Leita í fréttum mbl.is

*Skál* * Skál* *Skál*

Það er alveg óhætt að þessi kann að skemmta sér og veit hvað hann syngur, en hvað kostuðu kók flöskurnar?
mbl.is Keypti drykki á barnum fyrir 13 milljónir kr.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málum þær gular

Hvað varð um þá skoðun að hraðaeftirlit ætti að vera forvarnargefandi en ekki til þess eins að refsa?

Ég vil einfaldlega sjá fleiri lögreglubíla á ferðinni um þjóðvegi landsins.  Ég hef ferðast ansi mikið undanfarin ár og það er hrein undantekning ef ég hef séð lögreglubíl á ferðinni.  Man reyndar í fljótu bragði eftir því þegar ég var stöðvaður á Stöðvarfirði  um klukkan 01 að nóttu um miðjan vetur og lögregluþjónninn sagði við mig grafalvarlegur - veistu ekki að það er stranglega bannað að aka með þokuljós í þéttbýli Smile 

En fyrst að svona er komið og ekki er væntanleg fjölgun lögreglubíla á ferðinni, þá eiga þessar myndavélar að vera málaðar í mjög áberandi litum svo ekki verði um villst að þarna séu hraðamyndavélar ! 

 


mbl.is Hraðamyndavélar í gagnið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kæru landsmenn

Við getum nú öll hallað okkur aftur þegar kvölda tekur, lokað augunum og sofnað áhyggjulaus, sofið vært og rótt án þess að fá martraðir, kvíðaköst eða vaknað í svitakófi þar sem Lúkas er kominn heim.  Eins og við lásum öll þá var það mjög mikilvægt að hann næðist heim fyrir veturinn að sögn atferlisfræðings sem Fréttablaðið ræddi við um daginn. 

Ég bara spyr- miðað við allan þann fjölmiðlatíma og pláss var ekki bara verið að ræða um hund?  Þvílíkt og annað eins vesen útaf einum hundi - þetta er fáránlegt!  Svona til þess að taka af allan vafa þá hef ég sofið áhyggjulaus, rótt og vært án þess að fá martraðir, kvíðaköst eða vaknað í svitakófi allavega útaf hundinum.  Það kannski gerist frekar við tilhugsunina um allar milljónirnar sem Ingibjörg Sólrún er að spreða um allar jarðir svona í kynningaskyni að hún sé kominn með hendurnar í ríkisjötuna !


mbl.is Lúkas kominn heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þið hljótið að vera grínast ???

Eftir allt sem á undan er gengið er þá hundsgreyið lifandi.  Var þetta ekki áræðanlegt vitni?  Hvað með allan þann drama sem átti sér stað í kringum atburðinn ég hef allavega aldrei áður vitað til þess að það séu haldnar tvær minningarathafnir vegna hunds og því síður þegar hann er lifandi !


mbl.is Hundurinn Lúkas á lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bella símabær

Þess má getið að á meðan hann ók þessum ofsaakstri söng hann gamla slagarann

"Hún Bella, Bella,Bella, Bella símamær er alltaf kær"  tralla lalala

Þetta er nú ein ömurlegasta afsökun síðari tíma sem þessi maður gaf.


mbl.is Ofsaakstur í Reykjavík um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað stendur í veginum?

Mér er bara spurn, hvað í ósköpunum stendur í vegi fyrir því að það sé leyfilegt að selja lyf sem nú þegar eru í sölu bæði hérlendis og erlendis t.d. Svíþjóð þar sem tilraunir íslendings hafa leitt til þess að lyfjakostnaður þeirra sem þurfa að kaupa sér lyf lækki.  Miðað við þau verð sem maður hefur séð í fjölmiðlum þá getur þarna verið á ferðinni veruleg kjarabót fyrir þá sem þurfa heilsu sinnar vegna að kaupa lyf að staðaldri á okurverði í þeirri fákeppni sem virðist einkennast lyfjamarkaðinn á Íslandi.  Maður hlýtur að spyrja sig að því hvaða hagspuni eða hverja Lyfjastofnunin er að vernda?  Það er ekki eins og það sé verið að selja ólögleg lyf. 

Það má alveg líka spyrja sig að því hvort það gæti ekki verið tækifæri fyrir fyrirtæki hér á landi sem vildu setja upp lyfjaverslun á netinu með lágmarks yfirbyggingu og minni fókus á hina ýmsu vörur sem fást í apótekum nú í dag þetta er farið að minna frekar á snyrtivöruverslanir fremur en apótek líkt og bensínstöðvarnar eru farnar að minna einna helst á kjörbúðir fremur en bensínafgreiðslur.

Það er spurning hvort Kaupás fari kannski að selja lyf á netinu og bjóði svo viðskiptavinum sínum upp á að sækja annaðhvort lyfin eftir 24 tíma í næstu Krónuverslun eða fái lyfin send heim. 

Eitt verður þó athyglisvert að fylgjast með þ.e hvernig forstjóri Lyfjaverslunar ætlar sér að réttlæta þetta "bann" við sölu lyfja í netverslun !


mbl.is Vill leyfa póstverslun með lyf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það styttist óðum...... í jólin

jolasvbe
 

 

Var að taka eftir því að það eru ekki nema 165 dagar til jóla FootinMouth  Tíminn líður ekkert smá hratt - ég er bara ekki frá því að gamla fólkið hafi haft rétt fyrir sér þegar það sagði að eftir því sem maður eldist þeim mun hraðar líður tíminn....

 

 


Ekki seinna vænna

Er þetta ekki alveg með eindæmum vitlaust - bókin hefur selst í tug milljóna eintaka síðan hún var gefin út 1931 og núna árið 2007 á að banna hana!!!  Er þetta nú ekki full langt gengið og fáránlega mikil smámunasemi.

Ekki ætla ég að brenna Tinna bækurnar þrátt fyrir að einhver lögfræðingur í Englandi finnist hann ekki skemmtilegur !!!


mbl.is Tinni fjarlægður úr barnabókahillum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örmagna eftir erfiðan vinnudag og ekkert mál ég tek þetta !

YlSx6m4Czz

Rakst líka á þessa flottu mynd af lifandi starfsmanni á netinu í dag - veit um nokkra sem vinna álíka mikið í vinnunni sinni og þessi ágæti maður Wink

4nXSa52mrh
Maður getur vel ímyndað sér hvað hann kallar til félaga sinni "ekkert mál ég hef þetta" 

Ef þú blandar saman íslensku og dönsku færðu þá út írsku ?

Mér er bara spurn.  Þessir írsku dagar á Akranesi voru allt annað en Írskir dagar - það var hreinlega brandari að kalla þessa daga írska !  Það er hreinlega hægt að líka þessu við ef þú ferð út í búð og kaupir þér Pepsí og þú færð afhent Pepsí flösku sem inniheldur Maltöl - hvort fékkstu þá Pepsí eða Malt??

Að kalla þessa svoköllu írska daga írska er algjörlega út í hött, þarna vöru íslenskir- og danskir tónlistarmenn já og svo má auðvitað ekki gleyma skoska rauðhærða fólkinu.

Ég hefði getað bent bæjarstjóranum á úrvals írska tónlistamenn og hefðir til þess að gera þessa daga írska en ekki dansk-íslenska daga.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband