Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Gáta dagsins - þriðjudagur

Hver eru þau fjögur mannanöfn sem þú sérð út um gluggan ??


Gáta dagsins

Hér kemur gáta dagsins,

Smiður smíðar hlut,

sá sem kaupir hann notar hann ekki,

sá sem notar hann veit ekki af því..

Hver er hluturinn ???


VARÚÐ - Vesturbæjarperri á ferðinni !

Maður veit eiginlega ekki hvort maður eigi að hlægja sig máttlausan eða gráta úr sér augun þegar maður les þessa fréttá visir.is - Nú er lögreglan alveg örugglega að stoppa alla sem eru með derhúfur eða í jakka sem er rauður og blár að lit til þess að kanna hvort ekki sé um vesturbæjarperrann að ræða.  Hún vill allavega tala við hann ef hann er að stunda ósiðlega hegðun á almanna færi þ.e fróa sér eins og stendur í fréttinni.  Mér er eiginlega alveg sama hvort viðkomandi er með derhúfu, lopahúfu, buff eða húfulaus ef hann er að stunda þessa iðju sína á almannafæri þá klárlega þarf lögreglan að eiga við hann orð !

Frétt tekinn af VISIR.is

Vísir, 12. ágú. 2007 10:13

Perri á reiðhjóli

Ef einhver sér mann milli þrítugs og fertugs á reiðhjóli, með derhúfu og í bláum og rauðum jakka, þá vill lögreglan gjarnan hafa tal af honum. Ekki síst ef hann er að fróa sér á hjólinu. Þar er líklega kominn sá sem þrjár ungar stúlkur gengu framá á Sólvallagötu um klukkan hálf sjö í morgun. Þeim brá nokkuð í brún við að sjá þennan másandi mann. Svona lagað er náttúrlega bannað á almannafæri.


Ég hef eignast nýjan vin

Þóra Sigurðardóttir
 

Ég hef eignast nýjan bloggvin, hún heitir Þóra Sigurðardóttir.  Það sem hún segir um sjálfan sig á bloggsíðunni sinni er eftirfarandi

"Bara djöf... óþolinmóð er alltaf að týna því sem ég skrifa en.. þetta er allt að koma"

Þóra mín þetta er bara flott - þetta kemur allt kemur allt með kaldavatninu...

Þið getið skoðað bloggsíðuna hennar Þóru með því að smella HÉR


Tillaga til borgaryfirvalda

Fyrst af öllu vil ég óska samkynhneigðu fólki til hamingju með daginn. 

Ég held svei mér þá að ég hafi aldrei tekið þátt í skemmtilegri skrúðgöngu, þvílík stemning.  Í göngunni var fólk klætt í flotta búninga (misflotta þó :-), litir alsráðandi og gangan gekk niður laugarveginn í takt við dúndrandi tónlist.  Svei mér þá ef 17 júní gangan roðni bara ekki í samanburðinum við þessa - reyndar er 17 júní gangan alveg óstjórnlega leiðinleg og sterilerseruð og því laus við alla stemningu.  Ég held að borgaryfirvöld eigi að hugsa um það vel og vandlega að óska eftir aðstoð skipuleggjenda GayPride í því að gera 17 júní að skemmtilegri þjóðhátíðardegi með alvöru skrúðgöngu, ég er viss um að þau fara létt með það.


mbl.is Tugir þúsunda taka þátt í Hinsegin dögum í miðborg Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær nýjung

Þetta er alveg frábær viðbót við þá góðu þjónustu sem slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er að veita á hverjum degi og sýnir glöggt hve starfsmenn slökkviliðsins eru vakandi í starfi og leita allra leiða til þess að ná sem bestum árangri í starfi.


mbl.is Voru ekki með forgangsakstur að óþörfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að greiða fyrir yfirvigt í flugi heyrir nú sögunni til !

Þó fyrr hefði verið að alheimurinn fengi að njóta þeirra gæða sem við höfum fengið að njóta síðustu áratugina þ.e fyrsta flokks og gómsætt íslenskt sælgæti loksins á boðstólnum á erlendri grundu.  Danir verða ekki sviknir af þeim miklu gæðum sem þeir standa nú í biðröðum til þess að prófa.  Það er þó önnur hlið á þessu máli líka því kæru landsmenn nú þurfum við ekki lengur að greiða yfirvigt þegar við erum að ferja íslenskt góðgæti til ættingja og vina við getum bara einfaldlega stoppað í næstu kjörbúð þegar við erum kominn á áfangastað og keypt nammipokanna þar.

En þrátt fyrir að íslenska súkkulaðið sé nú gott þá slær það ekki við himneska lífræna súkkulaðinu frá Green & Black´s og eins leiðinlegt mér þykir að segja frá því þá er íslenska súkkulaðið ekki með tærnar þar sem Green & Black´s er með hælanna.  Þið ykkar sem hafið ekki notið sælustundanna með Green & Black´s getið fjárfest í því t.d. í Blómaval, Fjarðakaup, Nóatúni, stærri Krónuverslunum og Hagkaup.  Mér skildist einnig að Green & Black´s ísinn sé lendur á íslandi og sé fáanlegur eingöngu í Hagkaups verslununum.


mbl.is Íslenska nammi-útrásin hafin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttablaðið birtir fjöldan allan af lögbrotum !!

Dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár birtir Fréttablaðið myndir af lögbrotum og svo virðist vera að þeir sem eiga hlut að máli fái ekki einu sinni sekt fyrir og í hvert skipti sem Fréttablaðið birtir þessar myndir þá eru þeir að gefa lélegt fordæmi aftur og aftur. 

Ég er að tala um bílaauglýsingar Fréttablaðsins það er nánast undantekning ef starfsmenn Fréttablaðsins taka ekki myndir af bílum sem eru lagðir í sérstæði fyrir fatlaða og ég efast um að allur þessi fjöldi bíla séu með þar til gert kort til þess að hafa leyfi til þess að leggja í þessum stæðum.  Ég skora á Fréttablaðið að láta af þessari iðju í eitt skipti fyrir öll því það getur ekki tekið langan tíma að láta færa þá bíla sem lagt er ólöglega í þessum stæðum.  Ég man í fljótu bragði eftir góðri herferð sem DV (líklega það eina góða sem þeir hafa gert) fóru í gegn bílum sem lagt var í stæði fyrir fatlaða án þess að vera með heimild til þess - ég er bara ekki frá því að sú herferð hafi gert gagn á sínum tíma og það er spurning hvort Fréttablaðið bæti ekki fyrir þetta með því að fara í slíka herferð !

Hér eru tvö dæmi úr blaðinu í dag - endilega sendið viðkomandi SMS og bendið þeim á að þeir hafi lagt ólöglega - Símarnir eru 691-8900 (MINI) og 893-5005 (BENZ)

 

bill1.bmp 

 

bill2


Múæsingurinn byrjaður aftur á Akureyri - Ótrúlegt en satt !

Múæsingurinn er byrjaður aftur fyrir norðan og merkilegt nokk þá virðast fjölmiðlar gleypa við honum.  Hvað hefðu þessir aðilar sem að þessum undirskriftalista sagt ef ekkert hefðu verið gert og allt hefði farið á verri veg, án þess að ég sé að segja að það hefði gerst ef unglingar hefðu mátt tjalda, en segjum sem svo að allt hefði farið á vesta veg.  Ég er alveg viss um að þá hefði komið gagnrýni og yfirlýsing frá þeim þar sem þeir hörmuðu afskiptaleysi bæjarstjórans og / eða bæjarstjórnar.

Þeir hefðu alveg mátt segja sér það að hátíðin yrði með öðru sniðu núna og ég er alveg klár á því að það hefði ekki þurft prófessors gráðu til þess að sjá það út. 

En ég sá einhverstaðar að veitingastaður á 3000 hamborgara á lager eftir helgina, eiga bæjaryfirvöld að taka ábyrgð á því?  Er þetta ekki á ábyrgð rekstraraðila - en væntanlega er staðurinn fljótur að selja þessa þrjúþúsund hamborgara - hann getur væntanlega fryst þetta og tekið út eftir þörfum!

Vissulega hefði eflaust mátt grípa öðruvísi í taumanna, en þetta var þó tilraun sem virðist hafa gengið ágætlega.  Allavega virðist megin þorri íbúa vera sáttur við þessa ákvörðun.


mbl.is Tæplega hundrað manns skrifað undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðanakönnun í fullum gangi

Minni á skoðanakönnunina sem er enn í fullum gangi, spurt er  
Hversu öfluga nettengingu ertu með heima hjá þér?
Staðan er þessi núna og gaman væri að ná fjölda þátttakenda upp í eitthundrað
1 Mb 9,6%
2Mb 13,5%
4Mb 5,8%
6Mb 13,5%
8Mb 19,2%
12Mb 38,5%

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband