þann 7 apríl!

Félög sjálfstæðismanna í Breiðholti og Árbæ.


mbl.is Páskaeggjaleit á Ægisíðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SMS SMS SMS SMS SMS SMS

Góði hálsar,  er ekki eðlilegt að halda sms keppni hér á landi líka?  Ég er kannski ekki sá fljótasti en ég hlýt að vera í top?? sætunum, miðað við það magn sem ég sendi af sms á degi hverjum ætti ég það skilið að fá verðlaunaféið afhent strax í upphafi keppni.  En þar sem ég er yfirmáta samstarfsfús þá get ég fallist á það að taka þátt í formlegri keppni bara svona formlegheitanna vegna LoL


mbl.is Keppt í SMS-sendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann er tannlaus greyið takið eftir þvi...

... tönnunum hann týndi, sykur snúði í, nú er íllt í efni ekkert liggur á... tralala

Aumingja Gorillan að vera svona tannlaus, það er spurning hvort hún gæti ekki mætt á óskilamuna uppboðið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, mér skyldist að þar væru alltaf gómar á lausu Wink

 


Nóatún, Fjarðakaup eða Hagkaup.

Ég er viss um að eitthvað af þessum þremur fyrirtækjum þe Fjarðakaup, Nóatún eða Hagkaup eru tilbúinn að hleypa einokunarverslun ríkissins þe ÁTVR inn í sín verslunarhúsnæði í afmörkuð rými.

Það myndi samræmast stefnu forstjóra ÁTVR hann gæti þá fylgt eftir þeirri stefnu sem hann framkvæmdi þegar ÁTVR í Mjódd var færð yfir í Garðheima, flestum til mikillar undrunar nema þá eiganda Garðheima og Halldóri Ásgrímssyni.  Það er löngu orðið tímabært að bjóða íslenskum neytendum uppá þann möguleika að geta keypt sér vínber, osta og rauðvín á einum og sama staðnum líkt og gengur víðast hvar í kringum okkar.  Þessi einokunarstefna ÁTVR er úreld!

Það var því mikil synd að Vinstri Grænir skyldu hóta háttvirtu Alþingi íslendinga um að hefja málþóf og með því hindra að mörg brýn og góð málefni kæmust í gegn ef frumvarp um áfengissölu yrði afgreitt, þetta er sáraeinfalt mál, skaðlaust en veitir okkur þann sjálfssagða munað að geta verslað léttvín þegar við viljum, þar sem við viljum og hugsanlega á sanngjarnara verðið.


mbl.is ÁTVR vill opna nýja vínbúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er ég hissa.

Það kemur eflaust mörgun á óvart að Vinstri Grænir hafi verið á móti í þessu máli eins og svo morgum öðrum.  Það er löngu orðið tímabært að bæta húsakostinn á sem er við laugaveginn, enda vantar þar húsnæði sem hentar vel undir verslunarstarfsemi, mikið af því húsnæði sem er nú til staðar er þröngt í býður ekki uppá neinar breytingar.
mbl.is Leggjast gegn niðurrifi húsa við Laugaveg og Vatnsstíg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband