Leita í fréttum mbl.is

Flottur söngvari, flottir tónleikar og alveg þess virði að bíða

Já það var alveg þess virði að bíða með alla fjölskylduna áður en haldið var heim á leið,  ekki gerðist ég svo frægur að fara á tónleikana þrátt fyrir að þeir væru nánast haldir í garðinum hjá mér hér á stór Grafarholtssvæðinu.  En biðin var þess virði svo maður væri ekki að hanga í langri bílalest til þess að komast heim til sín.

En eitthvað verða borgaryfirvöld að gera því þegar eitthvað er um að vera í Egilshöllinni þá er bara allt STOPP og maður getur lesið heilan kapla í bók eftir Arnald Indriðason á leið sinni heim.  En ég hef þrátt fyrir allt meiri áhyggjur af umferðinni þegar Úlfarsárdalur bætist inní allt flóðið sem nú þegar rennur upp og niður Vesturlandsveginn bæði kvölds og morgna.  Ekki ætlar nýr meirihluti að segja íbúðareigendum að skilja bíla sína eftir og taka strætó frítt í vinnuna, líkt og með sundlaugahugmyndina í Laugardal... sérstök speki þar á ferð - svo ekki sé nú meira sagt.  Held svei mér þá að eitthvað af permanettinu hafi læðst inní kollinn á nýja lækninum í borginni.


mbl.is Bocelli í Egilshöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Óttarr, bara nota hjólið eins og við gerum hérna í útlandinu eða er kannski of vont veður

Kveðja

Hulda

Hulda Hlín (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 10:34

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ég heyrði að erfitt hefði verið að komast heim eftir tónleikana.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 1.11.2007 kl. 15:35

3 Smámynd: Óttarr Makuch

hehe en ég var nú bara á leiðinni heim fyrir tónleika

Óttarr Makuch, 1.11.2007 kl. 16:15

4 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Hefurðu séð konuna hans?

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 2.11.2007 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband