Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Áríðandi yfirlýsing

Það er enginn maður með mönnum nema senda frá sér yfirlýsingu svo hér kemur ein frá mér.

„Að gefnu tilefni vil ég undirritaður, Óttarr Guðlaugsson á Mogga blogginu, taka fram að hann er ekki á nokkurn hátt tengdur tónlistamanninum Óttari Proppe og tónlistamaðurinn og tónlist hans er mér algerlega óviðkomandi.

Virðingarfyllst, Óttarr Guðlaugsson."


mbl.is Yfirlýsing frá Ragnari Axelssyni ljósmyndara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá vitum við það

Mennt er frelsun. Haltu áfram að lesa og ræða það sem þú lærir, þannig síast þekkingin inn. Hugsanir þínar hafa vængi sem flytja þær hærra og hærra.

Þetta er stjörnuspá hrútsins í dag!


Stórskemmtilegur sand arkitektúr

Ég rakst á þessar myndir af sand arkitektúr á netinu núna í kvöld, alveg ótrúlegt hvað fólk getur gert flott listaverk á ströndinni.  Þvílík nákvæmni og þolinmæði ég er nokkuð viss að ég hefði ekki þolinmæði til þess að gera þetta eða kannski vantar manni bara hæfileikan Smile

sandur001  sandur002 

sandur003

sandur004

sandur005


Stórtækar breytingar á limalind nei ég meina Smáralind í bígerð

Ég er bara með eina spurningu

" Hvað skiptir þetta máli" þetta eru byggingar, ég er þess fullviss að arkitektinn af þessum byggingum spáði jafn mikið í að þessar byggingar myndi þetta tákn eins og arkitektar Smáralindar áttuðu sig ekkert á því að húsið liti út eins og limur....  En til hvers að eyða 600.000 bandaríkjadölum eða tæpum 40 milljónum ísl. kr. í að laga þetta, mér er bara spurn??

Já, þeir eru merkilegir þessir arkitektar Wink


mbl.is Google Earth afhjúpar risa-hakakross
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtileg nýbreytni og frábær auglýsing

 Nýju leigubílaskiltin munu loga í tvo mánuði á ári næstu fimm árin.

 

Hreint frábært framtak og skemmtileg nýbreytni hjá Hreyfli að skipta um kúplana á taxa ljósunum.  350 bleik taxa ljós ættu að vekja ekki bara konur heldur karla líka að fara í krabbameinsskoðun.


mbl.is Leigubílar skipta út gula litnum fyrir bleikan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þó fyrr hefði verið

Maður segir nú ekki meir!  Ég segi þó - að batnandi mönnum er best að lifa og loksins er lögreglan farinn að skipta sér af hraðakstri gulu hættunnar sem streyma hér um götur höfuðborgarsvæðisins.  Það er allt of algeng sjón að sjá hraðakstur þessara vagna og oft á tíðum ansi vel yfir hámarkshraða.

Veit ég vel að margar leiðir eru erfiðar hvað varðar tímatöflunar en þá eiga menn að segja "hingað og ekki lengra" enda er það alltaf vagnstjórinn sem ber ábyrgðina ef eitthvað kemur fyrir!!


mbl.is Strætisvagn stöðvaður á of miklum hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Air Force One - Óli okkar verður nú að ferðast með smá style !!!

 
 

Það hafa allir þjóðhöfðingjar sínar þotur nema Óli okkar, þetta er ekki sanngjarnt!  Hvers á hann að gjalda þegar hann hittir erlenda stórhöfðingja hann Óli okkar?  Varla getur hann sagt frá því opinberlega að hann hafi komið með áætlunarflugi og það IcelandAir allways on time! eða lággjaldaflugfélaginu IcelandExpress, hann Óli okkar veit ekki einu sinni að það flugfélag fljúgi til og frá Íslandi því þeir bjóða ekki uppá betri sæti, nýjustu tímaritin eða drykk fyrir flugtak og síður en svo teppi og kodda!  Svo eru flugfreyjurnar þeirra í grænu uniformi (ekki alveg að gera sig)!

Auðvitað getur Óli okkar ekki ferðast með hinum venjulega Íslending, það er ekki eins og hann eigi samleið með þeim, ég meina "come on" og svo kostar það ekki nógu mikið og hann á svo sannarlega nóg eftir af risnureikningi sínum þrátt fyrir að vera búinn að láta embættið borga ýmislegt á ferðalögum sínum sem eru að sjálfssögðu nauðsynleg þar sem hann er svona semí þjóðhöfðingi. 

Ég mæli eiginlega með því að forsetaembættið kaupi eina vél fyrir Óla okkar svo hann geti ferðast frjáls og óháður, laus við að gefa upp hver fljúgi með hann hvert sem klárlega veitir honum mikla öryggiskennd og síðast en ekki síst þá væri hann kominn í sama hóp og hinir þjóðhöfðingjarnir.

Það verður spennandi að sjá hverjir verða í næsta úrdrætti á fálkaorðunni, skyldi Óli okkar greiða fyrir flugfarið með því að veita styrkþegum sínum orðu þ.e þeim Jóni Ásgeir og Magnúsi í Eimskip, ég segi nú bara minna má það varla vera!


Hver greiðir reikningin??

Fyrir flutningnum á skútinni alla leið frá Fáskrúðsfirði til Keflavíkur, leitina og frágang eftir leitina??

Það væri forvitnilegt að vita það, var ekki hægt að flytja skútuna í húsnæði annaðhvort fyrir austan eða í versta falli í flugskýlið á Akureyri?

En þrátt fyrir þessa einföldu spurningu mína þá vil ég nota tækifærið og lýsa yfir ánægju minni með þennan fíkniefnafund lögreglu, tollgæslu og annarra yfirvalda.


mbl.is Ekki fannst meira af fíkniefnum í skútunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tiger Woods, Heiðar Davíð, Steve Flesch, Mark Foster og Birgir Leifur varið ykkur því

MBL0154860 

Já nú er maður að komast í atvinnumennskuna í golfinu - ekki spurning, fór á hreint frábært námskeið í dag sem stóð í 5 klukkustundir hérna í garðinum heima hjá mér þ.e í Básum hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.  Það er því ljóst að Tiger Woods, Heiðar Davíð, Steve Flesch, Mark Foster og Birgir Leifur þurfa að fara vara sig því "I will be there" eftir nokkra áratugi Smile

Námskeiðið var á vegum ProGolf (www.progolf.is) sem býður uppá metnaðarfull og vel skipulögð námskeið fyrir byrjendur sem og lengra komna á öllum aldri.  Í hópnum í dag voru fjórar konur og tveir karlar, sumir höfðu aðeins snert kylfurnar en aðrir tóku plastið af þeim á staðnum!  Þarna vorum við og fengum leiðsögn frá sjálfum skólastjóra ProGolf skólans.  Greinilega vanur kylfingur þar á ferð sem kunni ákaflega vel til verka, þrátt fyrir að vera kenna mis þrjóskum byrjenda kylfingum þá tókst honum verkið ákaflega vel.  Ólafur Már kenndi okkur allt á milli himins og jarðar, hvernig við áttum að standa, sveifla og það mikilvægasta að gera holu í höggi.  Sem ég var reyndar svo heppinn að ná..... reyndar bara í púttinu en það hlítur að teljast með Smile  Eftir frábært fimm tíma námskeið sem leið eins og um eina klukkustund væri að ræða get ég óhikað mælt með námskeiðum á vegum ProGolf og ég hvet alla til þess að skoða heimasíðuna þeirra og námskeiða framboðið sem þeir hafa uppá að bjóða.

Nú er bara að pússa settið fyrir morgundaginn því stefnan er tekinn á að slá a.m.k. 300 kúlur á dag næstu vikuna - spurning hjá hvaða stofnun maður færi lögheimilið sitt Wink


Vöndurinn kominn á loft! og hreinsun hafinn í heilbrigðiskerfinu - þó fyrr hefði verið!!!

Það var mikið að kominn er heilbrigðisráðherra sem þorir að taka á málunum.  Núverandi ráðherra Guðlaugur Þór mun án efa nota sópinn og hreinsa töluvert í burtu og ekki bara undir mottur heldur alla leið út.

Eitt af hans fyrstu verkum var að sópa Alfreð "fv. litla borgarstjóra Reykjavíkurborgar", eins og hann var stundum kallaður, úr ríkisjötunni, þó fyrr hefði verið.  Alfreð hefur áorkað meira en margur með framúrkeyrslum í framkvæmdum, sólundað okkar féi í hin ýmsu ævintýraverkefni s.s. Trjárækt á höfðanum, risarækjueldi, bygging Orkuveitunnar sem fór nokkuð duglega svo ekki sé nú meira sagt fram úr kostnaðaráætlunum og svo auðvitað að ógleymdu Línu.Net ævintýrinu sem enginn virðist vilja taka á.  Þessi ágæti maður hefði að sjálfssögðu átt að fá að taka pokann sinn um leið og hann hætti í borgarstjórn.  Spurningin er bara hve gott hann hefur haft það í byggingarnefnd Hátæknisjúkrahússins, en svar við þeirri spurningu fæst örugglega aldrei svarað!

En þetta er alls ekki eina verkefnið sem Guðlaugur tekur að sér, því hann er maður orða sinna og lætur verkin tala - Ég er þess fullviss að hagræðing í heilbrigðiskerfinu mun bæta til muna alla þjónustu í kerfinu, lyfjakostnaður mun lækka og valkostir landsmanna í þjónustu kerfisins fjölga öllum til gleði, ánægju og sparnaðar.

Vöndurinn er kominn á loft og vonandi mun hann hreinsa rykið vel út og það sem fyrst.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband