Leita í fréttum mbl.is

Heigulsháttur Ögmundar, verndari ofurlaunaðra lækna!

Allar ákvarðanir Ögmundar bera sterklegan vott um að kosningar eru í nánd.  Hann virðist vera með eitt verkefni og það er að koma sér í mjúkinn á sem flestum stöðum á þeim stutta tíma sem er til kosninga.

Ég verð þó að játa, ákvörðun hans um að hætta við fyrirhugaðar breytingar á St. Jósefsspítala er sérkennileg svo ekki sé nú meira sagt.  Ögmundur hefur ákveðið að vernda hálaunuðu læknana sem þar starfa og veita þeim áfram skjól á kostnað okkar hinna sem þurfum að greiða fyrir þetta uppihald.  Nema hann sé með í bígerð reglugerð um að lækka tugmilljóna laun einstaka lækna sem starfa við St. Jósefsspítala - en einhvernvegin efast ég um að ráðherrann þori í þann slag enda afar stutt til kosninga.  Það má ekki styggja neinn eða hvað?


mbl.is Ákvörðuninni verður snúið við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hef þurft að notfæra mér umrætt sjúkrahús og þjónustan þar var einstaklega góð. ef þetta sjúkrahús er lagt niður koma biðlistar í margar smærri aðgerðir lengjast.. hvað ætli það kosti landið?

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 01:11

2 identicon

Og hvað ætli það hefði kostað ef þetta sjúkrahús hefði verið flutt til Keflavíkur... hvað hefði kostað að láta alla sjúklinga keyra þangað. Sumir fara í aðgerð og þá þyrftu jafnvel tveir að fara. Ef þú bætir þar með rúmum klukkutíma í sjúkaheimsókn flestra sjúklinga (nema þeirra sem búa í keflavík) og líka klukkutíma hjá mörgum starfsmönnum þá skli ég hreinlega ekki hvernig þessi aðgerð hefði getað verið þjóðhagslega hagkvæm hjá Guðlaugi.

Ríkið á ekki bara að horfa á það hvort spítalinn sé rekinn ódýrari heldur skiptir það ríkið líka máli hvort sjúklingur getur verið að skapa vermæti í sínu starfi fyrir ÞJÓÐINA í þennan klukkutíma sem að hann er að rúnta á milli bæjarfélaga...

Jóhannes (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 01:49

3 identicon

Ögmundur er slakur, hefur ávallt verið.  Þetta er kosningarútspil enda hefur sjaldan komið eitthvað af viti frá VG.  Ögmundur er með þessu að undirstrika vanhæfni sína.  Ákvörðun um lokun var vissulega þungt högg fyrir gaflara en skynsöm sparnaðaráætlun.  Nú verður fróðlegt að fylgjast með framhaldi, samfylking hrynur og þegar fólk rýnir vel í þær mannleysiur sem eru hjá VG þá er harla óliklegt að vinstri stjórn verði eftir kosningar.  Menntamálaráðherra er krakki, en samt skásti ráðherra VG. Segir það ekki margt.  Ögmundur á að skammast sín

Baldur (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 11:22

4 identicon

Skrítið hvað ég er farin að fá mikinn kjánahroll þegar ég sé nafnið Baldur, þarf ekkert að það sé útaf þér Baldur en það kæmi ekki á óvart að þú sért sá hinn sami sem ert á móti öllu

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband