Leita í fréttum mbl.is

4 borgarstjórar í Reykjavík - dýrt spaug

Ég get nú ekki leynt vonbrigðum mínum með stöðu mála í borginni í dag.  Staðan er skelfileg fyrir borgarbúa höfuðborgarinnar.  Loksins þegar búið var að koma skikk á fjármálin borgarinnar þá stefnir allt í voða aftur.   

Það verður gott að búa í Reykjavík, þegar 4 borgarstjórar komast í stólinn á þriðjudaginn með tilheyrandi kostnaði.  Spurningin verður kannski fyrst og fremst sú, hver verður aðal borgarstjóri og verður Alfreð kallaður inn aftur sem "litli" borgarstjórinn ? 

Verður sama uppá teningnum þegar óskað verður eftir oddvita meirihluta úr boginni í Kastljós að þá neita allir að koma nema þau fái öll að koma, líkt og gerðist um daginn?

Það verður merkilegt að fylgjast með breytingunum á næstu dögum og vikum. 

Bæði leikskóla- og grunnskólakennarar fá fullkomna leiðréttingu sinna mála og hækka laun þeirra um 100% líkt og Vinstri grænir hafa ítrekað óskað eftir að gert sé.

Flugvöllurinn fer úr mýrinni og byggð verða hús á því svæði.

Einbýlishúsalóðir lækka um að lágmarki 5 milljónir líkt og Samfylkingin hefur lofað.

Það verður gjaldfrjálst að borða í grunnskólum borgarinnar að beiðni Vinstri Grænna.

það verður frítt í strætó fyrir alla eins og Vinstri grænir vilja.

Innfluttningur hefst aftur á Risarækjueldi á vegum OR.

Öll frístundaheimili borgarinnar verða mönnuð fyrir næstu helgi, biðlistar heyra brátt sögunni til.

Byggð verður brú í stað ganga yfir sundin, enda mun fallega að skreyta með jólaljósum brú en neðanjarðar líkt og Stefán Jón sagði.

Hætt verður við frekari áform um að byggja þjónustuíbúðir fyrir aldraða sérstaklega í ljós þess að þetta ágæta fólk byggði ekki 1 þjónustuíbúð á s.l. 12 árum!

Stórlega verður dregið úr þjónustu við einkabílinn og samgöngur í Reykjavík.

Við þennan lestur sjá allir að það verður frábært að búa í Reykjavík en spurningin er bara hver á að greiða brúsann....?


Það er hægt að sækja sér ýmsan fróðleik á netinu :-)

Fyrir þau okkar sem viljum vita staðreyndirnar þá getur oft verið gaman að vafra um netið í leit af staðreindunum.

Ég komst til dæmis að því núna að ég er ekki sá eini sem á afmæli 25 mars LoL

Því við erum alls 765 sem eigum afmæli þennan dag og það sem meira er þá erum við 8 sem erum jafn gömul og fæddumst á þessum merka degi árið 1975.  

Það má einnig til gamans segja frá því að 1 október s.l. vorum við orðin 312.851 nú og svo var VNV í sept. 276,7 

Þennan fróðleik ásamt ýmsum öðrum fróðleik er hægt að nálgast á heimasíðu Hagstofunnar


Gullkálfur til sölu

Er ekki spurning um að brjóta sparigrísina og fjárfesta í gullkálfinum?  Það verður spennandi að sjá hver kaupir, skyldi AO skila inn tilboði, þeir geta þá verið með sömu verðum og allir aðrir með góðri samvisku Wink  Eins getur verið fín hagræðing að sameina þessi fyrirtæki í eitt þá þarf ekki nema einn bíl til þess að halda samráðsfundina Wink

Vísir, 08. okt. 2007 16:39

Glitnir selur Skeljung fyrir Fons

mynd

Glitnir hefur tekið að sér að selja og sölutryggja olíufélagið Skeljung fyrir Uppsprettu, félag í eigu Fons.

Eftir því sem segir í tilkynningu frá félögunum er samkomulag þeirra gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun sem gerð verður á næstu vikum. Í framhaldinu ætlar Glitnir svo að ræða við áhugasama fjárfesta.

Skeljungur á að baki nærri 80 ára sögu en félagið rekur um 100 verslanir og þjónustustöðvar undir merkjum Shell um allt land. Auk þess rekur félagið Bensínorkuna á um 20 stöðum um allt land. Skeljungur keypti enn fremur rekstur Shell í Færeyjum fyrr á árinu og stefnir á frekari útrás.


Stórtækir ameríkanar

Ég veit til þess að það eru notuð stór vinnutæki uppi á Kárahnjúkum, en er einhver svona trukkur þar??

monster%20truck%20on%20trucks

eða er þetta bara dæmi um hve stórtækir ameríkanar eru?


Ódýr merkjavara á netinu

Já það eru til staðir sem maður getur keypt merkjavöru í - svona fyrir þá sem vilja.

Hér er t.d ein verslun á netinu Mainline Menswear .


4 rútur lagðar af stað í haustferð Varðar

Það er alveg með ólíkindum hvað hægt er að gera með nýjustu tækni frá Símanum.  Þessa stundina bloggar maður bara þegar maður er á leiðinni út úr bænum, er hægt að hafa þetta betra?

Nú erum við lögð af stað í haustferð Varðar.  Þátttakana er stórglæsilegt því við erum í með góða rútulest, 4 rútur frá GJ.  Það er óhætt að segja að veðuröflin séu flokknum hliðholl miðað við þá veðurblíðu sem er í dag, það er nánast að maður verði bara orðlaus yfir því að það skuli ekki rigna í dag eins og undanfarnar vikur. 

Förinni að þessu sinni er heitið í Reykholt í Borgarfirði, gamla skólann minn, þar sem sr. Geir Waage tekur mun taka á móti okkur og fara yfir sögu staðarins.  Þegar við verðum búin að skoða Reykholt verður komið við í Andakílsárvirkjun og hún skoðuð.  Geir Haarde, Vilhjálmur borgarstjóri, Marta Guðjónsdóttir formaður Varaðar, Dögg Pálsdóttir alþingismaður og Emil í stjórn sjálfstæðismanna í Grafarvogi eru leiðsögumenn ferðarinnar og maður er svo sannarlega ekki svikinn af því að fá einhvern fróðleik frá þeim.

Sem sagt stórglæsilegur dagur í góðra vina hóp.


Áríðandi yfirlýsing

Það er enginn maður með mönnum nema senda frá sér yfirlýsingu svo hér kemur ein frá mér.

„Að gefnu tilefni vil ég undirritaður, Óttarr Guðlaugsson á Mogga blogginu, taka fram að hann er ekki á nokkurn hátt tengdur tónlistamanninum Óttari Proppe og tónlistamaðurinn og tónlist hans er mér algerlega óviðkomandi.

Virðingarfyllst, Óttarr Guðlaugsson."


mbl.is Yfirlýsing frá Ragnari Axelssyni ljósmyndara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá vitum við það

Mennt er frelsun. Haltu áfram að lesa og ræða það sem þú lærir, þannig síast þekkingin inn. Hugsanir þínar hafa vængi sem flytja þær hærra og hærra.

Þetta er stjörnuspá hrútsins í dag!


Stórskemmtilegur sand arkitektúr

Ég rakst á þessar myndir af sand arkitektúr á netinu núna í kvöld, alveg ótrúlegt hvað fólk getur gert flott listaverk á ströndinni.  Þvílík nákvæmni og þolinmæði ég er nokkuð viss að ég hefði ekki þolinmæði til þess að gera þetta eða kannski vantar manni bara hæfileikan Smile

sandur001  sandur002 

sandur003

sandur004

sandur005


Stórtækar breytingar á limalind nei ég meina Smáralind í bígerð

Ég er bara með eina spurningu

" Hvað skiptir þetta máli" þetta eru byggingar, ég er þess fullviss að arkitektinn af þessum byggingum spáði jafn mikið í að þessar byggingar myndi þetta tákn eins og arkitektar Smáralindar áttuðu sig ekkert á því að húsið liti út eins og limur....  En til hvers að eyða 600.000 bandaríkjadölum eða tæpum 40 milljónum ísl. kr. í að laga þetta, mér er bara spurn??

Já, þeir eru merkilegir þessir arkitektar Wink


mbl.is Google Earth afhjúpar risa-hakakross
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband