25.7.2007 | 11:10
Mamman gekk fram hjá herbergi dóttur sinnar
Mamman gekk fram hjá herbergi dóttur sinnar og varð nokkuð undrandi að sjá að það var búið að búa um rúmið og taka vel til í öllu herberginu. Hún sá að það var umslag á miðju rúminu og á því stóð:
TIL MÖMMU
Mjög áhyggjufull opnaði hún umslagið og las skjálfhent bréfið sem í því var.
Elsku mamma. Það hryggir mig nokkuð að þurfa að segja þér með bréfi þessu að ég er hlaupin að heiman. Ég geri þetta svona til að koma í veg fyrir að þið pabbi reiðist mér. Ég hef að undanförnu fundið sterkar tilfinningar til Ahmeds og hann er svo yndislegur þrátt fyrir öll götin, húðflúrin, skeggið og mótorhjólagallana sína. En það er ekki bara það mamma mín að ég ber svona sterkar tilfinningar til hans því að ég er ólétt og Ahmed segir mér að hann sé svo glaður með það.
Hann er þegar búinn að kaupa hjólhýsi fyrir okkur að búa í og hann er búinn að safna helling af eldivið til að halda á okkur hita í allan vetur. Hann er búinn að segja mér að hann langi til að eignast með mér fullt af börnum og ég er svo nnilega sammála honum með það. Ahmed hefur kennt mér það að marijuana gerir engum illt í raun og veru og ætlar hann að rækta nóg af því fyrir okkur annig að við munum eiga nóg af því afgangs til að skipta á því og kókaíni og E-töflum handa okkur báðum. En ég vona líka að vísindamenn finni fjótlega lækningu á AIDS svo að Ahmed mínum batni, hann á það svo skilið!! En ég bið þig að hafa ekki áhyggjur mamma mín því að ég er nú orðin 15 ára og kann alveg að sjá um mig sjálfa. Þar að auki er Ahmed orðinn orðinn þrítugur þannig að hann veit vel hvað hann er að gera. Einhvern daginn ætla ég svo að koma í heimsókn svo að þú getir hitt öll barnabörnin þín.
Þín dóttir Guðrún
PS: Mamma, ekkert að ofansögðu er satt. Ég er í heimsókn hjá Siggu í næsta húsi. Mig langaði bara að láta þig vita að það er margt verra í heiminum en einkunnaspjaldið mitt sem er í efstu skrifborðskúffunni. Ég elska þig. Láttu mig vita þegar það er óhætt fyrir mig að koma heim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.7.2007 | 08:47
*Skál* * Skál* *Skál*
![]() |
Keypti drykki á barnum fyrir 13 milljónir kr. |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.7.2007 | 08:46
Málum þær gular
Hvað varð um þá skoðun að hraðaeftirlit ætti að vera forvarnargefandi en ekki til þess eins að refsa?
Ég vil einfaldlega sjá fleiri lögreglubíla á ferðinni um þjóðvegi landsins. Ég hef ferðast ansi mikið undanfarin ár og það er hrein undantekning ef ég hef séð lögreglubíl á ferðinni. Man reyndar í fljótu bragði eftir því þegar ég var stöðvaður á Stöðvarfirði um klukkan 01 að nóttu um miðjan vetur og lögregluþjónninn sagði við mig grafalvarlegur - veistu ekki að það er stranglega bannað að aka með þokuljós í þéttbýli
En fyrst að svona er komið og ekki er væntanleg fjölgun lögreglubíla á ferðinni, þá eiga þessar myndavélar að vera málaðar í mjög áberandi litum svo ekki verði um villst að þarna séu hraðamyndavélar !
![]() |
Hraðamyndavélar í gagnið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.7.2007 | 23:22
Kæru landsmenn
Við getum nú öll hallað okkur aftur þegar kvölda tekur, lokað augunum og sofnað áhyggjulaus, sofið vært og rótt án þess að fá martraðir, kvíðaköst eða vaknað í svitakófi þar sem Lúkas er kominn heim. Eins og við lásum öll þá var það mjög mikilvægt að hann næðist heim fyrir veturinn að sögn atferlisfræðings sem Fréttablaðið ræddi við um daginn.
Ég bara spyr- miðað við allan þann fjölmiðlatíma og pláss var ekki bara verið að ræða um hund? Þvílíkt og annað eins vesen útaf einum hundi - þetta er fáránlegt! Svona til þess að taka af allan vafa þá hef ég sofið áhyggjulaus, rótt og vært án þess að fá martraðir, kvíðaköst eða vaknað í svitakófi allavega útaf hundinum. Það kannski gerist frekar við tilhugsunina um allar milljónirnar sem Ingibjörg Sólrún er að spreða um allar jarðir svona í kynningaskyni að hún sé kominn með hendurnar í ríkisjötuna !
![]() |
Lúkas kominn heim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.7.2007 | 21:28
Þið hljótið að vera grínast ???
Eftir allt sem á undan er gengið er þá hundsgreyið lifandi. Var þetta ekki áræðanlegt vitni? Hvað með allan þann drama sem átti sér stað í kringum atburðinn ég hef allavega aldrei áður vitað til þess að það séu haldnar tvær minningarathafnir vegna hunds og því síður þegar hann er lifandi !
![]() |
Hundurinn Lúkas á lífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.7.2007 | 17:25
Bella símabær
Þess má getið að á meðan hann ók þessum ofsaakstri söng hann gamla slagarann
"Hún Bella, Bella,Bella, Bella símamær er alltaf kær" tralla lalala
Þetta er nú ein ömurlegasta afsökun síðari tíma sem þessi maður gaf.
![]() |
Ofsaakstur í Reykjavík um helgina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2007 | 08:13
Hvað stendur í veginum?
Mér er bara spurn, hvað í ósköpunum stendur í vegi fyrir því að það sé leyfilegt að selja lyf sem nú þegar eru í sölu bæði hérlendis og erlendis t.d. Svíþjóð þar sem tilraunir íslendings hafa leitt til þess að lyfjakostnaður þeirra sem þurfa að kaupa sér lyf lækki. Miðað við þau verð sem maður hefur séð í fjölmiðlum þá getur þarna verið á ferðinni veruleg kjarabót fyrir þá sem þurfa heilsu sinnar vegna að kaupa lyf að staðaldri á okurverði í þeirri fákeppni sem virðist einkennast lyfjamarkaðinn á Íslandi. Maður hlýtur að spyrja sig að því hvaða hagspuni eða hverja Lyfjastofnunin er að vernda? Það er ekki eins og það sé verið að selja ólögleg lyf.
Það má alveg líka spyrja sig að því hvort það gæti ekki verið tækifæri fyrir fyrirtæki hér á landi sem vildu setja upp lyfjaverslun á netinu með lágmarks yfirbyggingu og minni fókus á hina ýmsu vörur sem fást í apótekum nú í dag þetta er farið að minna frekar á snyrtivöruverslanir fremur en apótek líkt og bensínstöðvarnar eru farnar að minna einna helst á kjörbúðir fremur en bensínafgreiðslur.
Það er spurning hvort Kaupás fari kannski að selja lyf á netinu og bjóði svo viðskiptavinum sínum upp á að sækja annaðhvort lyfin eftir 24 tíma í næstu Krónuverslun eða fái lyfin send heim.
Eitt verður þó athyglisvert að fylgjast með þ.e hvernig forstjóri Lyfjaverslunar ætlar sér að réttlæta þetta "bann" við sölu lyfja í netverslun !
![]() |
Vill leyfa póstverslun með lyf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.7.2007 | 22:53
Það styttist óðum...... í jólin
Var að taka eftir því að það eru ekki nema 165 dagar til jóla Tíminn líður ekkert smá hratt - ég er bara ekki frá því að gamla fólkið hafi haft rétt fyrir sér þegar það sagði að eftir því sem maður eldist þeim mun hraðar líður tíminn....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.7.2007 | 22:24
Ekki seinna vænna
Er þetta ekki alveg með eindæmum vitlaust - bókin hefur selst í tug milljóna eintaka síðan hún var gefin út 1931 og núna árið 2007 á að banna hana!!! Er þetta nú ekki full langt gengið og fáránlega mikil smámunasemi.
Ekki ætla ég að brenna Tinna bækurnar þrátt fyrir að einhver lögfræðingur í Englandi finnist hann ekki skemmtilegur !!!
![]() |
Tinni fjarlægður úr barnabókahillum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2007 | 23:24
Örmagna eftir erfiðan vinnudag og ekkert mál ég tek þetta !
Rakst líka á þessa flottu mynd af lifandi starfsmanni á netinu í dag - veit um nokkra sem vinna álíka mikið í vinnunni sinni og þessi ágæti maður
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýjustu færslur
- 19.8.2011 Þetta er var ekki okkur að kenna!
- 7.8.2011 Munu flugmálayfirvöld ekki gera ástandsskoðun á vélum Iceland...
- 5.8.2011 Sagan endurtekur sig... þetta eru ekki við heldur þeir!
- 5.8.2011 Er Iceland Express þjónustufyrirtæki?
- 11.3.2010 Kristján Þór - Styrkir sig með hverjum deginum og þorir að se...
Eldri færslur
- Ágúst 2011
- Mars 2010
- September 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Fjölmiðlar
Tenglar á þá fjölmiðla sem ég les, þekki eða bara veit af!
- MissB
- SSB - Sjónvarpsstöð Sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti Stútfullur fróðleiksbrunnur
- Blaðið Það er bara þarna
- Deiglan Alveg ómissandi lesning
- Eyjafréttir Ekki spyrja mig afhverju !
- Þórshafnarfréttir Set þetta inn bara fyrir Rúnar
- Austurglugginn Allt gott kemur að austan
- Vísir Keyptar fréttir....? Gæti verið, hver veit
- Morgunblaðið...Málgagn þjóðarinnar Það eina sem þarf !
Skemmtilegir tenglar
Hér mun ég setja áhugaverða tengla sem gætu komið sér vel svona til þess að slóra eða stytta daginn.
- Handverkskona ársins 2007 -Miss B Besta handverkskona landsins og svei mér þá ef víða væri leitað.
- Hafsteinn - bloggar Heimsborgari á íslenskan mælikvarða, ferðast um landið jafn oft og reykvíkingar fara niður Laugarveginn
- Viltu vera í sambandi Ekkert vodafone...aðeins það besta Síminn
- Eru ekki allir tryggðir Þar sem tryggingar snúast um fólk!
- Reykjavík Nauðsynlegt til að vita hvað er að gerast í borginni
- Sjálfstæðisflokkurinn Máttastólpi íslenskt samfélagsins
- Jólahúsið Það styttist hratt í jólin.
Bloggvinir
-
Birna M
-
Dögg Pálsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Egill Rúnar Sigurðsson
-
Einar Lee
-
Eiður Ragnarsson
-
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
-
Vilberg Tryggvason
-
Púkinn
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
gudni.is
-
Gunnar Björnsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Haraldsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Heiðar Már Guðlaugsson
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Jórunn Sigurbergsdóttir
-
Kári Sölmundarson
-
Grafarholtssókn
-
Kristbjörg Sigurðardóttir
-
Lady Elín
-
Guðjón Baldursson
-
Alfreð Símonarson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
viddi
-
Ólafur fannberg
-
Pálína Erna Ásgeirsdóttir
-
Páll Vilhjálmsson
-
Óþekki embættismaðurinn
-
Reynir Jóhannesson
-
Rýnir
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sjálfstæðissinnar
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Halldór Sigurðsson
-
Þorsteinn Gunnarsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefanía Sigurðardóttir
-
Sveinn Hjörtur
-
Sveinn Tryggvason
-
Þóra Sigurðardóttir
-
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
-
TómasHa
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Vefritid
-
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
-
Vilborg G. Hansen
-
Birgir R.
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnar Gunnarsson
-
Kristján Guðmundsson
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Theodór Bender
168 dagar til jóla
Af mbl.is
Erlent
- Tuttugu látnir eftir loftárásir Ísraelshers á Gasa
- Lavrov til Norður-Kóreu um helgina
- Umfangsmesta loftárásin frá upphafi stríðsins
- Yfir 160 manns enn saknað í Texas
- Sogaðist inn í hreyfil farþegaþotu og lést
- Stóð á kassa í þrjá tíma til að lifa af
- Segja Epstein-listann ekki til
- Sakfelldir fyrir íkveikju að undirlagi Wagner-liða
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar