13.11.2007 | 00:09
Árið 1913, 1930, 1958, 1975, 1988 og 2007
Það getur verið fróðlegt að flétta málgagni þjóðarinnar "Morgunblaðinu".
Árið 1913 - er sagt frá
- Hraðlestarslys í Brasilíu
- Fórnarmorð í Kiew
- Kosningar í Englandi
- Áríðandi fundur í Skátafélagi Reykjavíkur auglýstur
- Pétur Hjaltested stjórnarráðsritari varð 48 ára
- Ávextir og kálmeti komið í Liverpool
- og landsmönnum bauðst að kaupa börubyrgðir verslunarinnar "Víkingur" á áður óþekktum kjörum.
Árið 1930 - er sagt frá
- Hattabúð Reykjavíkur, allir haust og vetrahattarnir
- A.S.Í auglýsir "tvær eða þrjár stúlkur sem eru fljótar að vjelrita óskast til skrifstofustarfa ca. vikutíma.
- Slys á Eyrarbakka
- Biðjið um Colman´s - fæst allstaðar (Nathan&Olsen)
- Erlendar Símfregnir
- Verslunin Björnin auglýsir "Spikfeitt hangikjöt"
Áríð 1958 - er sagt frá
- Flugbátur settist á Atlantshafið með 30 farþega
- Skyndilega snjókoma í Reykjavík í gær
- Örar úrsagnir úr danska kommúnistaflokknum
- Stjörnubíó auglýsir myndina "Réttu mér hönd þína" sem sýnd er kl 7 & 9 með dönskum texta
- Landsmálafélagið Vörður heldur aðalfund sinn, Pétur Benediksson bankastjóri ræðir um efnahagssamvinnu og fríverslun Evrópu
- Seldi fyrir 182 þúsund mörk, fyrsti hafnfirski togarinn, sem seldi afla sinn í Þýskalandi að þessu sinni var Röðull.
Árið 1975 - er sagt frá
- Enn samt aka menn Hringbrautina á 90 km í roki og ringingu
- Fimm hafnfirskar stelpur söfnuðu 6100 krónum sem þær héldu til styrkar Hjálparsveit Skáta í Hafnarfirði (Júlía Ágústsdóttir, Guðlaug Gestsdóttir, Þórhalla Ágústsdóttir, Hrönn Ásgeirsdóttir og Björk Jakobsdóttir)
- Stóriðja á Austurlandi? Samskipti við erlenda um orkumál
- Eigandi miða númer 27295 vann 50.000 krónur í Happdrætti Háskóla Íslands.
Árið 1988 - er sagt frá
- Herferð gegn íslenskum vörum
- Bakið veldur óþægindum hjá mörgum
- Plástur hjálpar konum á breytingaskeiðinu
- Þrjúhundruðasta flugferðin til Grímseyjar
- Yfirgengileg þrjóska
- Árið 2000 - er sagt frá
- Aukinn ótti við kúariðu
- Það eitt er víst að allt er óvíst
- Tepptir með fisk og mjólk fyrir austan
- Rafræn viðskipti ríkisstofnana á næsta ári
- Ástir stöðumælavarða
Árið 2007 - er sagt frá
- Vann tvöfaldan sigur á alþjóðlegu badmintonmóti
- Frakkar læra á dragnót
- Liðugar og sigursælar
- Augnaráð virkar á hitt kynið
Það getur verið allt í senn áhugaverð, fræðandi og skemmtileg afþreying að flétta í gegnum gömul blöð og ný, þegar maður skoða þau gömlu getur maður ímyndað sér gamla tíma og alltaf getur maður nú brosað þegar maður rekst á gamlar auglýsingar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.11.2007 | 22:50
Listin
Hvað væri lífið án listar? Það væri allavega ansi fátækt. Það er alltaf gaman að sjá hvernig listamenn geta leikið sér að hlutunum. Þessar myndir eru teknar af fígúrum sem gerðar eru úr appelsínum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.11.2007 | 01:38
Flottur söngvari, flottir tónleikar og alveg þess virði að bíða
Já það var alveg þess virði að bíða með alla fjölskylduna áður en haldið var heim á leið, ekki gerðist ég svo frægur að fara á tónleikana þrátt fyrir að þeir væru nánast haldir í garðinum hjá mér hér á stór Grafarholtssvæðinu. En biðin var þess virði svo maður væri ekki að hanga í langri bílalest til þess að komast heim til sín.
En eitthvað verða borgaryfirvöld að gera því þegar eitthvað er um að vera í Egilshöllinni þá er bara allt STOPP og maður getur lesið heilan kapla í bók eftir Arnald Indriðason á leið sinni heim. En ég hef þrátt fyrir allt meiri áhyggjur af umferðinni þegar Úlfarsárdalur bætist inní allt flóðið sem nú þegar rennur upp og niður Vesturlandsveginn bæði kvölds og morgna. Ekki ætlar nýr meirihluti að segja íbúðareigendum að skilja bíla sína eftir og taka strætó frítt í vinnuna, líkt og með sundlaugahugmyndina í Laugardal... sérstök speki þar á ferð - svo ekki sé nú meira sagt. Held svei mér þá að eitthvað af permanettinu hafi læðst inní kollinn á nýja lækninum í borginni.
![]() |
Bocelli í Egilshöll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
31.10.2007 | 11:06
Síðan hvenær ???
![]() |
Köstuðu snjóboltum í bíla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.10.2007 | 23:05
Samstarf leik- og grunnskóla, allra hagur
Það er alveg ljóst að það væri allra hagur ef samstarf leik- og grunnskóla borgarinnar væri meira. Nú þegar tími vetrarfría og starfsdaga er hjá leik- og grunnskólum borgarinnar eru foreldrar á þönum við að reyna eftir fremsta megni að púsla saman dögunum. Í dag er samhæfing leik- og grunnskólanna sáralítið þegar kemur að þessum fríum. Til að mynda er vetrafrí í Sæmundarskóla í Grafarholti frá miðvikudegi til þriðjudags og svo er frí í Maríuborg hér í Grafarholti á miðvikudaginn. Þetta þýðir að við þurfum að taka 5 frídaga þegar við gætum sparað okkur 1 frídag og tekið bara 4 daga núna og átt fleiri sumarfrís daga í sumar, þegar skólinn er lokaður í tvo mánuði og leikskólinn í einn.
Þetta er klárlega málefni fyrir leikskóla- og menntaráð að samhæfa betur með það í huga að fækka þeim frídögum sem foreldrar og forráðamenn þurfa að taka yfir veturinn. Þeir geta þá verið fleiri daga með fjölskyldunni allri á sumrin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.10.2007 | 23:37
Kári kemur hægt en örugglega
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.10.2007 | 18:27
Víxlum laununum
Ekki kemur þessi tilkynning manni neitt verulega á óvart. En KSÍ þyrfti nú að sópa aðeins betur út úr liðinu t.d. þarf nýjan fyrirliða því sá sem því starfi gegnir ætti best heima á bekknum - allavega þar til hann kemst í betra form og áhugi hans kviknar aftur fyrir því að spila fyrir Íslands hönd. Er ekki hreinlega komið tilefni til þess að endurnýja stóran hluta af hinum leikmönnunum einnig? Hvernig væri að fá einhverja aðra en þá sem skapað hafa sér nafn á erlendri grundu, ég er viss um að margir fótboltamenn sem eru "bara" að spila hér á klakanum myndu standa sig betur en þessar "stjörnur" sem spila nú með liðinu. Ástæðan fyrir því að ég set "stjörnur" í gæsalappir er auðvitað sú að það er ekki nóg að vera flott nafn þessir ágætu liðsmenn ættu nefnilega að þurfa að vinna fyrir því að fá að vera í landsliðinu.
Hugsanlega er spurning um að biðja íslenska kvennalandsliðið um að aðstoða þessa "meistara" og kannski sýna þeim taktanna líka og þar sem við erum farin að tala um kvenna og karlalið þá er spurning hvort það ætti ekki að víxla launakjörunum, því stelpurnar eru klárlega meira virði en þær eru í augum KSÍ, því þar á bæ virðast menn vera blindir gagnvart öllu öðru en karlahópnum.
P.s ég skrifaði að sjálfssögðu aðeins um íþróttir fyrir Kaupmannahafnarbúanna !
![]() |
Eyjólfur hættur sem þjálfari landsliðsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.10.2007 | 22:58
Nýr skipstjóri í brúnna - Sævar Freyr forstjóri
Dagurinn í dag byrjaði rólega eins og allir aðrir dagar. Vakna, koma krökkunum í skólann og svo sitja við hlið einkabílstjórans og lesa blaðið á leið í vinnu. Maður verður jú að vera vel inní málum líðandi stundar þegar maður kemur inn á meðal vinnufélaga.
Vitir menn það var ekkert í blöðunum sem gaf tilefni til stærstu fréttar dagsins. Því rúmlega tíu barst starfsmönnum tilkynning - með fyrirsögninni "Sævar Freyr Þráinsson verður forstjóri Símans" Ég las textann tvisvar áður á meðan ég meðtók skilaboðin. Ha er Brynjólfur Bjarnason sem siglt hefur skútunni undanfarin ár með framúrskarandi árangri að hætta, af hverju? Sævar Freyr að verða forstjóri, maðurinn sem ég slóst við í æsispennandi sundbolta fyrir nokkrum mánuðum í lítilli sundlaug á Akranesi?
Brynjólfur hefur verið forstjóri Símans og Skipta því síðarnefnda frá stofnun, en það er móðurfyrirtæki Símans. Nú eru umsvif Skipta orðið það mikil og víðtæk að hann mun einbeita sér af því að stýra þeirri skútu og án efa með góðum árangri.
Sævar Freyr mun taka við nýja starfinu þann 1 nóvember næstkomandi og þann dag verða ýmsar aðrar breytingar hjá Símanum því Elín Þórunn sem verð hefur forstöðumaður fyrirtækjasviðs tekur við starfi Sævars sem framkvæmdastjóri og Elín Rós sem verið hefur deildarstjóri mun taka við starfi Elínar sem forstöðumaður - svo dagurinn í dag var dagur mikilla frétta og breytinga, eins og áður valinn maður á hverjum stað í fyrirtækinu.
Ég hef ekki starfað lengi hjá fyrirtækinu en hef þó getað fylgst með þeim góðu verkum sem þetta fólk ásamt mörgu öðru fólki hefur unnið. Það verður því lærdómsríkt, krefjandi og umfram allt skemmtilegt að vinna með þessu góða fólki á komandi misserum.
Sævar Freyr, Elín Þórunn og Elín Rós til hamingju með nýju störfin og megi þau vera ykkur ánægjuleg, gefandi og umfram allt skemmtileg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.10.2007 | 18:55
Bókun gegn bókun - sérstakt
Hvernig er hægt að álykt um að leggja skuli áherslu á aukin lífsgæði borgarbúa á sama tíma og gerð er bókun um heftun á viðskiptafrelsi og beiti eigi borgarbúum viðskiptaþvingunum með því að leggjast gegn frjálsri samkeppni á sölu áfengis hér á landi?
Það er löngu orðið tímabært að færa sölu áfengis í almennar verslanir líkt og gerst hefur víðast hvar um landið s.s. á Djúpavogi, Vopnafirði, Kirkjubæjarklaustir og víðar. Á þessum stöðum eru reknar áfengisútsölur með öðrum rekstri þær eru að vísu skorðaður af með einhverjum hætti.
Vissulega get ég stutt það að áfengið þarf að vera skorðað af í verslunum til þess að hægt sé að fylgjast betur með þeim sem eru að versla þá vöru með tilliti til aldurs.
![]() |
Velferðarráð leggur áherslu á aukin lífsgæði borgarbúa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.10.2007 | 08:22
Dýrt tjón á ekki nema 100 þúsund kall !
Mikil mildi að enginn hafi slasast alvarlega eða látist í þessum barnaskap ökumannsins. Maður veltur því þó fyrir sér að eftir skoðun á slysadeild fékk bílstjórinn að fara heim. Hann hefur nú verið uppvís að ofsaakstur sem ég get ekki flokkað undir neitt annað en morðtilræði á farþega sínum og þeim vegfarendum sem í kringum hann voru. Það sem vekur furðu manns er að hann hafi fengið að fara heim að skoðun lokinni, hefði ekki hreinlega verið nær að óska eftir gæsluvarðhaldi yfir manninum þangað til geðrannsókn hefur farið fram og dómur fallið í málinu.
Mér leikur forviti á að vita, hver borgar fyrir þann skaða sem slysið olli? Greiðir tryggingarfélagið alfarið, ég veit að það greiðir væntanlega þriðja aðila tjónið og hefur svo endurkröfurétt á ökumanninn, en er það gert?
Svo væri forvitnilegt að vita hvað t.d þetta tjón kostar í heild sinni miðað við að hann greiðir í tryggingariðngjöld á ári (ég vinn ekki hjá tryggingafélagi)
En ég spyr fyrir hönd farðþega hans "hver þarf óvini sem á svona vini"?
![]() |
Lögreglan: Ótrúlegt að ekki skyldi verða stórslys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Nýjustu færslur
- 19.8.2011 Þetta er var ekki okkur að kenna!
- 7.8.2011 Munu flugmálayfirvöld ekki gera ástandsskoðun á vélum Iceland...
- 5.8.2011 Sagan endurtekur sig... þetta eru ekki við heldur þeir!
- 5.8.2011 Er Iceland Express þjónustufyrirtæki?
- 11.3.2010 Kristján Þór - Styrkir sig með hverjum deginum og þorir að se...
Eldri færslur
- Ágúst 2011
- Mars 2010
- September 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Fjölmiðlar
Tenglar á þá fjölmiðla sem ég les, þekki eða bara veit af!
- MissB
- SSB - Sjónvarpsstöð Sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti Stútfullur fróðleiksbrunnur
- Blaðið Það er bara þarna
- Deiglan Alveg ómissandi lesning
- Eyjafréttir Ekki spyrja mig afhverju !
- Þórshafnarfréttir Set þetta inn bara fyrir Rúnar
- Austurglugginn Allt gott kemur að austan
- Vísir Keyptar fréttir....? Gæti verið, hver veit
- Morgunblaðið...Málgagn þjóðarinnar Það eina sem þarf !
Skemmtilegir tenglar
Hér mun ég setja áhugaverða tengla sem gætu komið sér vel svona til þess að slóra eða stytta daginn.
- Handverkskona ársins 2007 -Miss B Besta handverkskona landsins og svei mér þá ef víða væri leitað.
- Hafsteinn - bloggar Heimsborgari á íslenskan mælikvarða, ferðast um landið jafn oft og reykvíkingar fara niður Laugarveginn
- Viltu vera í sambandi Ekkert vodafone...aðeins það besta Síminn
- Eru ekki allir tryggðir Þar sem tryggingar snúast um fólk!
- Reykjavík Nauðsynlegt til að vita hvað er að gerast í borginni
- Sjálfstæðisflokkurinn Máttastólpi íslenskt samfélagsins
- Jólahúsið Það styttist hratt í jólin.
Bloggvinir
-
Birna M
-
Dögg Pálsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Egill Rúnar Sigurðsson
-
Einar Lee
-
Eiður Ragnarsson
-
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
-
Vilberg Tryggvason
-
Púkinn
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
gudni.is
-
Gunnar Björnsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Haraldsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Heiðar Már Guðlaugsson
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Jórunn Sigurbergsdóttir
-
Kári Sölmundarson
-
Grafarholtssókn
-
Kristbjörg Sigurðardóttir
-
Lady Elín
-
Guðjón Baldursson
-
Alfreð Símonarson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
viddi
-
Ólafur fannberg
-
Pálína Erna Ásgeirsdóttir
-
Páll Vilhjálmsson
-
Óþekki embættismaðurinn
-
Reynir Jóhannesson
-
Rýnir
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sjálfstæðissinnar
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Halldór Sigurðsson
-
Þorsteinn Gunnarsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefanía Sigurðardóttir
-
Sveinn Hjörtur
-
Sveinn Tryggvason
-
Þóra Sigurðardóttir
-
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
-
TómasHa
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Vefritid
-
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
-
Vilborg G. Hansen
-
Birgir R.
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnar Gunnarsson
-
Kristján Guðmundsson
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Theodór Bender