Leita í fréttum mbl.is

Hann mun sitja næstu fjögur árin... og það sjálfkjörinn!

Það verður seint sagt að það sé ekki fjúk í kringum Ólaf Ragnar, það hefur alla tíð verið hvort heldur þegar hann var þingmaður og nú þegar hann er forseti.  Reyndar skrifaði ég einhverstaðar að nú þegar hann var sjálfkjörin forseti væri það mín skoðun að hann sæti ekki á forsetastóli með umboð frá landsmönnum.  Reyndar þykir mér það heldur tapurt að forsetaembætti landsins skuli þykja svona lítt spennandi að enginn frambærilegur aðili skyldi taka ákvörðun um að bjóða sig á móti sitjandi forseta.  Enda hefur það ávallt verið mín skoðun að embætti sem þetta á fólk að fá með skýrum kosningum en ekki með því að vera skjálfkjörið.

Ég hef einnig haft ákveðnar skoðanir um hvernig Ólafur Ragnar hefur farið með embættið og að mínu mati eru ekki allar þær breytingar sem hann hefur gert verið til góða. 

Til að mynda á þetta embætti ekki að tala gegn þingi landsins, forsetinn á að vera sameiningatákn en ekki sundrungartól þjóðarinnar.  Forsetinn á ekki að blanda sér í pólitík hvorki beint eða óbeint enda á eina tengingin forsetans við pólitík að vera þegar hann afhentir einhverjum leyfi til stjórnarmyndunar.  En því miður hefur Ólafur Ragnar ekki borið gæfa til þess að halda embættinu frá pólitík þvert á móti hefur hann leynt og ljóst reynd að gera embættið pólitískara með hverju ári sem líður.  Hvernig dettur Ólafi í hug að taka upp gamlar stjórnmálaskoðanir úr litlum flokk sem fáir landsmenn studdu í kosningum og heimfært upp á þjóðina í heild.  Það er hárrétt sem Björn Bjarnason segir að það hafi ávallt verið góður meirihluti sem studdi Nato aðild, varnarsamninginn sem og veru varnarliðsins.  Ég man ekki betur en margir hafi kveinkað sér þegar herinn ákvað að fara og það liggur við að yfirmótmælendur landsins þeir Steingrímur J. og Ögmundur hafi mótmælt þó svo ég vilji nú kannski ekki fullyrða það.

Það er annað sem embættið þarf að taka á og er það gífurleg aukning á rekstrarkostnaði sem farið hefur fram úr öllu hófi ár eftir ár. Sá er situr sem forseti hlýtur að þurfa gæta hófs í rekstri líkt og aðrir enda ætti það að vera metnaður viðkomandi að skila góðu búi eins og góðum stjórnanda sæmir.


mbl.is Einkennilega að orði komist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þú segir "Til að mynda á þetta embætti ekki að tala gegn þingi landsins, forsetinn á að vera sameiningatákn en ekki sundrungartól þjóðarinnar."

ég spyr,á Alþingi eitthvað frekar að tala gegn Forseta Lýðveldis?

Forseti er þó kosin beinni kosningu atkvæðabærs fólks en alþingi suðupottur vinavæðingar og hrossakaupa þar sem hagsmunir flokka eru teknir framyfir hagsmuni kjósenda.

Kjósandi (IP-tala skráð) 5.8.2008 kl. 21:24

2 Smámynd: Óttarr Makuch

Alltaf frekar leiðinlegt þegar fólk ákveður að skrifa inn athugasemdir en þorir ekki að koma fram undir nafni.

Það er nú varla hægt að lýkja saman þingi og forseta, eða er það?

Óttarr Makuch, 5.8.2008 kl. 23:23

3 identicon

Ólafur var skárri kostur en Ástþór.Annað hef ég ekki um málið að segja

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 20:25

4 Smámynd: Óttarr Makuch

haha já það get ég tekið undir, enda talaði ég um frambærilega frambjóðendur...

Óttarr Makuch, 6.8.2008 kl. 23:44

5 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Óttarr þú getur sko verið svinslegur stundum!!!!/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 7.8.2008 kl. 13:00

6 identicon

þú svaraðir ekki spurninguni óttarr

Sigurður Hólm a.k.a Kjósandi (IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 18:53

7 Smámynd: Óttarr Makuch

Blessaður Sigurður,

Það eiga að vera skýrar línur á milli forseta og alþingis með boðleiðir/ferli klárar.

Óttarr Makuch, 11.8.2008 kl. 00:38

8 identicon

týpískt svar sjálfstæðismanns...innantómt blaður útí loftið um ekkert.

hvernig hefur brósi það ?

Sigurður Hólm (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 01:06

9 Smámynd: Óttarr Makuch

Haha, svo þetta er hinn eini sannir Sigurður Hólm.

Brósi hefur það bara fínt, sjaldan verið hressari laus og liðugur...

Óttarr Makuch, 13.8.2008 kl. 23:44

10 identicon

Gott mál vinur,rakst á síðuna þína í tengslum við moggablogg og trúðu mér drengur að ég fylgist með þér í framtíðinni....svona hvolpar að derra sig

gaman að rekast á þig hérna,bestu kveðjur

Sigurður Hólm (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 03:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband