Leita í fréttum mbl.is

1 2 og Grafarholt - Áhugaverður fundur með borgarstjóra

Það var góður fundur sem íbúar Grafarholts og Úlfarsárdals áttu við borgarstjórann í Reykjavík um hádegisbilið í dag.

Þrátt fyrir að frábært vor væri í lofti og ýmis tækifæri til þess að njóta náttúrunnar nú eða njóta þess að lesa bók heima fyrir þá voru fjölmargir íbúar sem ákváðu að mæta á fundinn sem haldin var í tengslum við verkefni borgarinnar 1 2 og Grafarholt. 

Á dagskránni voru mörg málefni.

  • Stofnuð voru íbúasamtök Grafarholts og Úlfarsárdals, samþykkt voru lög sem og kosið í stjórn samtakanna.  Það var öflugur hópur íbúa sem bauð sig fram því ekki vantaði áhuga fólksins fyrir þessu þarfa framtaki.
  • Kristinn Reimarson frá þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts fór með kynningu eða fræðslu um liðheilsu og hvernig við getum öll sem eitt stundað heilsusamlegt líferni án þess að hafa mikið fyrir því.
  • Brekkukórinn sem er skipaður elstu börnunum á Maríuborg komu og sungu þrjú lög með mikilli innlifun og stóðu þau sig alveg frábærlega.
  • Ólafur F. Magnússon borgarstjóri fór yfir málefni hverfisins og svarið fyrirspurnum frá íbúum.  Það voru margvíslegar spurningar sem komu, allt frá því að spyrjast fyrir um rusladalla eða bekki við gangstíga yfir í að fyrirspurnir um veg sem á að liggja milli Vesturlands- og Suðurlandsvegar.  Einnig kom ósk frá íbúum um að bensínstöðin sem er við skólalóð Ingunnarskóla yrði fjarlægð enda stæði hún á afar óheppilegum stað í hverfinu.  Því miður gafst ekki tími til þess að svara öllum fyrirspurnum á staðnum en svör munu verða senda til spyrjenda sem og verður fundargerð fundarins sett á heimasíðu hverfisins.  Borgarstjóri var einnig viðstaddur þegar skrifað var undir samkomulag milli nemenda í níunda bekk Ingunnarskóla og Orkuveitu Reykjavíkur um umhirðu á tankasvæðinu, eða eins og stóð í samkomulaginu að nemendur taki svæðið í fóstur gegn styrk í ferðasjóð.  Skemmtileg nálgun til þess að efla hverfavitund unglinga í hverfinu og vonandi koma einnig skemmtilegar hugmyndir fram um hvernig megi nýta þetta svæði betur.
  • Sólveig Reynisdóttir fór yfir þær athugasemdir sem komið hafa inná ábendingavefinn 1 2 og Reykjavík.  Var hún búinn að flokka ábendingarnar niður einnig merkja við þær ábendingar sérstaklega sem hafa fengið flestar undirtektirnar.  Sú ábending sem fékk flestar undirtektirnar voru tvímælalaust vegna hugmynda um flugvöll á Hólmsheiði sem ég held að ekki nokkur Grafarholts- eða Úlfárfellsbúi vilji fá.

Börnin í hverfinu tóku svo sannarlega þátt í fundinum, Brekkukórinn eins og sagt var frá söng, ljósmyndarar frá Geislabaug voru send út á örkina og tóku þau myndir af hverfinu eins og það leit út fyrir þeim og myndlistamennirnir frá Reynisholti voru með myndlistasýningu.

Fundurinn var bæði fræðandi og skemmtilegur eins er alltaf gaman að hitta fólk sem hefur sama markmið og aðrir þ.e að láta gott að sér leiða og huga að hagsmunum hverfisins í heild.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

vantar þig ritara starf , vantar einn í kórinn

Heiðar (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband