Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Gáta dagsins - Fimmtudagur

Gáturnar halda áfram.  Nú er komið að fimmtudagsgátunni.

Hvar finnur þú vegi án bíla, skóg án trjáa og borgir án húsa?


Gáta dagsins - Miðvikudagur

Jæja gott fólk, hér kemur gáta dagsins

 Tvo fætur hef ég, en aðeins þegar ég hvíli mig snerta þeir grund.   Hver er ég??


Það hefði ekki verið amarlegt að hafa svona á skrifstofunni í dag

Í þessum brjálæðislega hita sem var í vinnunni í dag þá hefði verið frábært að hafa einn svona kælipott á staðnum, hefðu verið fínt að skella sér smá í pottinn á milli funda....

zPMIlVB5Ed

Femínismi er fyrir kellingar

feminismi2_2_png

Fyrir þá sem hafa áhuga á þessum femínista bolum þá eru þeir til sölu hér

 

 


Spennandi tímar og löngu tímabærir

Já þetta eru spennandi tímar sem framundan eru á þessu nýja svæði og í fyrsta skiptu mun oryggieinkafyrirtæki sjá um löggæsluna í íbúðahverfi á Íslandi og reyndar mjög sérstakt að þetta skyldi ekki vera löngu byrjað.  Við getum séð víða um heim hverfalöggæslu þar sem götur og jafnvel heilu hverfin eru lokuð fyrir almennri umferð.  Ég sé til dæmis fyrir mér að þetta hefði getað gengið fyrir Grafarholtið í heild og spurning af hverju ekki var leitað tilboða hjá Öryggismiðstöðinni eða Securitas. 

securitasEn eins og í öllu öðru þarf að stiga varlega til jarðar en ég er þess fullviss að einkaaðilar geta vel rekið hverfagæslu jafn vel ef ekki betur en lögreglan og þá gæti lögreglan hugsanlega sinnt öðrum og mikilvægari málum betur.

Til þess að taka af allan misskilning þá er ég ekki hlynntur því að einkafyrirtæki fái jafn mikil völd eins og lögreglan hefur þegar kemur að frelsis sviptingum, hlerunum eða öðru slíku.

 


mbl.is Öryggiskerfi í öll heimili við Urriðaholt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gáta dagsins - þriðjudagur

Hver eru þau fjögur mannanöfn sem þú sérð út um gluggan ??


Gáta dagsins

Hér kemur gáta dagsins,

Smiður smíðar hlut,

sá sem kaupir hann notar hann ekki,

sá sem notar hann veit ekki af því..

Hver er hluturinn ???


VARÚÐ - Vesturbæjarperri á ferðinni !

Maður veit eiginlega ekki hvort maður eigi að hlægja sig máttlausan eða gráta úr sér augun þegar maður les þessa fréttá visir.is - Nú er lögreglan alveg örugglega að stoppa alla sem eru með derhúfur eða í jakka sem er rauður og blár að lit til þess að kanna hvort ekki sé um vesturbæjarperrann að ræða.  Hún vill allavega tala við hann ef hann er að stunda ósiðlega hegðun á almanna færi þ.e fróa sér eins og stendur í fréttinni.  Mér er eiginlega alveg sama hvort viðkomandi er með derhúfu, lopahúfu, buff eða húfulaus ef hann er að stunda þessa iðju sína á almannafæri þá klárlega þarf lögreglan að eiga við hann orð !

Frétt tekinn af VISIR.is

Vísir, 12. ágú. 2007 10:13

Perri á reiðhjóli

Ef einhver sér mann milli þrítugs og fertugs á reiðhjóli, með derhúfu og í bláum og rauðum jakka, þá vill lögreglan gjarnan hafa tal af honum. Ekki síst ef hann er að fróa sér á hjólinu. Þar er líklega kominn sá sem þrjár ungar stúlkur gengu framá á Sólvallagötu um klukkan hálf sjö í morgun. Þeim brá nokkuð í brún við að sjá þennan másandi mann. Svona lagað er náttúrlega bannað á almannafæri.


Ég hef eignast nýjan vin

Þóra Sigurðardóttir
 

Ég hef eignast nýjan bloggvin, hún heitir Þóra Sigurðardóttir.  Það sem hún segir um sjálfan sig á bloggsíðunni sinni er eftirfarandi

"Bara djöf... óþolinmóð er alltaf að týna því sem ég skrifa en.. þetta er allt að koma"

Þóra mín þetta er bara flott - þetta kemur allt kemur allt með kaldavatninu...

Þið getið skoðað bloggsíðuna hennar Þóru með því að smella HÉR


Tillaga til borgaryfirvalda

Fyrst af öllu vil ég óska samkynhneigðu fólki til hamingju með daginn. 

Ég held svei mér þá að ég hafi aldrei tekið þátt í skemmtilegri skrúðgöngu, þvílík stemning.  Í göngunni var fólk klætt í flotta búninga (misflotta þó :-), litir alsráðandi og gangan gekk niður laugarveginn í takt við dúndrandi tónlist.  Svei mér þá ef 17 júní gangan roðni bara ekki í samanburðinum við þessa - reyndar er 17 júní gangan alveg óstjórnlega leiðinleg og sterilerseruð og því laus við alla stemningu.  Ég held að borgaryfirvöld eigi að hugsa um það vel og vandlega að óska eftir aðstoð skipuleggjenda GayPride í því að gera 17 júní að skemmtilegri þjóðhátíðardegi með alvöru skrúðgöngu, ég er viss um að þau fara létt með það.


mbl.is Tugir þúsunda taka þátt í Hinsegin dögum í miðborg Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband