Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
19.10.2007 | 23:54
Þá er það komið á hreint !
Það verður seint hægt að segja um mig að ég lifi lífinu eftir stjörnuspám en ég hef gaman af því að lesa þær í blöðunum eins og aðrir, ég rak augun í stjörnuspánna í dag og gat ekki annað en brosað út í annað. Ég hef stundum fengið þá gagnrýni á mig að segja hlutina umbúðalaust og komst svo að því núna að það er bara sjarmi en ekki ókostur
Hrútur: Á meðan þú sérð fegurðina í kringum þig, sjá aðrir fegurðina í þér. Þú gerir hlutina ekki til að geðjast öðrum, og það er hluti af sjarmanum.
Ég hef reyndar alltaf haldið því fram að maður á að vera maður sjálfur en ekki leika einhvern sem þú telur að aðrir vilji sjá - slík leikrit hafa það sameiginlegt að fá lélega dóma í lokinn og endast því ílla..... nema þá einna helst hjá ónefndum borgarfulltrúa í litlum flokk.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.10.2007 | 23:13
Aumingjaskapur
Hverskonar aumingi getur þessi ökumaður verið. Held að menn geti ekki fallið neðar í þjóðfélagsþrepinu en þetta. Að keyra í burtu af slysstað er algjörlega ófyrirgefanlegt.
Stakk af frá slysstað eftir árekstur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.10.2007 | 23:22
Tja ekki skal ég fullyrða hvort þetta sé rétt
Í Blaðinu eða 23 tímum í dag er viðtal við Vigni leigubifreiðastjóra sem fór á námskeið í FBI tækni og ég gat ekki annað en brosað út í annað þegar ég las
"Vignir segir hægt er að treysta leigubílstjórum fyrir áhyggjum. "Það sem gerist í leigubíl er trúnaðarmál á milli leigubílstjóra og kúnna"
Þrátt fyrir að ég þekki Vigni af góðu einu saman þá held ég að þetta sé full mikil bjartsýni. Man reyndar ekki betur en að fyrir einhvern jólin hafi komið út bók með leigubílasögum. Hinsvegar held ég þó að það sé ekki kannski sagt frá kúnnunum sem slíkum en hugsanlega er sagt frá góðri sögu.... Kannski er bara frasinn góði notaður "Björn Ingi sagði"...... sem kemur væntanlega í staðinn fyrir að "ólygin sagði".
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.10.2007 | 23:37
4 borgarstjórar í Reykjavík - dýrt spaug
Ég get nú ekki leynt vonbrigðum mínum með stöðu mála í borginni í dag. Staðan er skelfileg fyrir borgarbúa höfuðborgarinnar. Loksins þegar búið var að koma skikk á fjármálin borgarinnar þá stefnir allt í voða aftur.
Það verður gott að búa í Reykjavík, þegar 4 borgarstjórar komast í stólinn á þriðjudaginn með tilheyrandi kostnaði. Spurningin verður kannski fyrst og fremst sú, hver verður aðal borgarstjóri og verður Alfreð kallaður inn aftur sem "litli" borgarstjórinn ?
Verður sama uppá teningnum þegar óskað verður eftir oddvita meirihluta úr boginni í Kastljós að þá neita allir að koma nema þau fái öll að koma, líkt og gerðist um daginn?
Það verður merkilegt að fylgjast með breytingunum á næstu dögum og vikum.
Bæði leikskóla- og grunnskólakennarar fá fullkomna leiðréttingu sinna mála og hækka laun þeirra um 100% líkt og Vinstri grænir hafa ítrekað óskað eftir að gert sé.
Flugvöllurinn fer úr mýrinni og byggð verða hús á því svæði.
Einbýlishúsalóðir lækka um að lágmarki 5 milljónir líkt og Samfylkingin hefur lofað.
Það verður gjaldfrjálst að borða í grunnskólum borgarinnar að beiðni Vinstri Grænna.
það verður frítt í strætó fyrir alla eins og Vinstri grænir vilja.
Innfluttningur hefst aftur á Risarækjueldi á vegum OR.
Öll frístundaheimili borgarinnar verða mönnuð fyrir næstu helgi, biðlistar heyra brátt sögunni til.
Byggð verður brú í stað ganga yfir sundin, enda mun fallega að skreyta með jólaljósum brú en neðanjarðar líkt og Stefán Jón sagði.
Hætt verður við frekari áform um að byggja þjónustuíbúðir fyrir aldraða sérstaklega í ljós þess að þetta ágæta fólk byggði ekki 1 þjónustuíbúð á s.l. 12 árum!
Stórlega verður dregið úr þjónustu við einkabílinn og samgöngur í Reykjavík.
Við þennan lestur sjá allir að það verður frábært að búa í Reykjavík en spurningin er bara hver á að greiða brúsann....?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
8.10.2007 | 23:04
Það er hægt að sækja sér ýmsan fróðleik á netinu :-)
Fyrir þau okkar sem viljum vita staðreyndirnar þá getur oft verið gaman að vafra um netið í leit af staðreindunum.
Ég komst til dæmis að því núna að ég er ekki sá eini sem á afmæli 25 mars
Því við erum alls 765 sem eigum afmæli þennan dag og það sem meira er þá erum við 8 sem erum jafn gömul og fæddumst á þessum merka degi árið 1975.
Það má einnig til gamans segja frá því að 1 október s.l. vorum við orðin 312.851 nú og svo var VNV í sept. 276,7
Þennan fróðleik ásamt ýmsum öðrum fróðleik er hægt að nálgast á heimasíðu Hagstofunnar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.10.2007 | 17:39
Gullkálfur til sölu
Er ekki spurning um að brjóta sparigrísina og fjárfesta í gullkálfinum? Það verður spennandi að sjá hver kaupir, skyldi AO skila inn tilboði, þeir geta þá verið með sömu verðum og allir aðrir með góðri samvisku Eins getur verið fín hagræðing að sameina þessi fyrirtæki í eitt þá þarf ekki nema einn bíl til þess að halda samráðsfundina
Glitnir selur Skeljung fyrir Fons
Glitnir hefur tekið að sér að selja og sölutryggja olíufélagið Skeljung fyrir Uppsprettu, félag í eigu Fons.
Eftir því sem segir í tilkynningu frá félögunum er samkomulag þeirra gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun sem gerð verður á næstu vikum. Í framhaldinu ætlar Glitnir svo að ræða við áhugasama fjárfesta.
Skeljungur á að baki nærri 80 ára sögu en félagið rekur um 100 verslanir og þjónustustöðvar undir merkjum Shell um allt land. Auk þess rekur félagið Bensínorkuna á um 20 stöðum um allt land. Skeljungur keypti enn fremur rekstur Shell í Færeyjum fyrr á árinu og stefnir á frekari útrás.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2007 | 21:29
Stórtækir ameríkanar
Ég veit til þess að það eru notuð stór vinnutæki uppi á Kárahnjúkum, en er einhver svona trukkur þar??
eða er þetta bara dæmi um hve stórtækir ameríkanar eru?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.10.2007 | 21:16
Ódýr merkjavara á netinu
Já það eru til staðir sem maður getur keypt merkjavöru í - svona fyrir þá sem vilja.
Hér er t.d ein verslun á netinu Mainline Menswear .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2007 | 13:32
4 rútur lagðar af stað í haustferð Varðar
Það er alveg með ólíkindum hvað hægt er að gera með nýjustu tækni frá Símanum. Þessa stundina bloggar maður bara þegar maður er á leiðinni út úr bænum, er hægt að hafa þetta betra?
Nú erum við lögð af stað í haustferð Varðar. Þátttakana er stórglæsilegt því við erum í með góða rútulest, 4 rútur frá GJ. Það er óhætt að segja að veðuröflin séu flokknum hliðholl miðað við þá veðurblíðu sem er í dag, það er nánast að maður verði bara orðlaus yfir því að það skuli ekki rigna í dag eins og undanfarnar vikur.
Förinni að þessu sinni er heitið í Reykholt í Borgarfirði, gamla skólann minn, þar sem sr. Geir Waage tekur mun taka á móti okkur og fara yfir sögu staðarins. Þegar við verðum búin að skoða Reykholt verður komið við í Andakílsárvirkjun og hún skoðuð. Geir Haarde, Vilhjálmur borgarstjóri, Marta Guðjónsdóttir formaður Varaðar, Dögg Pálsdóttir alþingismaður og Emil í stjórn sjálfstæðismanna í Grafarvogi eru leiðsögumenn ferðarinnar og maður er svo sannarlega ekki svikinn af því að fá einhvern fróðleik frá þeim.
Sem sagt stórglæsilegur dagur í góðra vina hóp.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.10.2007 | 09:34
Áríðandi yfirlýsing
Það er enginn maður með mönnum nema senda frá sér yfirlýsingu svo hér kemur ein frá mér.
Að gefnu tilefni vil ég undirritaður, Óttarr Guðlaugsson á Mogga blogginu, taka fram að hann er ekki á nokkurn hátt tengdur tónlistamanninum Óttari Proppe og tónlistamaðurinn og tónlist hans er mér algerlega óviðkomandi.
Virðingarfyllst, Óttarr Guðlaugsson."
Yfirlýsing frá Ragnari Axelssyni ljósmyndara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- 19.8.2011 Þetta er var ekki okkur að kenna!
- 7.8.2011 Munu flugmálayfirvöld ekki gera ástandsskoðun á vélum Iceland...
- 5.8.2011 Sagan endurtekur sig... þetta eru ekki við heldur þeir!
- 5.8.2011 Er Iceland Express þjónustufyrirtæki?
- 11.3.2010 Kristján Þór - Styrkir sig með hverjum deginum og þorir að se...
Eldri færslur
- Ágúst 2011
- Mars 2010
- September 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Fjölmiðlar
Tenglar á þá fjölmiðla sem ég les, þekki eða bara veit af!
- MissB
- SSB - Sjónvarpsstöð Sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti Stútfullur fróðleiksbrunnur
- Blaðið Það er bara þarna
- Deiglan Alveg ómissandi lesning
- Eyjafréttir Ekki spyrja mig afhverju !
- Þórshafnarfréttir Set þetta inn bara fyrir Rúnar
- Austurglugginn Allt gott kemur að austan
- Vísir Keyptar fréttir....? Gæti verið, hver veit
- Morgunblaðið...Málgagn þjóðarinnar Það eina sem þarf !
Skemmtilegir tenglar
Hér mun ég setja áhugaverða tengla sem gætu komið sér vel svona til þess að slóra eða stytta daginn.
- Handverkskona ársins 2007 -Miss B Besta handverkskona landsins og svei mér þá ef víða væri leitað.
- Hafsteinn - bloggar Heimsborgari á íslenskan mælikvarða, ferðast um landið jafn oft og reykvíkingar fara niður Laugarveginn
- Viltu vera í sambandi Ekkert vodafone...aðeins það besta Síminn
- Eru ekki allir tryggðir Þar sem tryggingar snúast um fólk!
- Reykjavík Nauðsynlegt til að vita hvað er að gerast í borginni
- Sjálfstæðisflokkurinn Máttastólpi íslenskt samfélagsins
- Jólahúsið Það styttist hratt í jólin.
Bloggvinir
- Birna M
- Dögg Pálsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Lee
- Eiður Ragnarsson
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Vilberg Tryggvason
- Púkinn
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Grazyna María Okuniewska
- gudni.is
- Gunnar Björnsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Haraldsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiðar Már Guðlaugsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Inga Lára Helgadóttir
- Jórunn Sigurbergsdóttir
- Kári Sölmundarson
- Grafarholtssókn
- Kristbjörg Sigurðardóttir
- Lady Elín
- Guðjón Baldursson
- Alfreð Símonarson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- viddi
- Ólafur fannberg
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Vilhjálmsson
- Óþekki embættismaðurinn
- Reynir Jóhannesson
- Rýnir
- Sæþór Helgi Jensson
- Sjálfstæðissinnar
- Sigríður Jósefsdóttir
- Halldór Sigurðsson
- Þorsteinn Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefanía Sigurðardóttir
- Sveinn Hjörtur
- Sveinn Tryggvason
- Þóra Sigurðardóttir
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- TómasHa
- Þorsteinn Siglaugsson
- Vefritid
- Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Birgir R.
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Carl Jóhann Granz
- Gunnar Gunnarsson
- Kristján Guðmundsson
- Marta Guðjónsdóttir
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Theodór Bender
2 dagar til jóla
Af mbl.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar