Það verður seint sagt um Kristján Þór Júlíusson að hann sé hræddur við að segja skoðanir sínar umbúðarlaust.  Hann hefur nú á vikutíma eða svo komið sterkur inn í tveimur málum þe. málefnum lífeyrissjóðanna og nú vegna kjarabaráttu flugumferðastjóra.  Í bæði skiptin sagði hann skoðun sem flestir geta tekið undir en fáir þingmenn þora að segja.
Ég segi sem betur fer erum við með þingmenn sem geta og hafa þor að standa upp og segja það sem segja þarf.
Kristján benti réttilega á vegna lífeyrissjóðanna að nú væri mál að linni og menn þyrftu að komast uppúr skotgröfunum og skoða málin af skynsemi í stað reiði, af fagmennsku í stað hatur.  Það þyrfti fyrst og fremst að skoða mál sjóðanna út frá hagsmunum sjóðsfélaga, það eru einu sinni þeir sem eiga sjóðinn.
Varðandi flugumferðastjórana þá er það hárrétt að launin eru há en ábyrgðin er einnig mikil.  Það hlýtur samt að skjóta skökku við að menn fari í svona harðar aðgerðir til þess að knýgja fram launahækkun á þeim tímum sem nú eru í gangi.  Ekki ætla ég að standa í vegi fyrir því að fólk fái launahækkanir en hinsvegar er ég sammála Kristjáni Þór að í dag sé líklega ekki tíminn til þess að fara í eins harðar aðgerðir og flugumferðastjórar eru með núna sérstaklega í ljósi þess að fólk um allt land er í baráttu við það eitt að halda vinnu sinni og þeim kjörum sem það er með.
Það er greinilega ekki sama hver biður forsetann um að synja lögum.  Kannski hefði verið ráð fyrir aðstandendur kjosa.is að fá til lið við sig fyrrum kosningastjóra Ólafs Ragnars því þegar hann óskaði eftir því við forsetann þá gat hann synjað lögum vegna stórar gjáa sem myndast hafði milli þings og þjóðar en nú þegar stór hluti þjóðarinnar óskar eftir að forsetinn vísi málinu til þjóðarinnar þá eru hagsmunir þess ekki eins mikilvægir.
Ég leyfi mér að spyrja hvort er mikilvægara að þjóðin fái að segja álit sitt á fyrrum fjölmiðlafrumvarpi eða ríkisábyrgðinni á Icesave?
Það er greinilega gott að vera vinur forsetans!
"Talsmaður samtakanna Dalai Lama á Íslandi sagði í fréttum Ríkisútvarpsins, að samtökin hefðu sent forsætisráðherra bréf með ósk um fund til að kynna heimsókn Dalai Lama hingað. Ekkert svar hefði borist. Þá hefði öllum þingmönnum einnig verið sent bréf um heimsóknina"
Talsmanni samtakanna hefðu mátt vera það ljóst að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra myndi ekki hitta Dalai Lama enda er maðurinn af erlendu bergi brotinn, talar erlent tungumál og talar ekki stakt orð í íslensku.
Jóhanna hefur reynt með öllum tiltækum ráðum að forðast fundi með erlendum aðilum frá því hún tók við og væntanlega hefði ekki orðið nein breyting á því háttarlagi núna.
Ekki ætla ég að setja útá úrskurð neytendastofu, hún þekkir lög um viðskiptahætti og markaðssetningu.
Þessi auglýsing fékk mig þó til þess að brosa, þetta var eitthvað nýtt og ágætis tilbreyting frá mis vel uppsettum auglýsinga einblöðungum sem borin er í alla póstkassa í kílóavís ár hvert.  Þetta þótti mér sýna frjóa hugsun og skemmtilega framsetningu.
Einhvernvegin grunar mig þó að það hafi verið samkeppnisaðilar Garðlistar sem hafa kvartað við neytendastofu en ekki íbúar um alla borg.  Þarna skaut Garðlist samkeppnisaðilum sínum langt aftur fyrir sig í markaðssetningu, auglýsingin verð verðskuldaða athygli og mikið var rætt um hana um alla borg, það hefur samkeppnisaðilum Garðlistar ekki líkað.
En lög skulu standa og væntanlega vita nú allir að auglýsingablöðungur sem þessi er ekki leyfilegur.
Ég segi nú bara fuss og svei ef þú kaupir ekki gloss fyrir konuna þína, barn, móður eða aðra kvennkynsverur í fjölskyldunni hjá þér.  Þetta er ódýr gjöf sem gleður marga og um leið styrkir þú gott málefni.
Átakið " Á allra vörum" hefur nú komið á fulla ferð í annað sinn. Í þetta skipti til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna.
Afrakstur átaksins í ár rennur til kaupa á nýju hvíldarheimili fyrir SBK. Á hverju ári greinast hérlendis að meðaltali 10-12 börn og unglingar 18 ára og yngri með krabbamein. Mikil þörf er fyrir hvíldarheimili fjölskyldna krabbameinssjúkra barna og eru forsvarskonur átaksins afar stoltar yfir því að geta orðið hér að liði.
Glossið í ár kemur frá Dior og kostar aðeins 2.500 krónur! Allur ágóðinn rennur til SBK.
Nú má enginn láta sitt eftir liggja og kaupa a.m.k. eitt stykki til styrktar góðu málefni.
Dior útsölustaðir innanlands
1. - 14. júní 2009
Hagkaup, einstaka verslunum!
Hygea,
Kringlunni og Smáralind
103 Reykjavík
Sigurboginn
Laugavegi 80
101 Reykjavík
Jara
Hafnarstræti 107 og Glerártorgi
600 Akureyri
Lyf og heilsu verslunum um allt land.
Snyrtistofa Ólafar ehf.,
Austurvegi 9
800 Selfossi
Glæsibær
Álfheimum 74
104 Reykjavík
Andorra
Strandgötu 32
220 Hafnarfirði
Fyrir þá sem ferðast um háloftin með Iceland Express þá verður hægt að kaupa vöruna hjá þeim í júní og júlí.
Einnig er hægt að panta vöruna á netinu.... með því að smella hér.
Fyrsta nágrannavörslu skiltið var sett upp á Grænlandsleið í gær að viðstöddum fulltrúum lögreglu höfuðborgarsvæðisins, formanni hverfisráðs og fulltrúa íbúa.
Borgarstjórn Reykjavíkur hóf nágrannavörslu sem tilraunaverkefni árið 2006 í nokkrum hverfum borgarinnar. Verkefnið þykir hafa  sannað gildi sitt hefur hverfisráð Grafarholts í samráði við borgaryfirvöld ákveðið að útfæra nágrannavörslu í hverfinu.
Nágrannavarsla er skipulögð forvörn þar sem íbúar taka höndum saman, til þess m.a. að sporna gegn innbrotum og eignatjóni. Samvinna íbúa af þessu tagi þekkist víða erlendis. Í upphafi verkefnisins fá íbúar nauðsynlegar leiðbeiningar og fræðslu, sem Þjónustumiðstöð Árbæja og Grafarholts og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafa umsjón með. Auk þess verður sett sérstakt skilti við götuna sem gefur nágrannavörslu til kynna.
og mun þar elda fyrir gesti og gangandi.... þetta gæti verið áhugaverð fyrirsögn.  Ég væri allavega til í að opna eldhúsið fyrir hann þ.e ef hann myndi biðja fallega.
Nú held ég svei mér þá að mælirinn sé fullur.
Hvenær getur þessi maður réttlæt veru sína á Bessastöðum lengur?  Það er alveg sama hvað hann gerir, hvernig hann gerir það og á hvaða tímapunkti það gerist hann einfaldlega klúðrar öllu.
Hann hefur valdið þjóðinni ómældum skaða erlendis, bæði með framkomu sinni og viðtölum.  En ég leyfi mér að spyrja "hvernig í ósköpunum gat hann klúðrar þessu"?
Maðurinn er búinn að afhenta orður í allar áttir frá því hann tók við embætti og hann gat klúðrar þessari einföldu afhentingu.  Þetta er okkur ævarandi skömm hvernig komið var fram við sendiherrann.
Því fyrr sem þessi maður fer frá Bessastöðum þeim mun betra - áður en hann veldur okkur meiri skaða!
Ég fór ásamt fjölskyldunni í páskaeggjaleitina sem Félög sjálfstæðismanna í Árbæ og Breiðholti héldu í Elliðaárdalnum í gær.  Sjálfstæðisflokkurinn sem og þau félög sem að páskaeggjaleitinni standa eiga heiður skilið fyrir framúrskarandi skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Við fórum ásamt hundruðum annarra upp í hlíðina til þess að leita af fallega skreyttum páskaeggjum og við hvert það egg sem yngri dóttur mín fann sagði hún alltaf yfir sig hrifinn.... Sjáið þið hvað þetta egg er fallegt... allt fullt af litum.
Við höfum farið undanfarin ár í páskaeggjaleitina hjá Sjálfstæðisflokknum og er það orðið að hefð um páskahátíðarnar.
Takk fyrir okkur.
Í ljós þeirra miklu umræðu sem verið hefur um fjármál Sjálfstæðisflokksins undanfarna daga þá getur maður ekki annað en tekið eftir gargandi þögninni um fjármál Samfylkingarinnar.  Þar er engu líkara en fréttamenn séu allir búnir að rita nafn sitt undir inntökubeiðni í Samfylkinguna.
Í lok árs 2007 skuldaði Samfylkingin 124 milljónir króna og nú þegar Íslandshreyfingin gekk til liðs við Samfylkinguna þá skuldaði hreyfingin 29 milljónir króna.  Ég geri ráð fyrir því að Samfylkingin stundi ekki kennitöluflakk eða aðrar bókhaldsæfingar og taki því við skuldum Íslandshreyfingarinnar.  Þegar heildarskuldir flokkanna beggja eru teknar saman þá skuldar Samfylkingin 153 milljónir króna.
Nú þegar Samfylkingin hefur aðeins birt lista yfir þá aðila sem gáfu leyfi fyrir því að sagt yrði opinberlega frá því að þeir styrktu Samfylkinguna yfir eina milljón króna árið 2006 þá veltir maður því óneitanlega fyrir sér hversu margir það hafi verið sem neituðu að láta birta nafn sitt.  Eins hefði átt að birta lista yfir tengd félög þ.e heildarframlag ákveðinna viðskiptablokka.  Til dæmis voru hátt í fimmtíu fyrirtæki skráð á aðalskrifstofu Baugs að Tungötu 6 um áramótin 2006-2007.  Ef hvert þeirra hefði styrkt Samfylkinguna um 300.000 krónur árið 2007 þýðir það rúmlega 14 milljónir króna og Samfylkingin er ekki skyldug að taka það saman í eina heild og því ekki nauðsynlegt að setja fram þann lista.
Einnig hefur ekki verið birtur listi yfir þá aðila sem styrktu Samfylkingarfélag Reykjavíkur með beinum eða óbeinum hætti þar sem vitað er að reikningar voru skráðir beint á fyrirtæki í einkaeigu í stað þess að reiða fram beinan styrk.
Af hverju er áhugaleysið hjá fréttamönnum á fjármálum flokks sem er einna skuldsettastur allra stjórnmálaflokka landsins?  Af hverju er þessi æpandi þögn því það er gömul saga og ný að sjálfstæði í fjármálum hlýtur að vera ein af forsendum fyrir því að stjórnmálaflokkur nýtur trausts og þess vegna veltir maður því fyrir sér hverjir það eru sem eiga Samfylkinguna í raun og vera.
Forysta Samfylkingarinnar hlýtur að þurfa gera grein fyrir sínum málum fyrir kosningar nema fréttamenn gefi þeim vilyrði fyrir því að þess þurfi ekki.
Set hér inn fréttatilkynningu sem send var út í fyrradag af fjórtán formönnum sjálfstæðisfélaga í Reykjavík.
Fréttatilkynning
Frá formönnum Sjálfstæðisfélaga í Reykjavík
Undirritaðir formenn Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík lýsa yfir fullum stuðningi við Guðlaug Þór Þórðarson alþingismann.
Við lýsum  furðu okkar á þeim málatilbúnaði sem verið hefur í kringum fjáraflanir á vegum Sjálfstæðisflokksins og því hvernig nafn Guðlaugs  Þórs Þórðarsonar hefur verið dregið inn í þá umræðu.
Það liggur fyrir hverjir tóku á móti umræddum styrkjum og hverjir samþykktu þá af hálfu flokksins.
Þáverandi forysta Sjálfstæðisflokksins bar ábyrgð á því að styrkirnir voru samþykktir.
Guðlaugur Þór Þórðarson kom þar hvergi nærri  og því hljóta að vera annarleg sjónarmið að baki því að draga hann inn í þá umræðu.
Við hvetjum nýkjörna flokksforystu til að leiðrétta þann rógburð sem Guðlaugur Þór hefur orðið fyrir í fjölmiðlum síðustu daga.
Benedikt Geirsson
Björn Gíslason
Fanney Birna Jónsdóttir
Hafsteinn Valsson
Hólmar Þór Stefánsson
Jón Arnar Tracey Sigurjónsson
Jón Kári Jónsson
Kári Sölmundarson
Ólafur Rúnar Jónsson
Óttarr Guðlaugsson
Ragnhildur Björg Guðjónsdóttir
Sigurður Pálsson
Theodór Bender
Torfi Kristjánsson
Fjölskyldan fékk að upplifa gamla tíma fyrr í kvöld þegar allt varð rafmagnslaust hér í Grafarholtinu.
Ekkert sjónvarp
Ekkert útvarp
Enginn heimasími
Þvottavélin þagnaði og sömuleiðis uppþvottavélin
Vitanlega eru maður með ráð, 3G netlykillinn frá Símanum og fartölvan tekinn fram, hvað er að gerast - hvað gerði Davíð núna?
Þetta varð maður að skoða nánar.
Eftir að samsæriskenningarnar voru farnar á fullt og hugmyndin um að Davíð væri að ná borginni yfir á sitt vald aftur þá kom smellur rúmum hálftíma eftir að rafmagnið fór og maður lifandi rafmagnið kom aftur á.
Þvottavélin fór í gang sömuleiðis uppþvottavélin
sjónvarpið hóf að sýna Skjá1 aftur
útvarpið í herberginu byrjaði að syngja
heimasíminn hringdi og skýringin kom upp á yfirborðið.
Davíð hafði framkallað háspennubilun... merkilegt - skyldi Jón Ásgeir vita af þessu?
Já, það er skemmtileg tilbreyting á fundinum sem haldinn verður í kvöld með öllum frambjóðendum sem taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins hér í Reykjavík.  Fyrirkomulagið verður "blind date" eða "speed date" sem gerir það að verkum að umræðurnar verða líflegri en þegar um pallborðsumræður er að ræða.
Fundurinn verður haldinn í dag, fimmtudag, í Árbæjarskóla kl. 20.00
Það er allt að komast á suðupunkt innan ríkisstjórnarinnar og greinilegt að samstarfið er á brauðfótum.  Það er því líklega hægt að segja við Jóhönnu að grasið er ekki alltaf grænna hinu megin.
Það er fátt sem þessi ríkisstjórn hefur áorkað og nú eru þau að átta sig á því að það styttist hratt til kosninga.  Þau eru að brenna inni á tíma og þess vegna eru þau farinn að ræða hvort ekki sé mögulegt að fresta kosningunum, ég er reyndar hissa á því að sú krafa hafi ekki komið fyrr uppá borðið hjá þeim.  Sérstaklega í ljósi þess að það hefur verið rætt í dágóðan tíma á milli stjórnarerindrekanna, hvort ekki sé ráð að fresta kosningunum.
Það sem er leiðinlegt við þetta allt saman að nú hefur farið drjúgur tími í stjórnarskiptin og ekkert virðist ætla koma út úr þessi nema klúður á klúður ofan reyndar fyrir utan að fyrsta íslenska konan hefur nú gegnt starfi forsætisráðherra.  Það er svo sem gott en ekki getur það verið merkilegur ferill að státa sig af að hafa ekkert gert og engu áorkað í starfinu, eða hvað?