Leita í fréttum mbl.is

Gleðilega hátíð ljóss og friðar

2150192996_0498b3b322.jpg
 

Einn af okkar uppáhalds sálmum hljóðar eitthvað á þessa leið

“Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,
en minning þess víst skal þó vaka.”

Því við vitum þegar þau tímamót eru kominn ár hvert að syngja þennan sálm, þá er
viðburðarríkt og skemmtilegt ár að kveðja. Það má svo sannarlega segja það um árið
2008.

Hjá okkur hefur margt gerst bæði persónulega og hjá þjóðinni allri. Til að mynda ákvað fjölskyldan að sendaekki út hefðbundin jólakort, þ.e ef hægt er að segja að
kortin okkar hafi einhvertímann verið hefðbundinn. Þess í stað ákváðum við að senda út jólakveðju með þessu sniði og setja frekar þá fjármuni sem hefðu farið í kaup á
jólakortum sem og póstburðagjöld til góðgerðamála og hefur sú fjárhæð þegar verið greidd. Fjölgun varð á heimilinu þegar við fluttum inn dreng sem er
íslensk ættaðan bæði í karl og kvenlegg frá Danmörku hefur hann verið hjá
okkur frá því í haust.

“En hvers er að minnast og hvað er það þá,
sem helst skal í minningu geyma?
Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá,
það flestallt er horfið í gleymskunnar sjá.
En miskunnsemd Guðs má ei gleyma.”

Árið hefur verið ferðaár hjá okkur því við fórum í heimsókn til Þórs og Huldu sem búsett voru í Kaupmannahöfn og að sjálfssögðu nýttum við tækifærið og heimsóttum Margréti í leiðinni eða allavega kaffihúsið sem stendur rétt við litla kofan hennar. Sem líklega er ein af fáum byggingum sem “við” íslendingar áttum ekki á einhverjum tímapunkti líkt og flestar aðrar byggingar í Kaupmannahöfn. Ferðin var mjög skemmtileg enda alltaf gaman að
hitta góða vini og ekki má gleyma uppáhalds kaffihúsinu okkar LaGlace sem stendur við Skoubogade 3.

Farnar voru margar ferðir innanlands, til þess að drekka í sig menningu þjóðarinnar og skoða bændur landsins komið var við á Bjarteyjarsandi sem er eitt best varðveitta leyndarmál hér í grennd við höfuðborgina. Ákaflega skemmtilegur staður fyrir fjölskyldur þar sem börn á öllum aldri geta notið þess að vera í sveitasælunni á
fallegum stað.

Aðrir staðir sem við komum við á voru Hreðavatn, Smáralind, Húsafell,
Vestmannaeyjar, Svínadalur, Kringlan og Brynjudalur svo eitthvað
sé nú nefnt. Síðasti viðkomustaðurinn á ferðalagi fjölskyldunnar var Brynjudalur en þar
hefur fjölskyldan farið ásamt Júlla og Svölu undandarin ár og sótt sér jólatré. Þetta er án efa ein skemmtilegasta vina og jólahefð sem við höfum. Þegar komið er í
dalinn hefst leiti að hinu eina sanna jólatré og vitanlega höfum við ávallt náð í
fallegasta tréið í skóginum. Það hafa vissulega komið upp smávægileg slys hvað
fegurðina já og stærðina en fegurðin kemur innanfrá svo stilkurinn hlýtur að vera
ákaflega fallegur!

Það má með sanni segja að námsmenn búi á heimilinu því Emma Brá stundar nám í
leikskólanum Maríuborg, Hafdís Hrönn er í Sæmundarskóla og Kata er orðinn virðulegur NÁMSMAÐUR í Háskólanum í Reykjavík þar sem hún lærir allt um mannauðsstjórnun. Spurningin er því hvort hún verði kominn með FIMM háskólagráður áður en við vitum af.

Hafdís Hrönn er að verða aðal frammarinn á heimilinu, æfir bæði hand- og fótbolta
með FRAM og hefur tekið miklum framförum á árinu. Við höfum því farið á ófá mótin í ár okkur öllum til mikillar gleði. Það verður ekki langur tími sem mun líða áður en Hafdís nær að smita með gleði sinni systur sína Emmu Brá og fær hana til þess að byrja æfa hjá FRAM einnig.

Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár
og góðar og frjósamar tíðir,
og Guði sé lof, því að grædd urðu sár,
og Guði sé lof, því að dögg urðu tár.
Allt breyttist í blessun um síðir.

Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár
og góðar og blessaðar tíðir,
gef himneska dögg gegnum harmanna tár,
gef himneskan frið fyrir lausnarans sár
og eilífan unað um síðir.

Við færum þér og þínum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð um leið og við þökkum þér
fyrir samveruna á árinu sem senn er nú líðið. Megi Drottinn Guð færa ykkur hamingju, gleði
og styrk sem og varðveita ykkur um ókomin ár.

Með jólakveðju 

Óttarr

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Photobucket

Jórunn Sigurbergsdóttir , 25.12.2008 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband