Leita í fréttum mbl.is

Fréttastjóri Stöðvar 2 ber að segja Láru Ómarsdóttur tafarlaust upp !

Eftir að hafa hlustað á upptökur gærdagsins þar sem Lára Ómarsdóttir fréttamaður Stöðvar 2 stakk upp á því að fá einhverja til þess að veitast að lögreglu til þess eins að gera fréttina meira krassandi af mótmælunum við Rauðarvatn.  Er ég hreinlega hneykslaður á vinnubrögðum fréttastofunnar, ekki má hún við fleiri áföllum vegna óvandaðra vinnubragða fréttamanna sinna síðustu ár.  Nú hefur Lára sent frá sér yfirlýsingu sem má sjá hér.  Sérstaka athygli mína vekur orð Láru sem segir "Vegna ummæla minna sem fyrir mistök heyrðust í beinni útsendingu á vísi.is í gær", voru það þá einungis mistök að þessi ummæli hafi heyrst en ekki að þau hafi verið sögð?

Eftir að hafa lesið yfirlýsingu Láru er ég kominn á þá skoðun að fréttastjóra Stöðvar 2 ber að víkja fréttamanninum úr starfi tarfarlaust ef hann ætlar sér að halda úti traustri og trúverðugri fréttastofu. 

Sama hvort þetta var sagt í gríni eða alvöru þá komust þessi skilaboð til skila og hópur ungmenna ákvað að kasta eggjum í lögregluna og þar að leiðandi hafði fréttamaðurinn afgerandi áhrif á gang mála, sem hlýtur að teljast óeðlileg aðkoma að hálfu fréttamannsins að fréttinni.

Bætt við færsluna

Eftir símtal frá Láru Ómarsdóttur þá vil ég leiðrétta þann misskilning sem virðist vera um atburðarásina við Rauðarvatn í gær.  Sagði Lára mér aðeins frá þeirri atburðarás sem í gangi var og að eggjakastið hafi verið hafið þegar ummæli hennar fóru í loftið. 

Þessi vitneskja gefur nýja hlið á málinu og eftir að hafa heyrt þetta þá tel ég að hugsanlega sé að titill bloggfærslu minnar sé hugsanlega í sterkari kantinum og eðilegt að fréttamaðurinn fái tómarúm til þess að gefa sína hlið á málinu í heild sinni. 

Ég vill þó árétta mikilvægi þess að fréttamenn séu hlutlausir og gæti orða sinni í útsendingum og dragi úr æsifréttamennsku eins og kostur er.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef fólki finnst að fréttamönnum eða öðru fólki í atvinnulífinu sé sagt upp fyrir að gera mannleg mistök eins og þetta virðist vera og að almenningur eigi að taka ábyrgð á gjörðum sínum með uppsögnum hvernig væri þá að fólkið sem siglir þjóðarskútunni taki ábyrgð og segi upp þegar það gerir mannleg mistök þetta er bara fáránleg viðbrögð.

Rúnar (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 18:24

2 Smámynd: Óttarr Makuch

Þarna er fréttamaður að búa til atburðarás sem fréttamenn eiga ekki að gera.

Óttarr Makuch, 24.4.2008 kl. 18:42

3 identicon

Jæja Óttarr, þér virðist hafa orðið að ósk þinni.

Rani (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 14:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband