Leita í fréttum mbl.is

Yfirlýsingar Vilhjálms Þ sem og borgarstjórnarflokksins

Yfirlýsing frá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni var að berast og segir hann það vera opið spil hver taki við embætti borgarstjóra af hálfu sjálfstæðisflokksins.

„Hvað mig varðar er opið hver tekur við embætti borgarstjóra af hálfu Sjálfstæðisflokksins í mars 2009. Borgarstjórnarflokkurinn mun ákveða borgarstjóraefnið í sameiningu þegar nær dregur.
         
Í samráði við borgarstjórnarflokkinn og með stuðningi hans hef ég ákveðið að gegna áfram starfi oddvita borgarstjórnarflokksins og formanns borgarráðs. Borgarfulltrúar flokksins munu áfram vinna saman af heilum hug í þágu borgarbúa það sem eftir lifir kjörtímabilsins.

Ég mun leggja mig allan fram við að vinna með öllum borgarbúum eins og ég hef gert hingað til.„

Þá sendi borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins einnig frá sér yfirlýsingu af gefnu tilefni og lýsir hann yfir óskoruðum stuðning við Vilhjálm.

„Borgarstjórnarflokkurinn lýsir yfir óskoruðum stuðningi við oddvita sinn, Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, og meðfylgjandi yfirlýsingu hans. Borgarstjórnarflokkurinn tekur undir það með Vilhjálmi, að ekki sé ástæða til að ákveða nú hver verði borgarstjóri eftir rúmt ár. Sú ákvörðun verður tekin af borgarstjórnarflokknum í sameiningu þegar nær dregur og með hagsmuni flokksins og borgarbúa að leiðarljósi.“

Var þess yfirlýsing samþykkt samhljóða og undir hana skrifuðu:
Áslaug María Friðriksdóttir, Kjartan Magnússon, Björn Gíslason, Kristján Guðmundsson, Bolli Thoroddsen, Marta Guðjónsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Ragnar Sær Ragnarsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Sif Sigfúsdóttir, Jórunn Ósk Frímannsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og         Júlíus Vífill Ingvarsson,


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óttarr Makuch
Óttarr Makuch

ottarr@centrum.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband