Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

500 þúsund kall í sekt fyrir að vekja nágrannana

Ég er ekki í vafa um að tengdapabbi sé ánægður með frammistöðu hollenska dómarans sem dæmdi prestinn.  Hann hefur hefur nefnilega haldið því fram að prestarnir í hverfinu ásæki hann með þessum kirkjuklukkum enda segir hann að prestarnir eigi einfaldlega að senda SMS nú þegar árið 2007 sé komið!  Hann segir einnig að það sé einfaldlega hægt að gera samning við Símann um magnsendingar á SMS sem hægt væri að senda hverju og einu sóknarbarni þegar presturinn vill ná sambandi við sóknina sína.  Spurningin er bara sú hvort það yrði ekki ólíft í hvefinu þegar SMS rignir yfir alla þar sem þar búa Smile

Vísir, 19. ágú. 2007 15:04

Prestur sektaður fyrir klukknahljóm

Hollenskur prestur hefur verið dæmdur til að greiða 5000 evrur, eða tæpa hálfa milljón króna í sekt fyrir að hringja kirkjuklukkum í kirkju sinni of snemma og of hátt.

Presturinn, sem er kaþólskur, tók við nýju brauði fyrir hálfu ári og þá fór hann strax að hringja klukkum kirkjunnar heldur snemm að mati nágranna hans, eða klukkan hálf sjö um morguninn.

Talsmaður yfirvalda í heimabæ prestsins, Tilburg, sagði að honum væri heimilt að hringja klukkunum hvenær sem væri, en að hann yrði að halda sig innan hávaðamarka. Hann á einnig frekari sektir yfir höfði sér láti hann ekki af þessari hávaðasömu iðju


3 dagar í október - spennandi lesning

3-dagarBókin er eftir einn besta sölumann landsins og einn harðasta alþýðuflokksmann fyrr og síðar - hann slær nánast út afa mínum Runólfi Pjeturssyni sem var einn mesti alþýðumaður fyrr og síðar. 

Ég er búinn að verða mér úti um bókina og mun lesturinn hefjast á mánudaginn kemur.  Án efa er verður lesningin spennandi.

Upplýsingar teknar af www.skjaldborg.is

3 DAGAR Í OKTÓBER
Fritz M. Jörgensen.

Lík af konu uppgötvast í námunda við Þjóðarbókhlöðuna. Skömmu eftir að rannsóknin hefst hverfur önnur kona, Ásdís að nafni, við dularfullar aðstæður. Margt bendir til þess að atburðirnir sér tengdir. Gengur raðmorðingi laus í Reykjavík? Lögreglan leggur nótt við dag við að finna lausn á þessu dularfulla máli. Um leið fylgist lesandinn með örvæntingarfullri baráttu Ásdísar fyrir lífi sínu og kynnist smám saman hugarheimi þess sálsjúka manns sem við er að eiga. Það verður enginn svikinn af því að sökkva sér ofan í þessa frábæru spennusögu.


Íslenski þjóðfáninn bannaður í Reykjavík og hamingjuóskir til verkefnastjórnar Menninganætur

407881AFyrst af öllu vil ég óska verkefnastjórn Menningarnætur til hamingju með stórglæsilega dag og til hamingju reykvíkingar með glæsilega hátíð. 

Við fjölskyldan fórum í bæinn um kl 14.00 til þess að sýna okkur og sjá aðra og vorum við í bænum til miðnættis.  Allt skipulag dagsins var til fyrirmyndar og óhætt að segja að allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi á hvaða aldri sem þeir eru þrátt fyrir að Landsbankatónleikarnir hafi fengið falleinkunn frá ansi mörgum - sökum þess að þar vantaði skipulag, tónleikastjóra (kynnir) sá sem var settur sem kynnir var viðvaningur á móts við glæsilega frammistöðu Páls Óskars á tónleikunum á Laugardalsvellinum á föstudagskvöldið, einnig leið alltof langur tími á milli hljómsveita enda gáfumst við upp á þessum tónleikum og gengum þess í stað niður eina skemmtilegustu götu Reykjavíkur þ.e Skólavörðustíginn - sú gata er án efa staður lista og menningar, staður jóla sama hvaða árstími er því þar eru 2 ef ekki 3 jólabúðir sem opnar eru allan ársins hring og óneitanlega gleður það mig þar sem ég myndi helst vilja hafa jólaskrautið uppi 365 daga á ári.

Það var þó eitt sem við fórum að velta fyrir okkur þegar við sáum íslenska þjóðfánann blakta við eitt heimilið í borginni - svo undarlega sem það kann að hljóma þá virðist íslenski þjóðfáninn vera bannaður í Reykjavík því borgaryfirvöld flögguðu honum hvergi á þessari miklu menningarhátíð.  Á dögum sem þessum ætti fáninn að vera á hverju götuhorni og í öllum verslunargluggum ef ekki bara öllum gluggum, við erum allt of spéhrædd að nota fánann okkar.  Því þurfum við að breyta.

En maður lifandi hvað Villi borgarstjóri stimplaði sig rækilega inn með flugeldasýningu aldarinnar.  Þetta var flottasta, stærsta og magnaðasta flugeldasýning fyrr og síðar - þó svo það hafi verið erfitt þá sló Vilhjálmur gamla metið hans Davíðs þegar hann var borgarstjóri þegar haldið var uppá 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar sú flugeldasýning var eins og trítill frá Landsbjörg í samanburði við þá flugeldasýningu sem var í gærkvöldi.  Til hamingju Vilhjálmur með þennan dag og þessa sýningu það verður erfitt að toppa hana að ári.

Ég hef ákveðið að breyta fyrri tillögu minni hvað varðandi skipulagningu á 17 júní hátíðarhaldanna.  Við fáum skipuleggjendur GayPride til þess að hafa yfirumsjón með skrúðgöngunni og málefnum henni tendri og fáum svo verkefnastjórn Menningarnætur til þess að skipuleggja viðburði um allan miðbæinn s.s. tónlistaratriði, listasýningar ofl.  Þá verður kannski 17 júní hátíðarhöldin mönnum bjóðandi.


mbl.is Verkefnisstjórn Menningarnætur lýsir yfir ánægju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningar í næstunni

Fyrirhuguð bygging við Strandgötu í HafnarfirðiÞá hefur Lúðvík tekist það sem fáum bæjarstjórum hefur tekist, en honum hefur ekki bara tekist það einu sinni heldur hefur honum tekist að kljúfa bæjarsamfélagið hjá sér herðar niður og skipta bænum í tvær fylkingar. 

En nú verður spennandi að vita hvort Lúðvík telji þetta vera stórframkvæmd eða bara smávægilega byggingarframkvæmd því er það ekki yfirlýst stefna Lúðvíks að allar stórframkvæmdir skulu fara í íbúðakosningu?   Því hlýtur spurningin að vera sú hvenær á að kjósa?

En eins einkennilegt og það kannski hljómar þá segir fólk oft " ég skil bara ekki af hverju það er ekki byggt upp í loftið, stærri hús líkt og gert er erlendis og byggingarreitir nýttir betur".  En svo þegar kemur að því að byggja há hús þá vill enginn hafa þau nálægt sér en það finnst öllum sjálfssagt að byggja bara svo framalega sem það sjáist ekki frá sínu heimili.  Merkilegt!

 


mbl.is Stórhýsi kynnt í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sultutau

Það eru ekki mörg ár síðan ég fór í sveitakynningu á bóndabæinn Hlíð rétt við Apavatn.  Árin eru líklega ekki nema 22 eða svo en maður lifandi ég segi það satt að þar smakkaði ég bestu sultu sem ég hef fengið fyrr og síðar og það var krækiberjasulta - ekki hef ég hugmynd um uppskriftina og myndi feginn vilja eiga hana í dag en sultan var gómsæt og ef hún húsfrúin á Hlíð tæki þátt í sultukeppninni þá er ég viss um að hún myndi sigra með glæsibrag.

Þetta er alveg frábært framtak að vera með svona sultukeppni á stór-Grafarholtssvæðinu - þetta lífgar uppá hversdagsleikann.

 

glaeser2
 

En fyrir þau okkar sem kunnum ekki að búa til sultur þá mæli ég með frönsku eðalsultunum frá Bonne Maman þær sultur eru himneskar svo ekki sé nú meira sagt

 


mbl.is Leitin að bestu sultunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gáta dagsins - Fimmtudagur

Gáturnar halda áfram.  Nú er komið að fimmtudagsgátunni.

Hvar finnur þú vegi án bíla, skóg án trjáa og borgir án húsa?


Gáta dagsins - Miðvikudagur

Jæja gott fólk, hér kemur gáta dagsins

 Tvo fætur hef ég, en aðeins þegar ég hvíli mig snerta þeir grund.   Hver er ég??


Það hefði ekki verið amarlegt að hafa svona á skrifstofunni í dag

Í þessum brjálæðislega hita sem var í vinnunni í dag þá hefði verið frábært að hafa einn svona kælipott á staðnum, hefðu verið fínt að skella sér smá í pottinn á milli funda....

zPMIlVB5Ed

Femínismi er fyrir kellingar

feminismi2_2_png

Fyrir þá sem hafa áhuga á þessum femínista bolum þá eru þeir til sölu hér

 

 


Spennandi tímar og löngu tímabærir

Já þetta eru spennandi tímar sem framundan eru á þessu nýja svæði og í fyrsta skiptu mun oryggieinkafyrirtæki sjá um löggæsluna í íbúðahverfi á Íslandi og reyndar mjög sérstakt að þetta skyldi ekki vera löngu byrjað.  Við getum séð víða um heim hverfalöggæslu þar sem götur og jafnvel heilu hverfin eru lokuð fyrir almennri umferð.  Ég sé til dæmis fyrir mér að þetta hefði getað gengið fyrir Grafarholtið í heild og spurning af hverju ekki var leitað tilboða hjá Öryggismiðstöðinni eða Securitas. 

securitasEn eins og í öllu öðru þarf að stiga varlega til jarðar en ég er þess fullviss að einkaaðilar geta vel rekið hverfagæslu jafn vel ef ekki betur en lögreglan og þá gæti lögreglan hugsanlega sinnt öðrum og mikilvægari málum betur.

Til þess að taka af allan misskilning þá er ég ekki hlynntur því að einkafyrirtæki fái jafn mikil völd eins og lögreglan hefur þegar kemur að frelsis sviptingum, hlerunum eða öðru slíku.

 


mbl.is Öryggiskerfi í öll heimili við Urriðaholt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband